Bjarki


Bjarki - 11.07.1902, Side 2

Bjarki - 11.07.1902, Side 2
2 ið, urðu þeir að leyna aðalkjarnanum í þessari kenníngu, og til þess höfðu þeir allskonar þaulhugsaðar brellur. Eftir nákvæma íhugun fluttu þeir í þessum tilgángi þúngamiðju þess- arar kenningar frá meginþýðing'mni, kjarnanum og til hinnar ytri framkomu — út í skurnið. Þetta gerði klerkalýðurinn, og er hann því einn af undirstðð sliðum þeirrar ytri trúar, sem kirkjan boðar. En aðahindirstaðan er bandalag klerkalýðs- ins við veraldlega valdið. Og ástœður til þess að menn eru svo fýknir í að troða sinni trú inn á aðra, hún er sú, að hin sanna trú mundi sannfœra þá um að þeir væra undanvillingar sjálfir; því reyna þeir f staðinn að hnoða sam- an og únga út nýrri trú, sem hefur jrá eina yfirburði, að hún sleppir þeim við öll afbrot. Nú! Sönn trúarbrögð geta þá verið allstað- ar, nema þar sem fölsk trúarbrögð drottna meðal rnanna; með öðrum orðum, allstaðar, nema þar sem sú trú, sem geingið hefur í bandálag við vaklið — ríkistrúin drottnar. Þannig geta allar svökallaðar fráklofnings- og trúarvillu-kenningar haft sanna trú við að styðjast, en það verður varla með sanni sagt um neina trú scm er geingin í bandalag við veraldlegt veldi. Það kann að sýnast þverstæða, en samt er það satt, að'heitin »orþodox-,« »kaþólsk«-og »mótmælenda«-trú þýða, eins og þau eru höfð j í vanalegu máli, ekkert annað en trúarbrögð ! sameinuð veraldlegu valdi, þ. e. ríkistrú, eða með öðrum orðum fölsk trúarbrögð. A hinum fyrstu tveim öldurn var hugtakið kirkja ekki notað nema sem Ijeleg minni hátt- j ar röksemd, er forvígismenn trúarinnar brugðu fyrir sig þegar í hita var komið. Páll bar beinlínis guð sjálfan fyrir þeim kenningum sem hann boðaði: »hvernig guð : með opinberun auglýsti honum sitt leyndarráð.« j Annar byggði sínar skoðanir á fullgildi Lúk- asar, en allir sögðu þeir: »Vorar hugmyndir um trúna eru alrjettar, og sönnunin fyrír því er j fólgin í vorri fjölmennu samkomu, vorri ecclesíu j eða kirkju.« En það var ekki fyr en eftir kirkjufundinn í Nicea, er keisarinn kallaði saman, að allur þorri þeirra, sem trúðu kenningum Krists, voru hvattir til að viðurkenna blekkingu, sem beint út var gerð af ásettu ráði. Hugtakið kirkja var nú ekki lengur eins og það hafði áður verið, Ijeleg röksemd, sem aldrei var otað fram nema gagnvart öðrum álíka lje- legum rökum; kirkjan varð nú fyrir ýmsa sama sem veldi. Af því að hún var komin í samband viðver- aldlegt veldi, fór hún að haga sjer eins og það, og það er áreiðanleg staðreynd, að öll trúarbrögð sem nokkurn tíma hafa farið í bandalag við veraldlegt vald, hafa einmitt við það bandalag hœtt að vera trúarbrögð, og orðið svik eða blekking. Hvaða kenning er það þá, sem Kristindóm- urinn boðar oss ? Það má einu gilda á hvern hátt hún er rannsökuð og með hvaða mælikvarða hún er mœld, gagnrýnd eða skoðuð; því sú kenning aðskilst, svo að segja samkvæmt eðlisþýngd sinni, í tvær greinir glögglega aðskildar; öðru megin eru allar kreddurnar, bæði kreddan um gudóm Krists og heilagan anda og þeirra sam- band innbyrðis, og kreddan um altarissakra- mentið, með víni eða án víns, og með sýrðu eða ósýrðu brauði, hinumegin kemur það safn af siðferðislegum reglum, sem býður auðmýkt, fátækt og hreinleik á sálu og líkama, en bann- ar oss að dæma aðra og hvetur oss til að leysa brœður vora úr þrældómi og hlekkjum, og lifa í friði við alla menn. Þessar tvær greinar hefur hingað til aldrei tekist að samrýma, þrátt fyrir óþreytandi til- raunir kennimanna og kristniboðara til að fljetta þeim saman; þær hafa alltaf haldið sjer hvor tíJARKI. frá annari eins greinilega og vatnsdropi frá olíudropa. Munurinn á þessum tvennskonar skilningi á kenningu Krist er allt of' greinilegur og lxgg- ur of mjög í augum uppi, til þess að nokkr- ura geti láðst að taka eftir honuin, og hveri- um manni er það í sjálfs vald lagið, að líta á óg rannsaka þá ávexti, sem hver skilningur- inn um sig hefur borið, og sjá má af h'ferni þjóðanna; og svo getur hver um sig, allt eft- ir eðli þessara ávaxta, gjört sína ályktun um það, hvor skilningurinn sje rjettari, eða — ef jeg má hafa Jrað orð — hvor skilníngurinn sje sannari. Ef vjer lítum frá þessari sjónarhæð á sögu kristindómsins, þá blöskrar oss það sem vjer sjáum. Hve.rt sern vjer Iítnm, allt frá hinum fyrstu | tírr.um og frarn á þennan dag, og hvaða kredd- ur sem vjer svo virðum fyrir oss, hvort hekl- i tir fvrstu kredduna um guðdóm Krists, eða i hina síðustu, hvort heldur vjer skoðum kredd- | una um það, hvernig cigi að haJda fingrunum þegar rnenn krossi sig, eða kredauna um alt- arissakramentið með eða án víns, — þá sjá- um vjer, að ávextirnir af öllu þessa starfi mannvitsins, í viðleitninni til að skýra kredd- urnar, hafa undantekningarlaust verið fjandskap- i ur, hatur, líflát, landrekstur, pintingar og brennudauði. En ef vjer lítum aftur á hina siðferðislegu stefnu kristilegrar kenningar, þá verður oss Ijóst, að af gángi Krists út á eyðimörku, til að leita sambúðar við guð, jafnt sem þeim sið að gefa Síberíufamigunum brauð, hafa ávext- irnir verið öll sú huggun og gleði sem hægt er að öðlast í þessu lífi. Það var ekki nema, eðlilegt að þeim hlyti að yfirsjást, sem ekki höfðu gert sjer ljósa grein fyrir, hverja ávexti hvor stefnan um sig mundi bera, það var meira að segja nærri því óhagsanlegt annað en Jjeim skjátlaðist. Einnig má afsaka alla þá, sem lifðu og unnu ráðvandlega og heiðarlega eins vel og þeir gátu, en leiddust þó út í þetta fánytju þras, án þess að þeir tækju eftir því, að þeir með þessum sínum kreddukenningum Jjjónuða ekki guði, heldur djöflinum, og án þess að Eunui það, sem Kristur sjálfur hafði sagt, að hann væri kominn til þess að ónýta og eyðileggja allar kreddukenningar. Afsakanlegur í villu sínni er sömuleiðis þriðji flokkurinn, sá flokkur sem fjekk munnmælin um þýðingu þessara kreddukenninga að erfð- um; þvt hin óskynsamlega andlega menning, er þeir urðu aðnjótandi, kom þeim kyrkingi í hugmyndalíf þeirra, að þeim varð um megn að sjá það sjálfum, að þeir fóru villir vegar. Og þegar öllu er á botninn hvolft, verður víst lfka að fyrirgefa þeim fáfræðlingum, sem álíta að kreddukenningar hafi einga minnstu þýðingu, en skoða þær sem tóman hugarburð eða orðagjálfur. En vjer, sem þekkjum hina upprunalegu merkingu fagnaðarerindisins og höfnum öllum kreddukenningum, vjer, sem sjáum ávextina, sem þessar kreddur hafa borið hjá öllum þjóð- um jarðarinnar, vjer höfum einga afsökun, þó vjer förum af rjettri leið. Er kreddukenningin um hina samræðislausu þúngun Maríu meyjar ómissandi eða ekki? Hver var árángurinn af prjedikun þeirrar kenningar ? Ilatur, háð og skammir. Og hver var hagurinn, sem átti að vega upp á móti öllu þessu? Alls einginn. Og hefur kenning Krists, þegar hann neit- aði að dæma skækjuna, haft góðar eða vond- ar afleiðingar ? Eða hvaða afleiðing hafði hún? Hugarþel þúsunda og aftur þúsunda karla og kvenna hefur orðið mýkra og mannúðlegra við að hugsa til þessarar kenningar. Svo er enn eitt, sem ekki má gleyma: Hafa rnenn nokkurntíma orðið á eitt sáttir, þegar um kreddukenningu er að ræða ? Þeirri spurningu þyrfti ekki einusinni að svara. Það hafa menn vitanlega aldrei orðið. Eru nokkrar deildar skoðanir um það, hvort i skylt sje að gefa Jaeim þurfaling ölmusu sem biður um hana? AIIs eingar. Og þó eru það kreddukenniagarnar, sem sumir vefeingja, aðrir hafna algerlega og enn aðrir jata hugsunarlaust, þó eru J>að einmitt þær, sein eru bráð-vita-gagnslausar hverjum manni, en verða tii eyðileggingar mörgum. Það eru þessar kreddukenningar, segi jeg, sem prestarnir eru alltaf að halda fram og munu framvegis halda fram sem aðalkjarna trúarinn- ar. En þegar aftur á móti um hinar siðferðis- legu reglur er að ræða, sem allir eru sam- dóma um og eru stórvægilegar og með öllu nauðsynlegar hverjum manni, þar sem þær stuðla mjög svo að frelsun manna, þó hafa þessir sömu prestar að vísu ekki haft þor til að koma þeim algerlega fyrir kattanef, en þeir hafa heldur ekki haft hugrekki til að lýsa yfir því, abþœr sje aðalkjarninn í kenníngu Krists. Því sú kenníng mundi rísa öndv erð móti þeim og dæma þá. ýlmtsráðsjundur var haldinn á Vopnafirði 28.-30. júní, af amt- manni Páli Briem og amtráðsmönnunum Þor- grími lækni Þórðarsyni, Axel syslumanni Tul- iníus, Einari presti Þórðarsyni og Arna hrepp- stjóra Kristjánssyni. Auk venjulegra reikningsmála voru þetta helztu málin: 1. Samþykíct sú breyting á reglugjörð Eiða- 1 skólans, að stjórnarnefndin kjósi sjálf formann sinn í stað þess ákvæðis, að annarhvor sýslu- maður Múlasýslanna skuli vera formaður hennar. 2. Amtsráðið staðfesti frv. til reglugjörðar um fjallskil og refaveiðar í Norðurmúlasyslu og Seyðisfjarðarkaupstað og ákvað að hún skyldi öðlast gildi 15. sept. 3. Amtsráðið veitti spítalanum á Seyðisfirði 300. kr. styrk fyrir 1903 og 100 kr. styrk hvorum kvennaskólunum á Akureyri o g B löndu- ósi. Sömuleiðis veitti það Sigurði Sigurðssyni frá Eiðum 200 kr. styrk til náms við kennara- skóla í Danmörku. 4. Forseti lagði fram ýms skjöl viðvíkjandi fjárkláðanum. Amtsráðið athugaði skjöl þessi og ræddi fjárkláðamálið rækilega. JPað kom fram að útbreiðsla kláðans hefur aukist að mun. Þannig kom fyrir kláðakind á Ketilsstöðum á Völlum í Suðurmúlasýslu og í vetur hefur komið fyrir ein kind grunsamleg í Norðfirði í sömu sýslu. Enn fremur kom það fram í amtsráðinu, að í fyrra vor mundu hafa komið fyrir 3 kindur með kláða í Hjaltastaðaþinghá. í vor hefur fjár- kláðinn eins og eðlilegt er komið fram í næstu hreppum við Jökulsá á Fjöllum, bæði í Fjalla-hreppi^og á 2 bæjum, öðrum í Jökuldals- hreppi en hinum í Sauðaneshreppi. Amtsráðið verður því að álíta, að kláðagrun- aða svæðið nái frájökulsá á Fjöllum að Breiða- merkursandi í Austurskaftafellssýslu, með því að fje þaðan hafi beinlínis og óbeinlínis samgöngur við fje af Hjeraði, og virðist því nauðsýn bera til, að einhverjar ráðstafanir sjeu

x

Bjarki

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.