Ísland


Ísland - 14.06.1898, Side 1

Ísland - 14.06.1898, Side 1
II. ár, 2. ársfj. Reykjavík, 14 júní 1898. 24. tölublað. Fyrir 2 Krónur geta nýir kaupendur „ÍSLANl)s“ feing- ið allan yfirstandandi árgang Iblaðsins, frá nýári 1898 til ársioka. Þó er það bundið J)tí skilyrði, að þeir haldi Tið kaup á blaðinu næsta ár. Ekkert blað annað hjer á landi býð- ur þTÍlik kjör. Ljósmyndasiníði. Almoaningi gef jeg hér með til Titund- ar, að jeg á þessu sumri hefi aðsetur á Eyrarbakka, og hefi byggt þar Ijósmynd- arahús rétt hjá Goodtemplarahúsinu. Tek ég þar myudir á hTerjum degi, frá kl. 11 árdegis til kl. 4 og kl. 5—6 síðdegis, af hverjum er þess óskar, og leysi það Tel og fljótt af heudi. Sömuleiðir stækka ég myndir fyrir þá, sem það vilja. Eyrarbakka 31. maí 1888. Ingim. Eyjólfsson. Lögfræðingur, 2. árg-. verður sendur út 1 ágúst; fyrir því þarf að panta hann hjá póstmönnum sem fyrst og horga fyrir fram. Minnisspjald. Landstorikinn opinn dagl. kl. 11 árdegia til 2 siðdegis. — Bankastjóri við kl. 117,-17,. — Annar gæslustjðri við kl. 12—1. Söfnunarsjóöurinn opinn i barnaskðlanum kl. 5—6 slð- degis 1. mánud. 1 hverjum mánuði, Landsbókasafnið: Lestarsalur opinn daglega frá ki. 12— 2 siðd.; á mánud, mvkd. og ld. til kl. 3 sd. — Útlán sömu daga. Forngripasafnið opið mvkd. og ld. kl. 11—12 árdegis. Bj jarsjórnur-t'nmUr 1. og 3 fmtd. i mán., kl. 5 slðdegis. Fátækranefndar-íxmðir 2. og 4. fmtd. 1 mán., kl. 5 slðd. Náttúrugripasafnið (i Glasgow) opið hvern sunnudag kl. 2—3 slðdegis. Ókeypis lækning á spitalanum á priðjud. og föstud. kl. 11—1. Ókeypis tannlækning hjá tannlækni V. Bernhöft (Hótel Alexandra) 1. og 3. mánudag i mánuði hverjum. Erlendir landsdrottnar á íslandi. Mörgum hefir risið hugur við því, að ýmsir helztu kaupmennirnir hafa átt heima erlendis, er rekið hafa verzlun hér við land, enda hefur verið margrætt um það á alþingi, að banna þeim mönnum verzluu hér, er ekki hefðu fast aðsetur hér á landi. Margt hefur þó verið því til fyrir- stöðu, að slík lög væru vel framkvæman- leg, ekki sízt það, að ritsíma hefur vantað milli vor og aanara landa. Hér skal þó ekki farið langt út í þetta atriði, heldur þegar snúið að aðalefninu. Sé það hættulegt fyrir sjálfstæði vort og framfarir, að eriendir kaupmenn hafi meira eða minna af verzlun vorri í hönd- um sér, þá hlýtur ekki minni hætta að vera í því fólgin, ef erlendir menn kom- ast yfir jarðeignir hór á landi. Margir munu kannast við hversu ástatt er á ír- landi og Ítalíu. Þar hafa erlendir auð- menn náð tangarhaldi á flestum jarðeign- um, en landsins eigin börn eru leiguliðar, kúgaðir og kvaldir af landsdrottnum sín- um, sem ekki hirða um aeitt annað en kvelja sem hæsta leigu af landsetunum. írland er að flestra manaa dómi eitthvert bezta landið í Evrópu, en þó fækkar fólk- inu þar sí og æ, og jarðeigendurnir, ensku lávarðarnir, koma þangað að eins til að skemta sér og til að senda fógetann inn í hús fátæklinganna til að leggja löghald á síðasta verðmæta gripinn, dauðann eða lifandi. Sem betur fer, er þetta ástand ekki komið enn hér á landi, en sumt virðist þó benda á, að erlendir auðmenn séu farnir að gefa meiri gætur að því en áður, að fjárvon muni vera í sumnm jarð- elgnum vorum, og sé ekki sem allra, allra fyrst séð við því, að þær komist hver af annari í útlendinga hendur, þá liggur fyrir oss sama eymdin, sami voðinn og dauðinn sem írum. Og ekki stöndum vér betur að vígi i þeirri baráttu en þeir. Fátækt vorri er viðbrugðið og keltneska blóðið er svo mikið í æðum vorum, að vér berum ekki fremur umhyggju fyrir morgundeginum, og þar að auki stöndum vér sundiaðir og andvígir hver öðrum. - Uppfunduingar hinna síðustu tíma benda beint í þá áttina, að fossa- og fljótalöndin hafi fóigið í sér ótæœandi vinnuafl, og að Sviss, Noregur og ísland hljóti að verða erfingjar koialandanna að iðnaði, svo framarlega sem samgöngurnar eru því ekki til fyrirstöðu. Af þessu er auðsætt, að jarðeignir hér eiga og hljóta aðhækka í verði áður mjög hngir tímar líða. Eu það er á hinn bóginn jafnvist, að erlendir auðmenn muni ekki láta sitt eftir liggja að krækja í og klófesta þá blettina, sem væntanlega gefa mesta arðsvon. — Það er aaðvitað, að ísland getur ekki fram- vegis haldið í sama horfi og áður. Marg- ar og miklar breytingar hljóta að verða smámsaman og þær því hraðfarari sem líkindi eru til að vér komumst bráðlega í betra sambaud við önnur lönd. En það er skylda vor að gæta að, í hverju þær breytingar verða fólgnar, og hvemig vér eigum að nota þær sjálfum oss til heilla. Það sé langt frá mér að óska þess, að vér séum hér einangraðir frá umheimin- um um aldur og æfi, en vér eigum ekki að láta útlendinga ná öllum fjárráðum yfir oss. Vér eigum og megum leigja þeim land til notkunar, en alls ekki selja, nema þeir taki sér fast aðsetur hér á landi og gerist ísleuzkir borgarar aðfullu og öllu, og það með betri tryggingu en núgildandi lög gera ráð fyrir með þá er- leuda menn, sem reka fiskiveiðar og hvala- veiðar hér við land. Hér á þingið að taka í taumana, og hver hugsandi maður meðal vor á að íhuga vandlega þetta málefni. „Það er ofseint að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið í hann“. Rj. Sig. Dýraverndunarfólag Flenslborgarskóla. i. Eigi er langt síðan farið var að gefa dýraverndunarmálinu nokkurn verulegan gaum hér á landi, enda er meðferð dýra í mörgu mjög ábótavant enn, þótt nokkuð hafi hugsunarháttur almennings breyzt til batnaðar á seinustu árum. Enn láta bænd- urnir sér enga vanvirðu þykja, að fella fénað sinn úr hor, þótt ekki sé það orðið eins títt og alment og áður. Enn láta menn sér vel sæma að brúka lioraða, meidda og halta hesta undir klyfjar ogfyrir vagna, jafnvel í langferðir. Alt of fáir eru þeir, sem láta sér detta í hug að kæra yfir iliri meðferð dýra, og helzt til mörg eru þau yfirvöldin hjá oss, sem lítinn gaum gefa slíkum málum, heldur reyna á ýmsa vegu að eyða þeim og bæla þau niður. En allt er þetta að smálagast. Altaf fer þeim fjölgandi, sem eitthvað vilja gera til að vernda dýrin fyrir harðýðgislegri meðferð manuanna. Dýr^yerndunarfélög eru fariu að inyndast á stöku stöðura, og vonandi fer þeim fjöigandi. Eitt meðal hinna elztu dýraverndunar- félaga hér á landi mun vera „Dýravernd- unarfélag Flensborgarskóla". Það er stofn- að veturinn 1892, af nemendum skólans. Hafa oftast verið í því allir nemendurnir og auk þess nokkrir aðrir (karlar og kon- ur) í Hafuarfirði. Aðal-tilgangur félags- ins er, að ryðja þeirri skoðun til rúms hjá almenningi, að ill meðferð á dýrum sé ómannúðleg og ósamboðin siðuðum mönn- um, og að það sé siðferðisleg skylda hvers manns, &ð vera miskunsamur við skepn- urnar. Félagsmenn skuldbinda sig til að fara sjáifir svo vel með skepnur, sem þeim er unnt og láta ekki óátalið, ef þeir sjá eða kafy vitneskju um, að aðrir misþyrmi dýrum. Þeir eru nokkrir, er látið hafa í ljósi efa um það, að félag þetta, eða dýravernd- unarfélög yfir höfuð, geri nokkurt gagn. Þeir segja að ávextirnir sjáist hvergi, og sumir hafa jafnvel látið þá skoðun í ljósi, að félagið væri stofnað og því viðhaldið af „monti“. Þessum mönnum er vorkunn, þótt þeir hafi slíkar skoðanir, ef þeir eru ókunnugir félaginu og þekkja lítt sams- konar félagsskap annarsstaðar. Því verð ur að sönnu ekki neitað, að ávextirnir sjást litlir, og munu engir fúsari til að viðurkenna það en félagsmenn sjálfir. Hitt er annað mál, hvort það sé ekki í alla staði eðlilegt. Eins og áður er frá skýrt, er tilgangur félagsins einkum sá, að ryðja þeirri skoðun til rúms hjá almenningi, að það sé rangt að boita harðúð við dýrin, en skylda að fara vel með þau. Að þessu tabmarki á svo hver félagsmaður og fé- lagið í heild sinni að vinna. Hinn eiui, eðlilegi ávöxtur þeirrar starfsemi ætti eðlilega að vera sá, að menn færu alment að gera sér far um að fara sem bezt með skepnurnar. En eins og Rómaborg var ekki bygð á eiuum degi, eins víst er og það, að ekki er hægt að breyta á skömm- um tíma þeim hugsunarhætti, sem orðiun er rótfastur, og mega þeir þekkja það, er nokkuð eru komnir til vits og ára, og þótt eitthvað kunui að hafa áunnizt í þessu efni, þá er því ekki mikil eftirtekt veitt, og altaf er hægt aðsegja, að þessi breyt- ing hefði komizt á, þótt ekkert dýravernd- unarfélag hefði verið til. Það er af þess- um ástæðum mjög svo eðlilegt, þótt menn sjái lítinn árangur af starfi Flensborgar- félagsins, en nokkur er hann samt, því verður ekki neitað. Félagið hefur vakið athygli og áhuga ýmsra þeirra manna á dýraverndunarmálinu, er gengið hafa á skólann og síðan flutt sig út um landið, og tilgangi félagsins verður þá bezt uáð, er sem flestir hugsandi manna, meðal hinnar yngri kynslóðar, eru farnir að gefa málinu gaum og vilja veita því fylgi sitt. II. Svo er ákveðið í lögum félagsius, að það skuli gera tilraunir til að fá í fylgi með sér aðra skóla á landinu. Samkvæmt því hefur öllum hinum lægri skólum lands- ins verið skrifað oftar en einu sinni og skorað á nemendur þeirra að stofna með sér dýraverndunarfélög. Yfirleitt hafa undirtektirnar verið fremur góðar. Síð- asta vetur var skrifað til allra búnaðar- skólanna og Möðruvallaskólans, og urðu nú undirtektirnar misjafnar. Skólarnir á Eiðura, Hvanneyri og Ólafsdal tóku vel í málið og haf'a nú víst komið á hjá eér samskonat félagskap og námssveinar Flens- borgarskólans. Námsmenn á Hólum kváð- ust ekki „sjá sér fært“ að sinna málinu, og færðu engar frekari ástæður fyrir máli sínu, vitandi máske það, að „í'æst orð hafa minsta ábyrgð“. Möðruvellingar skiftust í tvo flokka, hvorn öðrum andvígan. Sá flokkurinn, sem var málinu sinnandi, stofn- aði dýraverndunarfélag við skólann, en frá hinum flokknum barst Flensborgurum biéf eitt stórt, er hafði inni að halda þá yfiriýslngu, að flokksmenn „bæru miklu virðingu fyrir málefninu og virtu mikils hvern þann mann, sem reyndi að efla dýraverndun hér á landi, eu gætu alls ekki séð, að stofnun dýravernduaaríélags við Möðruvallaskóla hefði nokkra þýðingu“. Ástæðurnar fyrir þessu voru 5 að tölu, og leyfi ég mér að drepa á þær hér og gera nokkrsr athugasemdir við þær. Fyrsta ástæðan var sú, að nemendur skólans kæmu sinn úr hverri áttinni og öllum ókunnir á skólann, hefðu sjálfir enga skepnu undir höndum og enga von um að geta haft nokkur áhrif á þá, er byggja í grend við Möðruvelli, í þessu efni. Jeg hefði viljað benda hinum velvirtu bréfriturum á það, &ð þótt þeir hafi eigi skepnur undir höndum á meðan þeir eru á MöðruvöIIum, þá er þó ekki með ölllu fyrirbygt, að þeir hafi þær einhvern tíma til meðferðar, en altaf er jafn-nauðeynlegt að fara vei með dýrin. Um hitt skal ég ekkert segja, hvort þeir séu með öllu ó- færir til að hafa nokkur áhrif út frá sér, en bágt á ég þó með að trúa þvi, að eigi gætu þeir vakið athygli manna á málinu í grend við Möðruveili, ef þeir vildu, og þótt þeir gætu ekkert gert þar, þá trúi

x

Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.