Ísland - 08.02.1898, Page 2
22
ISLAND.
„ÍSIiAKTI>“
kemnr ót á hverju m þriðjudegi.
Áskrift bindandi 6 máuuði, í Evík 3 mán.
Kostar fyrirfram borgað til útg, eða pðst-
stjórnarinnar 3 kr. 20 au., annars 4 kr.
1 Rvík 3 kr., erlendis 4 kr. 50 au.
Ritst j óri:
Þorsteinn Gíslason
Laugaveg 2.
Reikningshaldari og afgreiðslumaður:
Hannes Ó. Magnússon
Austurstræti 6
Prentað i Pjelagsprentsmiðjunni.
hver hin fegursta kirkja í París,
næst Notre-Dame kirkjunni. Hún
er gjörð með gotnesku lagi, og
það er St. Antoine-kirkjan. Eins
og allar kirkjur páfatrúarmanna,
er hún opin allan daginn og fólk
streymir þar út og inn. Jeggeng
líka inn, skoða í flýti hliðarkap-
ellurnar og hinar steindu rúður;
en með því að jeg verð að tala
um tvær aðrar merkari kirkjur,
læt jeg hjer staðar nema, fiýti
mjer til járnbrautarstöðvarinnar
St. Lazarne, og tek mjer þar sæti
í almenningsvagni, sem flytur mig
til ráðhússins Hotel de Ville. Jeg
hef leyfisseðil til að skoða það.
Það er sýnt á hverjum degi kl.
2—3 e. m. Þennan dag voru þar
komnir um 20 manns tii að skoða
það. Eins og góðir sauðir, sem
fylgja hirði sínum, eltum vjer um-
sjónarmanninn úr einum sal í ann-
an. Allir eru salir þessir prýddir
litmyndum, bæði loft og veggir,
og yrði það oflangtmál, að nefna
meistara þá, sem að þessu hafa
unnið og vinna enn, því að ráð-
húsið er ekki fullgjört enn að inn-
ann. Mjer þótti borðsalurinn enn
fegri en málstofan sjáif; hann er
skreyttur yndislegum myndum, og
eins mÍDnist jeg með aðdáun lit-
myndar eftir Delaroslie í einu
nefndarherberginu: „Sigurvegarar
Bastillunnar" (Les vainquairs de
la Bastille). Til að slá eins og
botninn í allt saman, var oss sýnt
hið stóra skrautker (Vase), sem
Alexander 3. Bússakeisari gaf Par-
ísarborg. Ker þetta er úr purp-
urasteini (Porphyr), meir en manns-
hæð að stærð og svo þungt, að
rífa varð upp gólfið og hlaða upp
steinlímdan stöpul undir það til
að standa á. Það var gaman að
sjá hátíðarsvip umsjónarmannsins,
meðan hann var að segja oss frá
þessu. Hann bar fram nafn Bússa-
keisara, eins og hann væri að tala
um guð. Það er ótrúlegt, hversu
hrifnir Frakkar eru af Bússum.
Bússneska merkisveifan blaktir
þar alstaðar við hliðina á hinni
frakknesku. Myndir af Bússa-
keisara, drottningu hans og dóttur
blasir við í hverju húsi, jeg tala
nú eigi um í gluggum bóksölu-
manna. (Pramh.)
Þóra Friðriksson.
Uppreisnin á Indlandi.
Þegar ófriðurinn var milli Afg-
ana og Englendinga, stakk Lytton
lávarður, jarJ Bretadrottningar á
Indlandi, upp á því, að landið
milli Sudas og nokkur önnur hjer-
uð milli Afganistan og Indlands
væru gerð að nokkurs konar her-
geira (Militærgrændse) til að
tryggja friðinn. Þessi uppástunga
fjekk tram að ganga og ákveðið
var að þessi lönd skyldu vera
hlutlaus (neutral); þó tóku Eng-
Iengingar undir sig Kaiberskarð-
ið til þess að tryggja sjer leiðina
inn í Afganistan, ef Bússar sæktu
sæktu þangað suður eftir meira
en góðu hófi gegndi. Eftir þetta
verður ekki annað sjeð,en meinlaust
hafi verið milli Afgana og Eng-
lendinga þar syðra. En öðru
máli er að gegna með hergeir-
ann. Þar búa ýmsir Þjóðflokkar
svo sem Mohmandar, Madakelar,
Orakzaiar, Afridar o. fl. Eru þeir
að mestu óháðir Englendingum,
enda hinir römmustu fjandmenn
þeirra. Fjallaþjóðir þessar eru
ósiðaðar og fullar trúarofsa, og
vilja heldur vera í vinfengi við
Afgana, sem eru trúarbræður
þeirra, því hvortveggja játa Mú-
hameðstrú. Það hafa ávallt verið
smáskærur milli Engiendinga og
þjóðflokka þessara, en slíku hefir
litil efiirtekt verið veitt fyrr en
nú, enda hafa þeir hafið nú upp-
reisn, er allóþægileg er fyrir Eng-
lendinga. Það leikur og grunur
á því, að bak við uppreisnar-
mennina standi Emírinn af Afg-
anistan — hann mun hallast tals-
vert að Bússum — og blási að
kolunum. Enska stjórnin ljet og
spyrja hann um afstöðu hans í
þessu máli, en hann kvaðst mjög
reiður uppreisnarmönnum, en —
um sama leyti seldi hann þeim
80,000 byssur fyrir 2 kr. stykkið.
Sem von er gast Englendingum
ekki að þessum aðförum emírsins
og gerðu fyrirspurn til hans, en
hann svaraði allra-undirgefnast,
að byssurnar hefðu verið ónýtar
og honum hefðí því verið sama
hver keypti þær. En"’ eins og
raun hefði gefið vitni um, hafa
byssurnar alls eigi reynst fjalla-
búum ónýtar.
Þau voru upptök uppreisnar-
innar, að Madakelarnir neituðu
að gjalda Englendingum skatt og
var það að áeggjan eins af prest-
um þeirra, er nefnast „Mullah“.
Englendingar brugðu við skjótt
og sendu her þangað til að heimta
skattinn, en fjallabúar rjeðust á
herinn á næturþeli og strádrápu
hann. Sendu þá EnglendÍDgar
enn á ný móti þeim 8000 manna
frá Peschawar, aðalborginni þar
um slóðir; en Madakelar voru
hyggnari en svo að mæta þeim
flokki á bersvæði og bjuggust því
fyrir í fjöllunum og gjörðu smám-
saman áhlaup á enska Iiðið og
unnu því einatt tjón. Skömmu
síðar var hafin uppreisn norður í
Swatdalnum og gjört áhlaup á 2
enska kastala þar (Chakdara og
Malakand) og svo þreingt að setu-
liðinu þar, að það var að því
komið að gefast upp, þegar Blood
hershöfðingi kom með hjálparlið
frá Peschawar 30. júlí og tókst
hon-um að bægja ubpreisnarmönn-
um burt og upp í fjöllin. Eu nú
breyddis) uppreisnin óðum út og
fyrstu dagana í ágúst gripu
Mohmandar til vopna og ráðast á
Shabkadar-borg og náðu þeir
henni og brenndu. En kastala
þeim er vernda skyldi borgina,
tókst þeim ekki að ná, enda kom
Ellis hershöfðingi næsta dag með
her manna og átti orrustu við
uppreisnarmenfi og vann sigur.
Þótti mönnum nú, sem uppreisn-
in væri bæ!d niður, en því fór
fjarri, því að í miðjum ágúst
mánuði gripu tveir öflugusiu þjóð-
flokkarnir til vopna Afridikar og
Orakzaiar. Hinir fyrnefndu rjeð-
ust að Kaiberskarðinu, sem Eog-
lendingum reið mest á að hafa á
valdi sínu, ef þeir vildu blanda
sjer í mál manna í Afganistan og
meina mönnum innför í Indland.
Vestan við skarðið er sterkur
kastali Lundi Kotal, en að aust-
anverðu tveir, Ali Musijd ogMaude;
og eftir skamma stund tókst upp-
reisnarmönnum að ná þeim á sitt
vald. Glrunur leikur á því að
setuliðsmenn hafi svikið Englend-
inga, því að setuliðið er að mestu
innfæddir menn þar í landi; en
eigi er full vissa fengin fyrir
slíku enn. Um sömu mundir
höfðu Orakzaiar brotist gegnum
Koramdalinn og tekið þar nokkra
kastala og voru komnir nálægt
Teschawar.
Sem von var fór nú Englend-
ingum ekki að verða um sel.
öeorg White, yfirforingi bresk-
indverska liðsins þar eystra, sendi
hverja herdeildina á’fætur annari
þar norður eftir og jvoru þangað
alls sendar ínm 60,000 manna.
Foringi þar á landamærunum var
skipaður William Lockhard; en
hann var þá í London og kom
ekki til hersins fyr en seint í
seftember. Hann er maður dug-
andi og hefur sýnt allmikla
hreysti af sjer fyrr. Ófriðnum
hjelt fram"'og ýmsum veittíbetur.
Fyrst var flokkur manna gegn
Orakzaium og framsókn þeirra
stöðvuð. EIIis hjelt móti Afrid-
um, en Blood fór mót Momöndum
er aftur höfðu rjett við, enda
gerðist nú einnjaf prestum þeirra
foringi þeirra. Kom , til orrustu
milli þeirra og nokkurs hluta af
liði Bloods í Bambatskarðinu 16.
seft. og biðu enskir mikinn ósig-
ur; hörfaði þá Blood undan, en
átti þó orrustu tveim dögum seinna
en hvorugur bar þar þann sigur
úr býtum, er vert sje um að tala.
Ellis hershöfðingi fór þá með 6000
menn til hjálpar Blood og áttu
þeir orrustu við uppreisnarmenn
í Bajaur, skammt fyrir norðan
Peschawar, 23. seft. Mohmandar
biðu ósigur og flýðu víðsvegar,
en enskum tókst að ná ýmsum
borgum og hagkvæmum stöðum
á sitt vald. Töldu menn að með
þessu væri lokið ófriðnum frá hlið
Mohmanda. Þá höfðu og Eing-
lendinga veitt góðan styrk kast-
alanum Quetto, er liggur við
norðurtakmórk Betschistans og
hefur sá kastali varist vel, þótt
hann sje umkringdur af fjendum
og liggi mitt í landi þeirra.
Þá er í annan stað að segja
frá fLkk Eliss. Hann hafði
skundað til móts við Blood, en
meðan höfðu sveitir þær, er hann
hafði skilið eftir undir forrustu
Biggs til varnar gegn Afridum,
þokað fyrir þeim, enda höfðu
Afridiar og Orakzaiar sameinast
og bjuggust sem bezt fyrir. En
um þessar mundir kom Lockhast
til Peschawar og bjóst nú að taka
til sinna ráða. Tók hann sig upp
frá Kohat 10. okt. með 11,000
enskra manna og 24,000 inn-
fæddra og bjóst til að taka Sem-
paghaskarðið, en eigi var það
Iaust fyrir. Var mikill bardagi
um það og stód i tvo daga (28.
og 29. okt.) og náðu Englending-
ar loks skarðinu, einkum fyrir
góða framgaungu Westeamotts
hershöfðingja. Hörfuðu þá Afri-
diar norður á við, en Lockhart
hafði skipað svo fyrir að liðsflokk-
ur komi frá Pechawar og rjeðst
hann norðan ’að uppreisnarmönn-
um, en hann sjálfur skyldi sækja
sunnan að. En þessi ætlun brást;
að vísu gjörði Westeamott, sá er
íyr var nefndur, áhlaup að þeim
9. nóv. en varð frá að hverfa og
veittu uppreisnarmenn honum
harðar búsifjar á leiðinni aptur
til aðalhersins. Meðal annars
drápu þeir eina sveit manna gjör-
samlega. Þó náði Westeamott
nokkrum dögum síðar Datoiskarð-
iuu, en þá urðu Englendingar að
fara að halda í austur í leið apt-
ur, sakir snjóa og kulda; en upp-
reisnarmenn rjeðust á þá, er þeir
sáu sjer fært og varð hörð rimma
milii þeirra 11. desember. ~ Biðu
Englendingar þar allmikið tjón.
Hafa nú Einglendingar sest í
vetrarherbúðir þar eystra og bíða
þar til vors og mun þá ófriðurinn
hafinn að nýju. En cigi er sjeð
fyrir endann á þessari uppreisn,
því að þó enskir hafi æfðari liðs-
mönnum á að skipa og betri út-
búning að öllu leyti, þá eru þeir
landslaginu ókunnari en innfæddu
mennirnir og illt við að eiga að
heyja ófrið í fjöllum, þar sem
uppreisnarmenn hafa vígstöðvar
sínar.
Eftir því, sem ensk blöð segja,
hafa fallið af Einglendingum 62
sveitarhöfðingjar og 272 hermeDn,
en særðir eru 68’, sveitarhöfðingjar
og 272 hermenn, en af uppreisn-
armönnum eru fallnir 262 menn
en særðir 657. Þó vita menn ei
með vissu, hvort þær tölur sjeu
rjettar að því er uppreisnarmenn
snertir.
Frá fjallatindum
til fiskimiða.
Það var í orði í fyrra, að hr. otto
Watline, kaupmaðr á Seyðisfirði, ætlaði
að kaupa Viðey og setjast þar að. En
ekkert varð þö úr þeím kaupum þá.
Nú hefur hr. 0. Wathne feingið leyfi
til átmælíngar í Kleppslandi, skammt
hjer ofan við bæinn og ætlar að reisa
þar hús í sumar kemur. Ætlun hans
kvað vera sú, að koma upp síldarveiði
í stðrum stýl þar í vogunum. Einsog
kunnugt er, hefur 0. Wathne umskapað
margt á Austfjörðum, og má telja víst,
að Suðurland hefði einnig gott af fram-
kvæmdarsemi hans og dugnaði, ef hann
settist hér að.
Svo er sagt, að landshöfðingi sje nú
kallaður af stjórninni niður til Hafnar í
vetur til skrafs og ráðagerða. Þó kvað
hann ekki fara með næstu ferð.
í Mýrarhúsa-barnaskóla á Seltjarnar-
nesi stofnaði Sigurður Þðrólfsson búfræð-
ingur og kennari þar á skólanum barna-
stúku at Ó. R. G. T. 6. þ. m. Stofn-
endur voru 18 börn og 3 fullorðnir.
Stúkan heitir „Díana“ og stendur ekki
uudir neinni verndarstúku. Pundi held-
ur hún kl. 10 f. m. á sunnudögum og
hefur hreppsneíndin lánað henni skðla-
húsið ðkeypis til fundahalda. Gæslumað-
ur er Sig. Þórðlfsson.
Telefónfjelagið hjeld ársfund sinn 22.
f. m. Tekjur þess voru síðattl. ár 287
kr., urðu nokkuð minni en árið næst á
undan (kr. 343) af því að þráðurinn
varð eigi notaður um tíma vegna bilun-
ar. Ný málvjel var keyft fyrír nær 200
kr. til að hafa til vara ef hin bilaði.
Stjórn endurkosin: Jðn Dðrarínsson,
Björn Jónsson og Guðbrandur Einn-
bogason,
Yopnafjarðarlæknishjorað er veitt
læknaskólakandidat Jðni Jónssyni frá
Hjarðarholti, settum lækni þar.
Stðrkaupmaður Pr. Pischer hefur keyft
Knudsons verslun í Hafnarfirði ásamt
útistandandi skuldum og eru þær sagðar
allmiklar.
Dcbsí lög frá síðasta alþingi hefur kon-
ungur nú staðfest í viðbót við þau sem
áður eru nefnd (sbr. „ísl.“ 4. des.j. 16.
Um brúargerð á Örnðlfsstaðaá. 17. Um
brýrnar á Skjálfandafljðti. 18. Um að
umsjón og fjárhald nokkurra landsjóðs-
kirkna skuli feingið í hendur söfnuðun-
um. 19. Um hækkun á fjárgreiðslum
þeim er hvíla á Hólmaperstakalli í S.-M.-
prófd. og Staðarprestakalli í Barðastr,-
prófd. 20. Um breyting á lögum um
styrktarsjðði handa alþýðufðlki. 21. Um
breyting á reglugerð 3. maí 1743, 69 gr.
og kongsúrskurði 26. seft. 1833. 22.
Viðaukalög við sðttvarnarlög 17. des.
1875. 23. Um stækkun verzlunarlóðar-
innar á Eskifirði. 24. Um stækknn verzl-
unurlóðar á Nesi í Norðfirði. 25.-29.
Um löggilding þessara verslunarstaða:
Á Grafarnesi við Grundarfjörð, á Pirði í
Múlahreppi, á rHaganesí'í Pljótum, á
Hjalteyri við Eyjafjörð, á Hallgeirsey í
Rangárvallasýslu.
29. lagafrv. frá síðasta þingi eru þá
staðfest af konungi, en 18. af frv. þess
hafa enn ekki náð staðfestingu. 2 hefur
rerið synjað: 1. Um eftirlaun og 2. Um
skipun læknahjeraða á íslandi.
Áustanpóstur kom í gær.
Úr brjefi af Eskifirði 12. f.m.:
„Síldarlaust er hjer sem stendur, en nokk-
urt fisbislór í firðinum. Lítið er þó gagn
að þvívegna beituleysis. Sama aflaleys-
ið kvað vera i Norðfirði.. En í Mjóafirði
var mikill afli síðast er frjettist. 1 Pá-
skrúðsfirði afiaðist vel um tíma, en nú
sem stendur mun þar Iítill afli. Á Eyja-
firði var næg síld í byrjun þ.mán.
Vcðrátta hefur verið hjer mjög góð
til þessa; hefur fje ekkíverið á gjöfenn
þá, enda mun mörgum koma það vel,
því heyjaforðinn var víst lítill undan
sumrinu.