Bjarki


Bjarki - 28.01.1902, Blaðsíða 3

Bjarki - 28.01.1902, Blaðsíða 3
ur, sem framhjá gakk, hefur tvístrað heilli 'lík- fylgd. Kínverjár eru ótrúlega forvitnir. í líkfylgldunum má' sjá margskonar búnínga. Smádreingir og fátækiíngar eru leigðir til að fylgja, klæddir f allskyns búníng. Sumir fá í hendurnar marglitar sólhlýfar, aðrir eru látnir bera á hálsi eða herðum skildi með gylltu letri. Sumir bera eftirlíkingar af ýmsum eignum og munum hins látna. Þett" er brennt við gröf- J ina, því hinn dauði á að hafa með sjer alla jafðneska muni sína yfir í annað líf. Við graf- irnar eru brennd hús, menn og konur úr papp- ■ ír, hestar, gimsteinar, klukkur, skrautgripir o. s. frv. úr pappfr eða blikki. Oft mæta menn hinum rauðu brúðkaupstól- um, sem ætíð eru bornir af þjónum í mjög ’ skrautlegum búníngum. I þessum burðarstól- um er brúðurin borin heitn til manns sfns. En ætíð eru þeir lokaðir. Enn einkennilegri er þó hinn >rauði vagn«, sem konur af keis- araættinni, eða frá hirðinni, ferðast f um borg- ina. Við hírðina -er allt kvennfölk eins klætt, i hvort heldur það eru frændkonur keisarans, eða : þjónustustúlkur þeirra. l5ær bera al ar Ijósa terós í hárinu. Allstaðar þar sem þessi vagn ! fer um, hneigja menn sig með mikilli viðhöfn. j Annars eru vagnarnir f Pekíng yfir höfuð ! mjög ohentugir, Hjólin eru afarþúng og rista oft djupt ofan f göturnar, af þvf að hvergi er ! steinlagt. Rúmið í vögnuum er mjög óþægi- legt og þar við bætist, að menn verða að skríða inn [ þá £ fjórum fótum. En nóg er af reiðhestum í Pekíng og er lángskemmtileg- ast að ferðast um borgina á hestsbaki. Asn- ar fast einnig leigðir til reiðar, en eru aðeins notaðir aí fátækari hluta fólksins, Burðarstól- aroir eru að falla úr tísku og úlfaldar eru mest notaðir sem áburðardýr. Hús vesturlandaþjóða : Sendiherrahúsin, Sam- komuhúsið, Veitingahiisið, Bánkinn og tvær evrópiskar búðir standa f hvirfingu í Sendi- herragötunni. Plallirnar, sem breski og franski sendiherrann búa í, eru skrautlegar byggingar og bata áður verið bústaðir sona eins at keisurunum. þag er annars ekkert öfundsvert líf sem sendiherrarnir í Peking lifa. Þegar þeir hafa reynt að komast í samband við hirðina, hefur þeim jafnan verið vísað frá og stundum með hinni mestu ókurteisí. Þeim hefur blátt áfram verið neitað um aðgáng til keisar- ans meo ýmis konar viðbárum. Og þegar þeir loks eftir margra ára veru, hafa feingið aðgáng, þá hefut keisarinn ekki einu sinni tekið á móti þe-im í höll sinni, heldur í öðru hust, sem fyrrum var ven;a að taka z móti skattskyldugum höfðíngjum-í, tii þess að láta þá þá vinna hollustueiða. Könur sendiherr- anna hafa hvorki feingið aðgáng til drottning- arinpar eða keisaraekkjunnar. 189S var þeim boðið til keisarahaiiarinnar, en vegna hirð- siðanna, sem þar tíðkast, urðu þær eftir hálfan tíma að hverfa burt aftur án þess að fá að sjá aðra en nokkrar af hirðraeyunum. Nýársdagurinn er eirii dagurinn, sam sendi- herrarnir hafa tækifæti tii að koma saman við ráðgjafa í stjórn þeirri, sem þeir eiga að sernja við. Sendiherrar Vesturlandaþjóðanna eru eiginlega alísendis ókunnugir í Peking. Þeir lifa iitaf fyrir sig og hafa lítið saman við fbúa Pekings að sœida. Frh. Bæiarstiórnarfundur var haldinn í fyrradag. f“ar var sambykkt reglugjörð um notkun hafnar- bryggju kaupstaðarins. Öll skip, að opnurn bátum undanskiidum, sem leggjast að bryggjunni til þess að ferma eóa afferma, taka við eða skila af sjer pósti eða tarþegum, taka vatn, eða til aðgjörða eða í öðrum erindum, greiði í hafnarsjóð auk hafnargjalds 3 au. af hverri smálest af stærð skipsins fyrir fyrsta sóiarhringinn eða styttri tíma, sem þau liggja við bryggjuna, og 2 au. fyrir hvern sólarhring eða minni tíma, sem þau liggja þar fram yfir sólarhring. Skip hafa rjett til að ieggjast að bryggjunni í þeirri röð sem þau koma; þó verða öll skip að rýma fyrir skipum hins Sameinaða Gufuskipaljelags. En þar næst skulu önnur þau skip, sem sigla eftir fast- ákveðinni fyrirfram auglýstri ferðaáætlun og flytja póst, hafa rjett til að leggjast að bryggjunni, og skulu önnur skip rýma fyrir þeim. Skip, sem taka vatn við bryggjuna, greiða fyrir það 4,au. fyrir hverja smáiest af stærð skipsins. Bæjarstjórnin getur þó samið sjerstaklega um bæði þessi atriði þegar um þau skip er að ræða, serr fara eftir föstum ferðaæátlunum. Hafnarnefndin hefur, undir yfirurasjón bæjarstjórn- ar, alia umsjón með bryggjunni og skipar fastan mann, sem daglega hefur eftirlit með henni. Reglugjörðin giidir til 31. des. 1902. í hafnarnefnd voru kosnir T. L. Imsland kaupm. og Eyólfur Jónsson bæjarfulltrúi, Fáta-krafulltrúar yfirstandandi ár voru kosnir bæjarfulltrúarnir E. Th. Hallgrímsson og St. Th. Jónsson. Samþykkt var með öllum atkvæðum, að bærinn tæki að sjer, samkv. leyfi landshöfðingja, ábyrgð á landssjóðsláni A. E Bergs sútara, 5000 kr. Bæjarstjórnin leigði kaupmönnunum St. Th. Jóns- syni og Sig. Johansen efsta hólfið niðri af íshúsi hafnarsjóðsins til eins árs fyrir 50 kr. ársleigu. Bæjarstjórnin samþykkti að ábyrgjast 500 kr. ián handa Haraldi Guðmundssyni í Firði til aá endur- byggia bæ' sinn. Sig. Johansen bæjarfulltrúi lagði fram tillögur um breytingar á fýrirkomulagi barnaskólans á Fjarðar- öldu. Var 5 marina nefnd kosin til aá íhuga mál- ið : Jóh. Jóhannesson sýslura., Sig, Johansen, Tr. Guð- mundsson, sr. Björn Rorláksson og Lárus Tómasson. Hvöt heitir nýtt bindindisblað, sem farið er að koma út hjer á Seyðisfirði. Ritstjórinn er Jón Jónsson læknir á Vopnafirði. Blaðið fæst eingaungu við bindindismál og á sjerstaklega að vera málgagn Umdæmisstúku Austurlands af I. O. G. T. Veðrið. Et'tir illviðrabálkinn framan af þessum mánuði kom góðviðrakafii um mtðjan mánuðinn, svo að snjó leysti aá mestu. En nú fyrir helgina, á föstudaginn. spilltist tíðin aftur, gerði hríð með miklu frosti og stormum. Frost hafa verið á daginn 10—13 stig R. í dag er kyrrt og bjart, en írosti- hæð hin sama og áður. Skólamál Vestur-isíeadíriga, í haust var skýrt frá því hjer í blaðinu, að sett hefði verið á stofn kennaraembætti í íslenskum fræðum við einn af stærstu háskólunum í Winnipeg. Kennari var kjörinn sr. Fr. Bergmann. En eftir síðustu fregnuni sem híngað hafa borist að vestan, gat kennsfati ekki byrjað í haust Vegna þess, hve fáir nemendur sóttu um hana. Síra Friðrik ferðaðist því í haust um ýmsar bygðir íslendínga til þess að lýsa fyrir þeim skólanum og hvetja menn til að nota hann. Neðanmálssagan. —o^- Höf. þessa ævintýris, Adelbert von Camisso, cr franskur að ætt, fæddur 1781. 15 ára gamall fluttist hann til þýskalauíls og fjekk síðar embætti sem grasafræðíngur við jurtagarðinn í Berlín. Hann dó 1838, Hann er einn í hinum svokallaða »rómantíska« skáldaskóla. Eftir hann liggur töluvert af Ijóðum, Sagan af Pjetri Píslarkrák, — 2. 12 kom ekki aftur til eigandans Jeg starði á mann- inn og gat ekki skilið, hverr.ig jafnstór kíkir hefði getað komið upp úr jafnlitlum vasa. En eing- inn annar virtist taka eftir þessu og yfir höfuð skiftu menn sjer ekki fremur af manninumí gráa frakk- anum, en af mjer. Nú komu fram ávextir frá öllum álfum heimsins og voiu bornir um í dýrindis skálum. Herra John var hmn vingjarnlegasti og gestrisnasti. Harin sneri nú í annað sinn j sínu til mín og sagðl: »Ger- ið jijer svo vel að fá yður ávexti; þjer munið ekki hafa haft mikið af þesskonar á sjóferðinni.< Jeg hneigði mig til samþykkis, en hann sá það ekki, því hann var unflir eins byrjaður að tala aftur við hina. Nú lángaði hópinn til að setjast niður utan í hæð- mni, þa,- sem útsj^nin var fegurst yfir landið, en jöiðin var SVo Vot að það var ekki hægt. Þá sagði einn í hópnunii ag hjer ættu menn að hafa tyrk- neskt teppi til að breiða út og sitja á. Hann hafði ekki fyr sleppt orðinu, en maðurinn í gráa frakkan- um stakk hendinni í vasann, dró upp úr honum 13 gullsaumað, tyrkneskt teppi og rjetti frá sjer með mestu auðmýkt. í’jónarnir tóku við því, eins og ekkert væri um að vera, og breiddu það þar sem sagt hafði verið fyrir. Allur hópurinn settist niður á teppið. Jeg leit hræddur ýmist á manninn, á vas- ann, eða teppi.ð. f“að var yfir 20 áinir á leingd og 10 á breidd. Jeg neri augun og vissi ekki, hvað jeg átti að hugsa um alit þetta, einkum þar sera einginn annar en jeg virtist undrast þetta hið minnsta. Mig lángaði til að vita eitthvað nánar rlm þennan mann og hugsaði mjer að spyrja, hver hann væri, en vissi ekki til hvers jeg ætti að snúa mjer, því jeg var nærri því enn hræddari við þjónana .en herramennina, sem þeir þjónuðu. Loks herti jeg upp hugann og gekk til úngs manns, sem mjer sýndist ekki eins reigingslegur og hinir og oft hafði staðið einn sjer. Jeg bað hann stamandi að segja mjer, hver þessi greiðvikni maður þarna í gráu fót- unum væri. — »Hann, sem lítur út eins og þráðar- endi, sem er nýslitinn úr náiarauganu ?« —»Já, hann, sem þarna stendur einn sjer — «, »Jegþekki hann ekki«, svaraði úrigi maðurinn, sneri sjer frá 14 mjer, eins og til að komast hjá frekari spurníngum og fór að tala við hina. Sólin fór nú að skína og hitinn varð svo mikill að kvennfólkið tók að kvarta. Fanný sneri sjer þá til grákl cdda mannsins, sem einginn hafði ávarpaí fyr, og spurði hann blátt áfram og kæringarlaust, hvort hann hefði ekki hjá sjer tjald. Hann hneigði sig, eins og hann hefði orðið fyrir óverðskuldaðri æru, stakk Aendinni ofaní vasann og jdró uppúr honum tjalddúk, álmur, streingi, hæk, Fstuttu máli allt sem*heyrir til skrautlegu og fullkomnu tjaldi. Karlmennirnir þöndu það út og það nAði átyfir atlt teppið -— og einginn virtist undrast þetta hið minnsta. Mjer var fyrir laungu nóg boðið; jeg var orðian skelkaður; en jeg varð það þó fyrst alvarlega þegar jeg sá, að hann samkvæmt næstu ósk frá hópnum dróg uppúr vasa sínum þrjá reiðhesta, jeg segi þjer satt, þrjá fallega, stóra hesta með öllum rciétígjum — hugsaðu þjer! þrjá söðlaða hesta uppúr sama vasanum scm hann áður hafði dregið uppúr papp- öskjur, kíkir, 20 álna lángt teppi og jafnstórt tjald með öllu sem því tilheyrir. Ef jeg ekki biði þjer

x

Bjarki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.