Bjarki - 09.01.1903, Page 3
BJ ARKI.
3
— „Mjerhefur dottið í hug að bregða mjer lítið eitt
burt dr bænum. . . hm. -.
— „Ójá, það er gott fyrir yður; skemmtilegt og
hressandi að Iyfta sjer upp."
— „Já, sjáið þjer til, jeg fer líklega alla leiðtiljön-
köbing."
— „Fallegur bær, gött fólk, vel klæddar stúikur.
Gjörið þjer svo vel að bera kveðju mína til skósóla-
leðursins, pylsusneiða að nafnbót, sem ætíð prýðir
hótelsborðið þar og sömleiðis til skugganna þeirra
Puck og C. G. W."*
— „Já. Pjer hafið þá ekkert á móti að jeg fari?"
— „Einganveginn; ferðist þjer eins mikið og yður
lýst."
„Nei, en hvað þjer eruð vingjarnlegur. Jeg hefði
ekki verið að ónáða yður, ef jeg hefði ekki verið
neyddur til að bregða mjer þetta i nauðsynlegum er-
indagjörðum. Jeg bið yður þúsund sinnum afsök-
unar. ..."
— "O, eingin ástæða!"
— „En því er nú svoleiðis varið, svoleiðis varið —
að jeg verð að hafa með smjer dálítið af peningum
til ferðarinnar"
. — „O, því er nú miður; ritstjórnarskúffan er sem
stendur alveg tóm; því er miður."
— „Jeg bið yður fyrirgefningar; en þjer misskiljið
m>g- Jeg á við mína eígin peninga og vildi, með
leyfi yðar, fá að taka af inneígn minni í Skánarbánk-
anum."
— „Já, eins og yður þóknast; mjer er svo hjartan-
lega sama um allt þetta.
— „Þúsundfaldar þakkir. En svo er eitt enn:
Sjáið þjer til, jeg hef viðskifti við allskonar fólk og
neyðist, því miður, til að selja vörur mínar ýms-
um mönnum sem ef til vill hafa ekki sem best orð
á sjer. Þessvegna vildi jeg biðja yður, ef svo kynni
að vilja til að einhver af frjettasendlum yðar hitti
mig í ekki sem bestum fjelagsskap —"
— „En, hvað á þetta að þýða, eruð þjer geinginn
frá vitinu, herra minn! Hvern fjandann varðar mig
um hagi yðar og ferðalag?"
En þá varð maðurinn reiður, dró heilan tug af
dagblöðum upp úr frakkavasa sínum, sýndi mjer
fregnirnar um strokumanninn frá Gautaborg og org-
aði framan í mig:
— "Haldið þjer að jeg kæri mig um að fá annað
eins í nasirnar og þetta? Haldið þjer ekki að jeg
þekki hverju menn geta átt von á hjá þessum „frjáls-
lyndu, sjálfstæðu og sannleikelskandi" blöðum ykkar?
Haldið þjer að jeg þori eftirleiðis að fara til baðanna
í Reppe án þess að skýra blöðunum fyrst frá því?
Þjér getið kannske sagt mjer hvar skrifstofa Búr.aðar-
tíðinda Suður- og mið-Svíþjóðar er? Það eru enn
15 mín. þángað til vagnlestin fer og jeg þori ekki
annað en að fá Iíka leyfi þess blaðs til ferðarinnar?"
— „Það leyfi get jeg gefið yður."
— „Þúsundfaldar þakkir. Enn aðeins eitt: Hve
leingi má jeg vera burtu án þess að blöðin telji
mig strokinn til Ameríku, eða segi að jeg hafi
drekkt mjer í Wettern út úr samviskubiti eftir ein-
hvern glæp?"
— „Svo leingi sem yður líst."
— „Þjer eruð alltof vingjarnlegur. Eru fjórir dag-
ar of lángur tími, eða sýnist yður að jeg ætti að
geta lokið mjer af á þremur?"
— „Segjum þá fjórir dagar."
— „Þakka yður fyrir. Enn áðeins eitt orð: „Þó
þjer finnið mig ekki nefndan í ferðamannalistanum í
Jönköbingblöðunum í kvöld, þá gerið þjer þaðfyrir
* Merki undir greinura í Jönköbingsblöðunum.
mig að skrifa ekkert um það í blaðið. Kona min
hefur leyft mjer að fara og jeg ætla að vera í Nessjö
í nótt. Verið þjer sælir, verið þjer sælir, og marg-
faldar þakkir fyrir viðtökurnar og ferðaleyfiö!"
Komi menn nú og segi að blöðin sjeu ekki stór-
veldi.
Eldur í Solvang;.
A jólanóttina kl. 9—10 kom eldur upp í
Solvang, íbúðarhúsi Sig. Jóhansens kaupmanns.
Hafði kviknað í lofti í suðurenda hússins út
frá skorsteinspípu. Húsið allt fylltist skjótt
af reyk, en þó varð miklu af húsgögnum og
munum komið út. Eldurinn læsti sig milli
lofta. Veður var stillt og þusti fólk að úr
öllum áttum. Slökkvitólunum var fljótt komið
við og vegna þess varð eldurinn stöðvaður.
An þeirra hefði húsið brunnið til kaldra kola.
Skemmdirnar á húsinu eru metnar 800 kr.
Siónleikírnir.
Æfintýri á gaunguför hefur nú verið leikið
tvisvar og verið í bæði skiftin vel sótt.
Leikendurnir eru þessir: Andr, Rasmussen
skrifta-Hans, Eyjólfur Jónsson Krans Kammeráð,
frk. Guðrún Kristjánsdóttir frú Krans, frk.
Guðrún Gísladóttir Lára, frk. Elín Matthías-
dóttir Jóhanna, Björn Stefánsson Svale assessor,
Helgi Valtýsson Ejbæk, Þórarinn Þórar-
insson Herlöv, Jón Olafsson Vermundur,
Hinrik Dal Pjetur bóndi.
Þau Andrjes Rasmussen, Eyjólfur Jónsson
og frk. Guðrún Gísladóttir hafa oft leikið
þessar sömu persónur áður Og ætíð gert það
vel. Hinir leikendurnir hafa ekki leikið áður
í æfintýrinu, en yfir höfuð hefur leikurinn tek-
ist vel. Sjerstaklega er Jóhanna mjög vel
leikin af frk. Elínu Matthíasdóttur. Það er
eins og hún væri alvön leiksviðinu og auðsjeð,
að hún hefur mikla leikkonuhæfileika.
»Kvik«-fjelagið ætti að sýna Æfintýrið oftar
í vetur. Nú kvað það vera að hugsa um
að taka »En F allit« (Gjaldþrota) eftir
Björnson, og mundi þeim leik ekki verða síður
tekið.
StórveSur
fór yfir suðvesturlandið 14. nóv. í haust.
Þrjár kirkjur fuku: í Keflavík, í Saurbæ á
Kjalarnesi og á Hvanneyri. Saurbæjarkirkja
fauk út úr kirkjugarðinum, en kom rjett niður
og kvað vera ekki mikið skemmd. Hvanneyrar-
kirkja brotnaði mjög og Keflavíkurkirkju, sem
ekki var fullsmíðuð, kvað verða að rífa niður
til grunns.
Einnig urðu til og frá skaðar á bátum, hlöð-
um og fieiri húsum.
Mjölnir
kom frá útlöndum á mánudagskvöld, hafði
feingið mjög vonda ferð og verið Ieingi á
leiðinni. Lítið eitt hafði skemmst af vörum
sem hann flutti hingað, mjöl til Sig. Johansens,
og var það selt hjer á uppboði í gær.
Mjölnir lagði út á miðvikudagsmorgun
áleiðis norður, en varð að hverfa aftur vegna
óveðurs og sjógángs; hjelt aftur á stað í gær-
morgun.
Með Mjölni komu frá útlöndum I. M. Han-
sen konsúll og Þorsteinn Jónsson kaupm. á
Borgarfirði.
Breiðdalsbrennan.
Sturla Vilbjálmsson, sem framdi innbrotið
og brennuna á Þorgrímsstöðum í Breiðdal í
hittifyrra haust er nú dæmdur í landsyfir-
rjetti í 5 ára betrunarhúsvinnu og rúmra 2200
kr. útlát í skaðabætur, þar af 1800 kr. til
Jóns bónda á Þorgrímsstöðum, ennfremur f
varðhaldskostnað og málskostnað.
Austramiðinn.
Nýlega er fallinn dómur f máli, sem Arni
Jóhannsson sýsluskrifari höfðaði í sumar móti
Skafta Austra-ritstjóra út af grein í 19., tbl.
Austra f. á. Skafti dróttar því þar að Arna,
að hann hafi falsað miða, sem fannst innan f
Austra einu sinni í sumar á Refsmýri á Hjer-
aði. Síðan vildi Skafti ekki kannast við þessa
aðdróttun. Enda getur eingum, sem miðann
sjer og þekkir rithönd Arna, komið til hugar
að hann hafi skrifað hann.
Um þetta urðu töluverðar skærur í blöð-
unum hjer í sumar, málaferli og vitnaleiðslur,
sem nú er lokið á þessa leið :
Skaíti er dæmdur í 50 kr. sekt til landsjóðs-
eða 15 daga einfalt fángelsi og 12 kr. máls-
kostnað, en hin kærðu ummæli dauð og ómerk.
Skólarnír-
A læknaskólanum eru nú 14 nemendur, á
prestaskólanum 11, á latínuskólanum 94, á
stýrimannaskólanum 70, á lýðháskólanum nýa
í Rvík 20, á Flensborgarskólanum 34, ágagn-
fræðaskólanum á Akureyri 46, á Reyjakvíkur
kvennaskóla 42 stúlkur, á barnaskólanum í
Rvík 400 börn.
Hlutabánkinn.
Eins og sjá má á auglýsíngu bánkastofn-
endanna, Arntzens og Varburgs, á öðrum stað
hjer í blaðinu, er nú svo lángt komið að Is-
lendingar geta farið að skrifa sig fyrir hlutum
í bánkafyrirtækinu. Og æskilegast væri að
hluttaka landsmanna yrði sem mest, En vegna
hins almenna fjeleysis hjer á landi hljóta þó
framlögin að verða miklu meiri frá útlöndum
í byrjuninni.
En stórt framfaraspor er stígið með stofn-
un þessa nýa bánka, og útibúanna frá honum.
Það munu menn skjótt reyna.
Breytína á aukapóstsferð.
Sú breyting hefur nú um áramótin verið
gerð á aukapóstferðunum hjeðan, að Mjóa-
fjarðarpóstur fer eftirleiðis til Norðfjarðar, og
er þar með feingið beint samband þá leiðina
við Eskifjörð. Brjef hjeðan .til Norðfjarðar,
Reyðarfjarðar, Eskifjarðar og Fáskrúðsfjarðar
eiga því hjer eftir að sendast með Mjóafjarð-
arpósti, en ekki Vopnafjarðarpósti, eins og
hingaðtil hefur verið.
Þetta var nauðsynleg breyting, eins og Bjarki
hefur oft tekið fram áður.
Samgaungur.
Aætlanir er nú komnar um ferðir bæði Sam-
einaða gufuskfjel. og Egils þ. á,
Egill á að fara frá Stavángri 20. þ. m. til
Færeyja og þaðan beint hingað til Seyðisfjarð-
ar og koma hingað 3. febr. Ef til vill fer
hann þá til Eyjafjarðar, en ekki nema ef nauð-
syn krefur; annars beint hjeðan til Noregs aft-
ur 5. febr.
Aætlun Sam. gufusk. er eins og áður. Vesta
kemur hingað fyrst frá útlöndum 12. mars.
Aðallandpósturinn fer hjeðan 18. þ. m.
Veðrið.
Síðan fyrir jólin hefur verið umhleypíngatíð,
Snjór er nú nokkur kominn.
Bundin nöfn.
Gísli í Skörðum skrifaði utan á brjef þessa
vísu:
Góðir menn brjefið beiðast Ægi svo ferðaflugi
bera nær ferðir gera fángelsi leyst í Vánga
ofan elds yfir leyfar Ari þar fagur eirir
og æð Fróns þá hvikul í mergð Hamdis
blæðir. sverða.
í vísunni er tiltekin leiðin, sem brjefið á að fara;
síðan er þar kvennmannsnafn, bæjarnafn og sveitar-
nafn.