Bjarki - 11.07.1902, Page 3
B J A R K I.
3
»
gjörðar gegn fjárkláðanum á þessu svæði, því
ef hann er látínn afskiftulaus, þá má búast
við, að hann breiðist enn meira út og magn-
ist mj.ög mikið á kiáðagrunaða svæðinu.
Ifinsvegar álítur amtsráðið að það sje ekki
unt að útrýma fjárkláðanum algjörlegajníieðan
eingir ldáðafróðir menn standa fyrir lækning
um/ af því að alþýða manna getur eigi yfir-
leitt haft þá nákvæmni og hirðusemi við bað-
anirnar, sem nauðsynlegt er að hafa. Amts-
ráðið áleit því heppiiegast að fyrirskipa eina
böðun á öllu kláðagrunaða svæðinu frá Jökulsá
á FjÖllum að Breiðamerkursandi. Böðun þessi
á að l'ara fram næsta haust, sem fyrst eftir
3. gaungur, og sje henni að minnsta kosti
lokið allstaðar fyrir miðjan vetur. Baðanirnar
skulu fara fram undir umsjón hreppstjóra ,og
aðstoðarmanna þeirra. Þeir skulu og sjá um
að eingar verði samgaungu milli baðaðs og
óbaðaðs sauðfjár. Amtsráðið álítur heppileg-
ast að baðanir fari fram á sama tíma i sömu
sveit. Þegar böðun fer fram á einum bae
skal allt það fje baðað sem þar er statt.
Þar sem ber á fjárkláða eftir baðanir virð-
ist amtsráðinu nauðsynlegt að fyrirskipaðar
væru tvennar baðanir á öllu kláðasjúku og
kláðagrunuðu fje.
Amtsráðið álítur nauðsynlegt að brýnt sje
fyrir hreppstjórum, að hafa vakandi auga með
heilbrygðisástandi sauðfjársins á næsta hausti,
og að þeir árninni rjettarstjóra um að hafa
vakandi auga á ef að nokkurstaðar skyldi bera
á fjárkláða á rjettunum.
Ennfremur álítur Amtsráðið nauðsynlegt að
skoðanir á sauðfje verði gerðar mjög nákvæm-
ar í sambandi við hinar lögskipuðu búfjár-
skoðanir og svo næsta vor við rúning. Amts-
ráðsmaður N-Þing. tók það fram að mikil
hætta væri á því, að fjárkláðinn b'ærist yfir
Jökulsá f Axarfirði, ef hann væri mikill í
Kelduherfi, og þessvegna virtist Amtsráðinu
nauðsynlegt, að þar væri framfyglt sömu ráð-
stöfunum, sem annarstaðar í N-Þingeyjarsýslu.
Amtsráðið álítur nauðsynlegt, að ef að kláði
kemur upp á sauðfje frá rjettum til jólaföstu,
þá verði aðalreglan sú, að kláðasjúku kind-
urnar verði tafarlaust skornar, sjerstaklega ef
eigandinn er í fjarlægð og ekki næst til hans.
Amtsráðsmennirnir álitu að heppilegast mundi
að panta Krcolin Pearson, með því að karból-
sýrubað væri nokkuð hættolegt, en tóbaksbað
töluvert dýrara og að nauðsynlegt væri að
baðefni væri fyrir hendi í 148,000 fjár, einu
sinni til hinna almennu böðuna og svo jafn-
mikið til vara, ef kláði kynni að koma upp
einhverstaðar að vetrinum. Amtsráðsmennirn-
ír gáfu bendingu um það, hve mikið skyldi
flytja á hvern stað, og til hverra mundi heppi-
legast að senda baðlyfin.
5. Amtsráðið tók til íhugunar að hin svo-
kallaða »sóttarpest« í sauðfje hefði gert mik-
inn skaða í Amtinu síðastliðinn vetur og vor
og þótti Amtsráðinu mikilsvert að skýrslur
væru árlega gerðar um veiki þessa og fól
það því forseta að semja fyrirmynd að slíkri
skýrslu, láta prenta hana og senda sýslunefnd-
unum með áskorun um, að þær |leggðu fyrir
hreppsnefndirnar, að gera skýrslu þessa við
lok hvers árs og senda þær svo til oddvita
sýslunefndar fyrir sýslufund.
6. Var samin og samþykkt svo hljóðandi
Áætlun utn tekjar og gjöld jafnaðarsjóðs
Austuramtsins árið 1903.
T e k j u r.
1. Jafnaðarsjóðsgjald.................kr. 6,000,00
G j ö 1 d.
1. Kostnaður við amísráðið . . . . kr. 1,000,00
2. Til menntamála:
a. Til bókasafns Au.amtsins 500,00
b. - kvennaskóla í Húna-
vatnssýsiu .... 100,00
c. - kvennaskóla Eyfirð-
ínga 100,00
d. - bóka og áhaldakaupa 100,00
e. - Eiðaskólans .... 300,00
f. - Sigurðar Sigurðssonar 200,00
----------------- - 1,300,00
3. Til spitala á Seyðisfirði..............- 300,00
4. Tillag til Búnaðarfjelags íslands . . - 200,00
5. Ferðakostnaður Búnaðarþíngsfulltúa. - 350,00
6. Afborgun og vextir af láni úr lands-
sjóði, fyrir baðlyf...................- l,28S,oo
7. Borgun á skuld við reikningshaldara
frá fyrra ári vegna fjárkláðans . . - 1,012,00
8. Til leikfimisfjelags Eskifjarðar ... - 50,00
9. - óvissra útgjalda.....................- 500,00
Alls kr. 6,000,00
Frumvarp stjórnarinnar
um breytingar á stjórnarskrá okkar er nú komið fram.
Það er að öllu eins og ftmuvarp meirihlutans frá
þinginu í fyrra með því viðbótarákvæði í 1. gr., að
ráðgjafi okkar skuli búsettur í Rvík. 1. gr. fiv.
hljóðar þá svo:
„Konúngur hefur hið æðsta vald yfir öllum hinuin
sjerstaklegu málefnum íslands með þeim takmörkun-
um, sem settar eru í stjórnarskrá þessari, og lætur
ráðgjafann fyrir ísland framkvæma það. Ráðgjafinn
fyrir ísland má eigi hafa annað ráðgjafaembætti á
hendi, og verður að tala og rita íslenzka túngu.
Hann skal hafa aðsetur í Reykjavík, en fara svo oft
sem nauðsyn er á til Kaupmannahafnar, til þess að
bera upp fyrir konúng í ríkisráðinu lög og mikilvægar
stjórnarráðstafanir.
Landsjóður íslands greiðir laun og eftirlaun ráð-
giafans, svo og kostnað við ferðir hans til Kaup-
mannahafnar og dvöl hans þar.
Nú deyr ráðgjafinn og gegnir landritarinn þá ráð-
gjafastörfum á eigin ábyrgð, þángað til skipaður hefur
verið nýr ráðgjafi.
Ráðgjafinn veitir þau embætti, sem landshöfðíngja
hefur híngað til verið falið að veita."
í athugasemdum við frv. gerir ráðgjafinn tillögur
um breytíngar á skipun æðstu embætta í landinu,
semsamfara verða stjórnarfarsbreytíngunni, og áætlun
um laun hinnar nýu stjórnar. Hann ætlar að kostnaður-
inn þurfi ekki að verða meiri en hann nú eroggerir
ráð fyrir honum á þessa leið:
Ráðgjafinn hefur í laun....................kr. 12,000
Landritarinn...............................- 6,000
Tveir skrifstofustjórar, hvor 3,500 kr. og
sje annar þeirra gjaldkeri landsins . - 7,000
Til aðstoðar og skrifstofukostnaðar . . - 9,000
Alls kr. 34,000
Við afnám embætta þeirra sem niður leggjast
sparast þetta:
Laun landshöfðingja.......................kr. 13,000
Laun. landritara ..........................- 2,000
Skrifstofufje landshöfðíngja...............- 2,400
Laun 2. amtmanna...........................- 10,000
Skrífstofufje amtm.........................- 2,100
Laun landfógeta............................- 3,500
Skrifstofufje landfógeta...................- 1,000
Alls 34,000
Kostnáðurinn við þetta nýa fyrirkomulaag verður
þá ekki annar en ferðakostnaður ráðgjafans milli
Khafnar og Rvíkur, og svo, ef til vill, kostnaður við
íbúðarhús handa ráðgjafanum. Gert er ráð fyrir
skrifstofu í Khöfn til að annast afgreiðslu málanna
þar, en hana ætlar ráðgjafinn ríkissjóði að kosta.
Hiutafjelagsbánkinn Lög síðasta
alþingis • voru staðfest af konúngi 7. júní.
Hinir væntanlegu bánkastofnendur höfðu áður
lýst yfir, að þeir geingu að frumvarpi þíngins. Þar
með er þessu þrætumáli ráðið til lykta á hinn
heppilegasta hátt, og þarf eingar getur að því
að leiða, að þessi lög muni hafa í för ineð
sjer miklar breytingar til framfara íverslunarlífinu
hjer á landi og öllum viðskiftum manna á meðal.
0
Játvarður Bretakonungur var í
afturbata þegar síðast frjettist, með »Vestu«
nú fyrir fáum dögum.
0
LANDSHÖFÐÍNGI kom híngað austur með „Ceres"
í fyrradag og hjelt til Eskifjarðar, en þaðan til baka
aftur með Vestu í gær. Frú hans var með lionum
tíl Akureyrar og bíður hans þar.
0 •
DR. VALTÝR GUÐMUNDSSON kom híngað
með „Ceres" frá Reykjavík og verður hjer um tíma;
fer suður aftur með „Heklu" nálægt 20. þ. m. og
dvelur í Reykjavík um þíngtímann-
0
SPREINGISAND ætla þíngmenn hjéðan að austan og
að norðan að fara i sumar til þíngs, allir þíngmenn
Múlsýslúnga, báðir þíngmenn Þíngeyínga og Stefán í
Fagraskógi.
0
HUGLEIÐINGAR TOLSTOIS um ríki og
kirkju, sem nú koma út í þýðíngu hjer í blað-
inu, ættu menn að lesa með eftirtekt. Tolstoi
er frægastur allra núlifandi rithöfunda og hef-
ur á síðari árum feingist mikið við rannsóknir
á trúmálum og kirkjumálum. Ritgerðin er gefin
út sem sjerstök bók og er henni nú lokið
hjer í blaðinu.
0
»ÍSLANDS KULTUR ved Aarhundredskiftet«
heitir nyútkomið rit á dönsku, eftir dr. Valtýr
Guðmundsson. Það er gefið út með styrk frá
Carlsbergssjóðnum og útgáfan mjög vönduð,
með 108 myndum. Nánar verður þess getið
síðar.
0
STREINGLEIKAR heitir nýtt fcvæðasafn,
sem koma á út í ár á kostnað Björns Jónssonar
í Rvík, eftir Guðm. Guðmundsson.
0
KRÍNGUM JÖRÐINA telst mönnum nú til
að fara megi á 3 3 dögum, þegar Síbiríubrautin
er fullgerð. Frá St. Pjetursborg til Wladi-
vostok á xo dögum, þaðan til San Francisco
á 10 dögum; frá San Francisco til New York
á 41/* degi, frá New York til Bremen á 7 dög-