Bjarki


Bjarki - 27.02.1902, Blaðsíða 1

Bjarki - 27.02.1902, Blaðsíða 1
t»n*w Hf'IXVíKM. VII, 8. Eitt blað á viku. Verð árg. 3 kr. borgist fyrir 1. júlí, (erlendis 4 kr borgist fyrirfram). Seyðisfirði, 27. febr. Uppsögn skr ifleg, ógild nema komin sje til útg. fyrir i. okt. og kaupandi sje þá skuldlaus við blaðið. 1902. F yrirlestur síðdegis. Allir inn í bindindishúsinu á sunnudaginn kl. 5 boðnir. D. Östlund. ylugiysíng. Samkvæmt áskorun frá kaupmanni Sig. Jo- hansen var haldinn fundur 18. þ. m. af hlut- höfum í íshúsinu, sem keypt var á Garðars- uppboðinu. Á fundinum mætti roeirihluti hluthafa, og var þar ákveðið að reglulegan aðalfund skyldi halda io. Mars n. k kl. 12 á hádegi á Hótel Seyðisfjord, þar sem gjört verði út um það, hvenær húsin skulu rifin niður og hvernig ráð- stafa eigi viðnum: Samkvæmt þessu er hjer með skorað á alla hluthafa að mæta á fundi þessum á tilteknum stað og tíma. Seyðisfirði 21. febr. 1932. St Th Jónsson. Jóh Vígfússon Þórarinn Guðmuridsson. KONÚNGSBOÐSKAPURINN. UNDIRTEKTIR BLAÐANNA. — o—- Eftir blöðunum að dæma virðast menn nú einmála um það úr báðíim flokkum, að taka tillögum stjórnarinnar: ráðgjafa búsettum í Reykjavík með þvi' fyrirkomulagi sem gert er ráð fyrir í greininni í »Dannebrog< 12. f. m. sem þýdd var hjer í blaðinu. Öll sunnlensku blöðin eru samdóma um þetta. Til vestfirsku blaðanna er konúngsboðskapurinn ekki kominn þegar póstur sá, sem enn er hingað kominn, fer þaðan. Norðlensku blöðin bæði fylgja þcssu. Samkomulugsnefndin á Akureyri hefur fallið frá fyrri tillögum sínum, eins og Bjarki gat til, eftir að henni barst konúngsboðskapurinn. í ávarpi, sem hún hefur gefið út og prentað er í »Norðurlandi,« segir hún svo: »Eftir síðustu fregnum frá Kaupmannahöfn var full ástæða til að ætla að ráðgjafabúset- unni mundi fylgja sjerstakt eftirlit af hendi ráðaneytisins danska og ráðgjafi vor því verða að ýmsu leyti alltaf háður því eftirliti. Kon- úngsboðskapurinn cr því óvænt gleðiefni fyrir oss Islendinga og væntum vjcr því, að allir Islendingar muni nú verða á eitt mál sáttir um að taka því fegins hendi, að fá ráð- gjafa, jafn-rjettháan öðrum ráðgjöfum, fcú- settan í Reykjavík. Um þetta virðist oss einginn ágreir.ingur €igi að vera, eða geti orðið meðal Islendinga og því fremur er ástæða til þess að vænta þess, að allir verði á eitt mál sáttir, þar sem það er beinh'nis tilætlunin, að ráðgjafinn beygi sig fyrir þjóðræðinu . . .» o. s. frv. Síðar í greininni segir: » . . . sjáum vjer ekki til neins fyrir Is- lendinga að hefja baráttu til þess að fá land- sjóra með ráðgjöfum hjer á iandi, því um það atriði liggur nú fyrir skýlaus neitun frá stjórn- inni. Væri þeirri baráttu haldið uppi, þá yrði þjóðin að hafna því fyrirkomulagi sem nú býðst og geymir í sjer stórar umbætur á núverandi ástandi og lángt til fullnægir hinum ýtrustu kröfum, sem gerðar hafa verið-« Þar sem ailir eru nú samdóma um aðalat- riðið, samdóma um það fyrirkomulag sem val- ið skuli, og því er heitið staðfestingu af stjórn- inni, þá virðist svo sem þrætumálinu ætti þar með að vera lokið. Framfaraflokkurinn má vera vel ánægður með sigurinn, bæði á alþingi í sumar og hjá stjórninni nú. Og þó mót- stöðuflokkurinn sje nú, móti betri vitund, að reyna að eigna sjer mestan þátt í úrslitunum og klóra yfir fyrra meðhald sitt með undir- tylluráðgjafanum, þá er óþarfi að fást stórlega um það. Höfuðatriðið er að vinna sigurinn, en ekki hitt, að auðmýkja þann sem sigraður er. þó ættu fæstir af þeim sem voru móti stjórn- arbótinni á síðasta þingi að verða endurkosnir. Þeir virðast margir hverjir vera svo gramir og úrillir enn, að óvíst er hvað þeir kynnu fyrir að taka, ef þeir hefðu ráðin. SMÁPISTLAR. Eftir Dr. X. —o— 1. AFLEQGIÐ LYQAR OO TALIÐ SANNLEIKA. Ef þjer hyggið að þá fyrst skuli segja sann- leikann afdráttarlausan, þegar búið sje að finna gallalausa skýringu alls þess, sem mannssálin þráir að vita, Og setja hana í stað hinna gömlu ellihrumu trúarkenninga— þá má hiklaust bíða til eilífðar. Engin kenning hefur orðið til og náð þroska, fyr en aðalatriðunum hefur verið haldið djarfmannlega fram þvert ofan í ráðandi og ríkjandi skoðanir samtímismanna. Reis þú nýja húsið fyr en þú rífur hið gamla niður, segja menn, en gleyma því, að ómögu- legt er að byggja það á sama staðnum nema rífa gamla hreysið. Hvernig er hugsanlegt að menn aðhyllist nýjar kenningar, ef aldrei hefur verið rótað við gildi gömlu kreddanna og ef þær fylla huga mannsins, svo hann einga breyt- ingu þráir. Sannleikurinn verður eigi sagður nema lýgin sje sakfelld um Ieið. Það væri að vísu ánægjulegast að bera aðeins sannleikanum vitni og lofa lýginni að rotna sundur óhræðri, en því miður er slíkt oftast óframkvæmanlcgt þegar til þess kemur. Þjer er velkomið að hafa þessar skoðanir sjálfur, en 1' öllum bæn- um, láttu ekki bötn og fáfróða heyra slíkt. — Oft má satt kyrt satt liggja. Þetta er annað viðkvæðið hjá þeim, sem einga meiningu þora að hafa, en ráðið er óviturlegt og væri aðeins til þess að styðja að vexti og viðgángi nýrrar heimsku og hjátúar. Ef hin komandi trúar- brögð eiga að fullnægja öllum sálum, fróðum sem fáfróðum, þá verða þau að byggjast á hinni dýpstu lotningu fyrir því sem í raun og veru e r, lotningu fyrir sannleikanum. Margt er nauðsynlegt, en eitt er nauðtynleg- ast, og það er að þræða djarfmannlega og krókalaust veg sannleikans og hafna algjörlega öllum þessum millivegum, sem orðnir eru hverjum manni viðbjóður. Takmarkið sjest glöggt þótt fjarlægt sje, og nú er eingum þörf á því leingur að ferðast í dularklæðum eða eftir einhverjum leyni- eða króka-stigum, heldur ekki gjörist þess þörf að afsaka það, að maður hafi satt að mæla. Látum oss tala og hugsa sem frjálsa og ein- arða menn, og gerum vjer það, þá mun oss veitast sú abðsta gleði, sem mönnum getur hlotnast — meðvitundin um það, að vjer höf- um eftir vorum litlu kröftum borið sannleik- anum vitni, en á honum byggist allur siðferð- isþroski og öll farsæld mannkynsins. (Leslie Stephen.) 2. TRÚIN Á ANNAÐ LÍF. Þó undarlegt sje eru menn allajafna frakk- astir á að dæma um það hiklaust, sem þeir minnst vita um. Þeir segja mest af Ólafi kongi sem hvorki hafa heyrt hann eða sjeð, segir máltækið. Láti nokkur efa í ljósi um annað líf eftir þetta, þykir flestum það hin mesta goðgá, þó fæstir hafi nokkra ljósa hugmynd gjört sjer um það mál. Hugsunarlaust jetur hver eftir öðrum sömu áfellisdómana og sömu barnalegu ástæðurnar. Ef lífið eftir dauðann á að svara á nokkurn hátt til þeim hugmyndum sem almennastar eru um það, þá þart meðvitund og persónuleg- leiki hvers manns að haldast, einnig endur- minningin um lff hans hjcr á jörðunni. Vmi sína og vandamenn þarf hann að geta hitt og þekkt aftur hinumegin grafarinnar. Vanti þetta slitn- ar sambandið milli þessa lífs og hins, og rjett- lætistilfinningu mannanna, sem oft verða fyrir misjöfnu í þessu lífi, án þess að hafa til þess unnið, verður eigi fullnægt að öðrum kosti. Hvernig mannsins einkennilegi persónuleiki getr- ur haldist, þegar taugakerfið og lfkaminn sem hann er svo náið teingdur leysist upp og verð- ur að moldu, er mjög erfitt að skilja. Hitt

x

Bjarki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.