Ísland


Ísland - 08.01.1898, Blaðsíða 3

Ísland - 08.01.1898, Blaðsíða 3
I8LAND. 3 Þessar nmboðsjarðir í Iijósar- og Gull- bringusýslu fást til ábúðar í næstk.fard. og má semja um ábúðina við sýslumann- inn í nefndum sýslum fyrir 20. þm.: 1. Hagakot í Garðahreppi, að dýr- leika 8,3 hndr. n. m. Landskuld40 ál., leigur 20. pd. smjör. 2. Arn«rnes í sama hr. að dýrl. 12,8 hndr. n. m. Landsk. 120 álu., leigur 20 pd. smjörs. 3. Digranes í Seltjarnarneshreppi að dýrl. 8,7 hnbr. n. m. Landsk. 60 áln., leigur 20 pd. smjörs. 4. Lambhagi i Mosfellssveit að dýrl. 13,9 hndr. n. m. Landsk. 80 áln., leig- ur 40 pd. smjörs. Mývetningadagur 22. júní 1896. Hann var brot og byrjun af „Djóðminningar- deginum“. Hann var haldinn á „Mann- höfðanum" hjá Grænavatni. Þar er fagurt ýtsýni, og þar voru nær 200 manns saman komnir. Sólin skein í heiði og hellti geislum sínum gullnum og fríðum yfir Ijallla- hringinn og sveitina, hraunin og vatnið og heiðina. i Þar voru flutt kvæði: Fyrir minn- Mývatnssveitar (Jðn Hinrikson) og sam komunni (Jón Þorsteinsson). Tölur voru fluttar: Mývatnssveit (sr. Árni). ísland (Pjetur á Gautl.). Yestur-íslendingar (sr. Árni), og margt flaira var flutt og framborið fallegt og skemmtilegt frá „ræðustólnum, er tyllti sjer efst á Höfð- anum með blaktandi I'álkann í bláa feldinum. Þá var sungið margt fagurt kvæðið og þreyttar kappreiðar, sund, glímur og knattleikur. Állir fóru glaðir og ánægðir af fund- inum, þegar sólin gekk til viðar, og hjetu á sig, að hittast aptur með næstu vorjafndægrum. En þá náði „kíghóst. inn“ landfestu og varð svo ekki af því. Þessar vísur bárust hingað ofan yfir Hvítá: Yestmenningar vita flest, Valtýr frætt þá hefur, en Eeykvíkingar bita best bitana’ er þingið gefur. Þingeyingar þæfa best, þar er Jón í Múla, en ísfirðingar monta mest og miða allt við Skúla. Borgfirðingar bera sig að beita ganghjólunum, en Húnvetningar standa’ í stað og státa’ af langöfunum. Reykjavík. Nýja árið gekk vel í garð hjer sunn- anlands. Á nýársdag var hið beBta veð- ur, logn og hægt frost, og voru Beyk- víkingar á ferli allan daginn til að óska hver öðrum gleðilegs nýárs og þakka fyrir gamla árið. Á miðvikudaginn voru kosnir endur- skoðunarmenn bæjarsjóðsreikninganna til næstu 5 ára: Jón Magnússon landritari með 27 (öllum) atkv. og Björn Ólafsson augnalæknir með 20 atkv. Chr. Zimsen konsúll fjekk 7 atkv. Sjónleiki hjeldu skólapiltar 5 kvöld milli jóla og nýárs í leikhúsi kaupm. W Ó. Breiðfjörðs. Eitt kvöldið seldu þeir aðgaungumiða og rennur ágóðinn af þvi í bræðrasjóð. Búmar 80 kr. komu inn. Það sem þeir ljeku voru smáleikir tveir þýddir úr dönsku og svo kafli úr „Ánd- býlingunum" eptir Hostrup. Þar var Gyðingurinn gangandi mikið vel leikiun og ijek hann Stefán Björnsson frá Döl- um í Fáskrúðsfirði. Hjálpræðisherinn hjelt að vanda skemmt- un fyrir fátæk börn rjett tyrir jólin í kastala sinum. Þar voru saman komin um 150 börn og voru sett að snæðingi við langborð. Jólatrje var þar stórt og laglegt og geingu börnin í skrúðgaungu í kringum það, en á meðan saung her- inn. Skemmtunin fór vel fram. Sjera Þórhallur Bjarnarson flutti jólaræðu til barnanna. Trúlofuð eru: Magnús verslunarmaður Jónsson í Arabæ og Ólína Hafliðadóttir, Vilhjálmur Gíslason og Begína Helga- dótdr, Guðrn. Sigurðsson og Bagnh. J. Valby, Valdimar Sigurðsson og Kristín Kristinsdóttír. Þrír hinir síðastnefndu eru allir á stýrimannaskólanum. Magnús Magnússon leikfimiskennari, sem styrkinn fjekk frá þinginu í sumar, byrjar nú á ókeypis tilsögn í fimleikum og hefur feingið Ieikfimishús barnaskól- ans til að halda æfingarnar í. Á aðfangadagskvöld jóla andaðist Anna Jakobsdóttir í Skuld, kona Björns skip- stjóra Sveinssonar. — Nýlega er og dáin hjer ung stúlka, Margrjet Jónsdóttir frá Melum á Kjalarnesi. Skautasvell hefur verið gott á tjörn- inni stundum undanfarandi, en sjaldan haldíst leingi í einu. Þó hafði það hald- ist nú fyrir skömmu eitthvað vikutíma. Þá bauð skautafjelagið út liði sinu og kom það saman á fundi að kvöldi dags í hreinu og björtu frostveðri og ákvað kapphlaup á ísnum næsta dag. En það hefur opt sýnt sig, að skautafjelagið er í ekki hyllí hjá veðranna forráðanda og kom það enn fram, því næsta dag var komið helliregn og varð því ekkert af kapphlaupinu. 7 skólar eru nú hjer í bænum að meðtöldum barnaskólanum, og munu nem- endur við þá alla vera nokkuð á 6. hund- rað. Fjölsóttastur er auðvitað barnaskól- inn. Næst honum geingur latínuskólinn; þar eru nú rúml. 100 lærisveinar. 1 öðrum flokki verða stýrimannaskólinn og kvennaskólinn. Það mun vera líkt um nemenda fjölda á þeim. Þákoma lækna- skólinn og hússtjórnarskólinn, 16 stúdent- ar á læknaskólanum og milli 10 og 20 námsmeyar á hússtjórnarskólanum. Prest- askólinn er fámennastur; þar eru 9 stúdontar. Stýrimannaskólinn er nú fjölsóttari en nokkru sinni hefur áður verið; eru þar nú nálega 50 lærisveinar, og mundu vera fleiri ef hægt væri að veita fleirum inntöku húsrúmsins vegna; en nú er von- andi að rætist úr þvi er hið nýja skóla- hús er þingið veitti fje til í sumar, verð- ur reist. Stýrimannaskólinn er sjálf- sagt einhver nytsamasti skóli landsins. Þær stórkostlegu framfarir, er þilskipa- útvegurinn hefur tekið hjer sunnanlands hin síðari árin hefðu eigi átt sjer stað ef hann hefði eigi verið, og því að eins má vænta frekari framfara í þá átt, að eigi verði skortur á hæfum mönnum til þess að stjórna þilskipunum þótt þeim sje fjölg- að að mun, og það er stýrimannaskólans að sjá fyrir því. Markúsi skólastjóri Bjarnasyni er það mest og best að þakka að skólinn er til og hefur getað fullnægt svo tilgangi sínum, en raun hefur orðið á Hann byrjaði á því fyrir mörgum árum að kenna ungum mönnum stýrimanna- fræði, og síðan skólinn var stofnaður, hefur hann veitt honum forstöðu með óþreyt- andi alúð og dugnaði og lagt á sig meiri kennslu en dæmi munu til við nokkurn skóla hjer á landi. Það var því mjög makilegt og vel til fundið, er lærisveinar skólans færðu honum að gjöf í byrjun þessa síðasta árs, sem ætla má að kennsla fari fram í hinu núverandi skólahúsi, drykkjarhorn búið, príðissnoturt, og var letrað á: „Gleðilegt árl Til M. F. Bjarna- sonar, skölastjóra, frá skólafjel., 1. jan. 1898. Bæjarbúar í Beykjavík voru: 1801 . . 397 1855 . . 1354 1835 . . 639 1860 . . 1444 1840 . . 690 1870 . . 2024 1845 . . 961 1880 . . 2567 1850 . . 1149 1890 . . 3886 1895 . . 4209 Fólkstalan í bænum tvöfaldaðist fyrst frá 1801 til 1835; þá aftur árin 1836 til 1853; og loks árin 1853 til 1879. Hettusóttin er nú á gangi hjer í bæn- um; í latínuskólanum eru margir lagstir. Guðs nafn lagt við hjegóma. Það er nú sjálfsagt, að drottinn fyrir- gefur prestunum miklu meira en öðrum, enda hafa þeir leingi skákað í því skjól- inu. Þó er það að vonum, að margir kunni því illa, að heyra presta sína hafa hafa guðs nafn í fíflskaparmálum, eink- um sje það gert á almannafæri og heyri margir. Nú sem stendur flýgur sú saga um bæinn, um sjera Jón HelgaBon, að hann hafi ekki alls fyrir laungu hneyxl- að viðkvæm eyru margra manna í söfn- uðinum með gálauslegu flÍBjungstali á almannafæri, þar sem hann nefndi sjálf- an sig með guðs nafni. Svo stóð á að klerkurinn kom inn á pósthús með fang- ið fullt af „Ljósi“ og ruddíst um fast. Sagði þá einhver, að mikið lægi nú á, eða eitthvað í þá átt. „Já“, sagði Jón, „Ljóssins faðir hefur í mörg horn að líta! Nú þarf hann að bregða sjer austur í Bángárvallasýslu". Nú er „ljóssins fað- ir“ viðtekið nafn á hinum „eina og sanna" guði, enda hneixlaði þetta alla sem á heyrðu nema prest sjálfan; hann gekk burt með gleiðgosalegu brosi og þóttist góður af. Undanfarandi hefur verið töluverður gauragangur meðal guðfræðinga hjer i bænum, allt út af ofurlitlu, marklausu og meinlausu kvæði, sem sungið var í stúdentafjelaginu á messu „hins heilaga" Þorláks biskups. Út úr því hefur sjera Jón Helgason skrifað greinarkorn i „Verði ljós“-ið, sem ekki þykir sem allra prestslegast. Sumir fjelagsmenn hafa viljað geraveðurút af greininni ogjafn- vel draga „Ljóssins fóður“ fyrir lög og 4 Eina nótt kom t.d. maður til hans, másandi og hvásandi, og sagði honum, að einn skóggæslumaðurinn lægi við Kanje-ána örendur; hausinn var allur mol- aður öðru megiu, eins og brotið skurn á eggi, sagði hann. Gisborne iagði af staðídögun til þess aðsvipast um eftir morðingjanum. Likamsæfingamenn einir, og einstaka sinnum ungir hermenn líka, geta feíngið á sig það orð, að þeir sjen góðir veiðimenn; veiðiskapurinn heyrir til dagiegra starfa skógarvarð- anna, og fara þar eingar sögur af. — Gisborne fór fótgangandi þangað sem líkið lá; ekkjan stóð þar grátandi, og tveir eða þrír menn voru að reyna að rekja sporin eftir dýrið, sem hafði drepið hann. „Það er sá rauði, sem hefur gert það“, sagði einn þeirra. „Jeg vissi það leingi, að hann mundi einhvern tíma ráðast á menn, og þó er nóg af villidýrum handa honum að jeta núna. Hann gerir þetta af eintómri vonsku“, „Sá rauði liggur þarna upp undir klettunum bak við viðarrunnana“, sagði Gisborne. Hann kannaðist við tígrísdýrið, sem þeir höfðu grun á. „Ekki núna, sahib1, ekki núna. Núna tryllist hann fram og aftur Munið þjer eftir því, að tígrisdýrið drepur allt af þrjá í skorpunni, þegar það er byrjað. Það verður hamslaust og tryiit þegar það kemst í mannsblóð. Það getur vel verið, að það liggi núna rjett hjá okkur þessa stundina, sem við erum að tala um það“. „Það kann að vera farið til næsta skógsýslunarmannsbyrgis“, sagði ann- ar. „Það er ekki nema fjögur ta2 hjeðan. — Hæ, hæ, hver kemur þarna?“ Hinir sneru sjer við; sáu þeir þá mann koma gangandi niður eftir árfar- veginum, er var þur; hann hafði dúk um mittið, en var ber að öðru leyti. Hann var með hvítan krans úr vafjurtum á höfðinu. Hann gekk svo ljett og hljóðlaust á grjótinu að Gisborne þótti undrum sæta, og var hann þó van- ur við, að skóggæslumennirnir væru ljettstigir. Þegar kann kom tii þeirra, ljet hann vera að heilsa þeim. „Tígris- dýrið, sem drap manninn“, mælti hann, „fór að fá sjer að drekka og liggur núna sofandi undir kletti einum hinu megin við hæðina þarna“. Málrómur hans var hvellur og skær sem klukknahljómur og skír og greinilegur; var hann í alla staði næsta ólíkur skrækrómi þeim, sem fleatír innbornir Indverjar hafa, og þegar hann leit upp var svipurinn og yfirbragðið því líkast sem eingils væri. Ekkjan hætti snöggvast að gráta og kveína yfir ') Sahib þýðir herra, og ávarpa Indverjar Einglendinga þannig, einnig yfirboðara sína og heldri menn. s) Leingdarmál tiðkað á Indlandi; 1 koss er ca. 2 kílómetr. (ruml. Vi ár d. mílu). Mowgli. Eftir lludyard Kipling. Éinna þýðingarmesta deildin i Indlands stjórn er sú, sem umsjón hefur yfir skógunum. Hún stendur fyrir allri skógargræðslu á Indlandi. Hennar þjónar heyja hildarleik við roksandshryggina, setja girðingar til beggja hliða við þá og stíflugarða að framanverðu og klæða þá stórgerðu grasi og furu- ungviði, svo sem fyrir er mælt í Nancy-reglunum. Þeir bera ábyrgð á öllu timbri ríkisins í Himalaya hjeruðunum, og þeir hafa þá líka á samviskunni hálsana gróðurlausu, sem eru alsettir skurðum og djúpum skorningum eftir missirisstaðvindana, svo að mesta raun er að horfa á þá; — hvert einasta jarðfail, hver einasta sprunga er þegjandi vottur um það, hverju hirðuleysið fær til vegar komið. Þeir gera tilraunir til þess að rækta allskonar útlend- ar trjátegundir og leggja einkar mikla stund á að gróðursetja bláa gúmmí- trjeð og rýma brunasóttinni á brott ef auðið væri. Aðal-starf þeirra niðri á sljettunni er fólgið í því, að sjá um, að allt skurðabeltið, sem liggur í kring um viðlöguskógana, sje í góðu lagi, til þess að þangað megi reka kvikfjár- hjarðir þorpsbúanna, þegar þurkarnir koma og búfjenu liggur við horfelli. Þeir höggva ósköpin öll af við með fram járnbrautum þeim, sem kolum er ekki brennt á. Þeir reikna arðinn af gróðurreitum sínum með 5 decílmölum. Þeir eru læknar og yfirsetukonur þeirra, sem búaístórj eikiskógunum í Efra- Birma, og þeir líta líka eftir skógarkjarrinu fyrir austan sig og gullepla- lundunum fyrir sunnan; og sí og æ eru þeir í peningahraki. Skyldustörfum skógvarðarins er þannig varið, að þau verða sjaldnast unnin í nánd viðþjóð- brautina eða skipulegar vinnustöðvar og þess vegna fær hann þekkingu á fleiru en trjáræktinni einni saman. Hann kynnist fólkinu, sem í skógkjarr- inu býr, útilegumönnum — og lifnaðarháttum þess og rekst á tígrisdýr, bjarndýr, ljebarða, villihunda og dádýr — ekki einu sinni eða tvisvar á slark- veiði, heldur þá og þegar, er hann er að störfum sínum. Hann er leingst af á hestbaki eða í tjaldi; honum þykir vænt um hin nýplöntuðu trje og hann er góðkunningi og lagsbróðir hinna svakafeingnu skógsýslumannn og að

x

Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.