Ísland


Ísland - 05.07.1898, Page 1

Ísland - 05.07.1898, Page 1
II. ár, 3. ársfj. Reykjavík, 8 júlí 1898. 27. tölublað. Fyrir 2 Krónur geta nýir kaupendur „ÍSLAÍíDs1* feng- ið allan yfirstandandi árgang blaðsins, frá nýári 1898 til ávsloka. Þó er það bundið })tí skilyrði, að þeir haldi rið kaup á blaðinu næsta ár. Ekkert blað anuað hjer á landi býð- ur Jwílík kjör. iamftsiBiíiii "HILLEYAAB" i Morogi, sem er ein af hinum beztu þar í landi, tekur að sér að vinna ýmia konar fataefni úr íslenzkri ull og leysir það vel af hendi og mjög ódýrt. Þeir, sem nota vilja verksmiðju þessa, geta snúið sér til mín, sem veiti mðttöku ull til verksmiðjunnar og hef sýnishorn af vefnaðarvörum hennar, er menn geta valið eftir. Að öðru leyti get ég, sem sjálf- ur hef reynt verksmiðju þessa, gefið ýmsar ná- kvæmar upplýsingar um bana. Reykjavík, 20. júni 1898. Ólafur Runólf'ssou. Hr. L. Lövenskjold Fossum, — Fossum pr. Skien lætur kaupm'dunum og kaup- fjelögum í tje alls konar timjbur; einnig tekur nefnt fjelag að sjer að reisa hús, t. d. kirkjur o.s.frv. Semja má við umhoðs- mann þess: Pjetur M. Bjarnason, ísafirði. Minnisspjald. Landsbankinn opinn dagl. kl. 11 árdegis til 2 slðdegis. — Bankastjðri við kl. II1/,—l1/,. — Annar gæslustjóri við kl. 12—1. Söfnunarsjöðurinn opinn i barnaskólanum kl. 5—6 slð- degis 1. mánud. í hverjum mánuði. Landsöökasafnið: Lestarsalur opinn daglega frá ki. 12— 2 siðd.; á mánud, mvkd. og ld. til kl. 3 sd. — Útlán sömu daga. Fomgripasafnið opið mvkd. og id. kl. 11—12 árdegis. Bœgarstjórnar-fundir 1. og 3 fmtd. i mán., kl. 5 siðdegis. Fátækranefndar-iwaiiT 2, og 4. fmtd. í mán., kl. 5 siðd. Náttwrugripasafnið (i Glasgow) opið hvern sunnndag kl. 2—3 siðdegis. Ókeypis lækning á spítalanum á þriðjud. og föstud. kl. 11—1. Ókeypis tannlækning hjá tannlækni V. Bernköft (Hótel Alexandra) 1. og 3. mánudag i mánuði hverjum. Öfriðurinn. Frá Maníla. Það má nú telja víst, að bráðum sé lok- ið vörn Spánverja á Filippseyjunum. Þó hafa þeir ekki gefist upp enn. Banda- manna herliðið þar heldur kyrru fyrir ut- an við borgina, en óeyrðirnar standa með uppreistarmönnum og Spánverjum. Hjálp- arlið frá Bandaríkjunum er nú á leið aust- ur þaisgað, en var enn ekki komið, er sið- ast fréttist. Uppreistarmenn lýstu yfir því, 12. f.m., að yfirráðum Spánverja á Filippseyjura væri lokið og eyjarnar frjálsar. Þá var haldin stór hátíð þar í bænum, en ekki voru Ameríkumenn þar viðstaddir. Það er ætlun uppreistarmanna að stofna í eyj- uuum lýðveldi, undir vernd Bandaríkjanna og hefur foringi uppreietarmanna, Aqui- naldo, tilkynt bað sendiherra Bmdamanna og jafnframt, að harm ætli að skipa þar bráðabirgðastjórn þangað til ófriðurinn sé til lykta leiddur. 4,000 manna úr spánska hernum sitja í fangelsum uppreistarmanna. Mikið af her Spánverja þar eru iunfæddir Filipps- eyjarbúar og eru þeir Spáuverjum ekki tryggir og hafa þegar mest hefur á riðið gengið undan merkjum og yfir í lið upp- reistarmanna. í einni herdeild Spánverja gerðu heimennirnir uppreist og skutu á Íoriiígjana og feldu 5. Monet hershöfðingi Spáuverja er fall- inn; hann átti að koma til liðs við Manila annarstaðar frá úr eyjunum með 3000 manna og stóð orusta milli hans og upp- reistarmanna i 3 daga. Þar varð tölu- vert mannfall og M. féll þar. Spánverjar hafa lengi ráðgert að senda herskip austur, en ekki eru þau komin á stað enn. Þjóðverjar hafa sent á stað til Filippseyja 5 herskip, hver sem ætlun þeirra er. Þykir ólíklegt, að þeir blandi sér inn í mál manna þar meðan á ófriðnum stendur. Frá Cuba. Nú er landher Bandamanna, sem iengi hefur verið búiat við til Cubu, kominn þangað undir forustu Shafters hershöfð- iugja og hefur gengið þar á land nálægt St. Iago. Kom haan þangað 21. f.m. Ein orusta hafði staðið þar á landi, er síðast fréttist, 27. f.m., skamt frá borginni. Lsuk henni svo, að Spánverjar flýðu og féllu af þeim 40, en Bmdamenn mistu 10 manns og voru margir sárir. Nú heidur heriið Bandamanna nær St. Iago og má búast við stærri tíðindum þaðan, áður en langt um Iíður. Á Puerto Rico er nú uppreist og hafa Bandamenn sent þangað herskip og ætia að taka þá ey. Sagt er, að Bandamenn mundu nú viija bjóða þá friðarkoati, að Cuba verði frjáls undir vernd Bandaríkjanna, en þau fái Puerto Rfco til eignar í hernaðarskaða- bætur og heimild til að hafa flotastöð við Filippseyjar. Frá Spáni eru sögð þau tiðindi, að drottn- ingin bjóðist til að leggja niður völdin. Svar til Björns Ólsen. Þó að ég kæri mig ekki um að gera lítið atriði að löngu máii, verð ég samt að svara nokkuru til orða Björns Ólsens í 19. blaði íslauds til min, einkum af þ\í, að ég þykist sjá að hann ætlast til svara. Að vísu hefir hanm tekið aftur það, sem hann hefir sagt áður, og er enginn minni maður fyrir það, þó að hann taki sönsum, en hann hefir um leið gerst svo djarfur til dugnaðar síns, að standa samt við það, sem hann hefir sagt. Hefir hann komið með nýja skýringu á 20. kap. í sögu Staða- Árna, er sýni að Svarthöfði Dufgusson hafi þó lifað að minsta kosti enn 1264 eða ef til vill lengur. Mín orð eru þau i Árs- tíðaskrám, að Svarthöfði hafi særst mjög um þvett andlit á Þverárfundi 19. júní 1255, og sé hans ekki getið eftir það, og hafi hann því „eý til vill“ látist af þeim áverka. En óafbökuð orð Sturlungu eru svo: „Þar [á Litlu-Þverá] var kominn Svarthöfði Dufgusson undír iænahúsvegg- inn, ok varð særðr meiðslasárum, högg- vinn um þvert andlit; bað hann griða heldr ákafliga“. Ég þarf ekki að vera neitt óánægður við sjáifan mig fyrir það, að ég hafi fnllyrt út af þessum orðum neina staðieysu. Það, sem óvist var, en gat eins vel verið og ekki, hefi ég að eins sagt að hafi „ef til vill“ verið, og mun tæplega hægt að orða það varlegar. Eu því til sönnunar, að Svarthöfði hafi ekki beðið bana af þessum sárum, færir B. Ó. það fram, að þess muni ekki „dæmi í sögum vorum að nokkur maður“ hafi dáið úr „meiðslasárum“ og að „sár íand- litið sé ekki vön að vera mjög hættuleg“, og vitnrr lunn til Starkaðar gamla og fleiri. Ekki nema það þó að deyja af „meiðslasáruir.!“ Þó að þetta kunni nú að sæta bókföstum endeinum og þó að karlmenskumönnum kunni að þykja meiðsla- sár skeinur þær einar, að mönnum sé vorkun&rlaust að deyja ekki af þeim, þá ætla ég þó að þau endemin sé okki minni, að nokkrar fastar reglur sé fyrir því, af hvaða áverkum menn geti ekki beðið bana. Og hvert er svo viðerni meiðslasára? Vit- aniega eru það ekki holundarsár, sem oft- ast munu hafa þótt banvæn að sjálfsögðu, en það eru mergundarsár, beinbrot og mör, hverskonar lemstur og beinalát, fót- arafhögg, handarafliögg og því um iikir áverkar, sem fleatum mun geta orðið flökurt af, geta orðið „óvígir og ósjálf- bjarga“ fyrir og jafnvel fyrirkafnarlítið dáið af. Svo var og um „meiðslasárin“ Starkaðar, sem B. M. Ó. vitnar til að sagnamenn kalla, að farið hafi verið að saxast á limina hans áður en lauk, og mundu sumir þeir áverkar, er hann fékk um dagana, ærnir hverjum manni til bana að óskapalausu. Það sýnist tæplega borga sig að öfga það svo mjög, að meiðslasár sé ekki einklít til bana. Svarthöfði var á Þverárfúndi særður „meiðslasánm^, og eitt af þeim var um „þvert andlit“. En hv&ð voru þau mörg og hvað djúp eða hvað giunn? En hitt vita menn að hann náði ekki inn í bænahúsið á Þverá, og verður það ekki skilið nema á tvo vegu. Annaðhvort hefir ekki verið rúm í bæna- húsinu, því að ýmsir flóttamenn voru komnir inn þangað, eða þá að hann hefir þrotið rnátt til þess að komast inn og ekki komist lengra en undir vegginn. Það vita menn og að hann bað griða, „heldur á kaflega11. Hvers vegna er þetta orðað svona undarlega? Er það gert til þess að sýna hvað Svarthöfði hafl verið hrædd- ur við að deyja eða þá hitt, hvað að honum h»fi verið sorfið af sárum og blóðrás ? Eða hvaða firrur eru það þó að lemstraður maður, eða jafnvel þótt honum sé tvísýat, nema sár hans geti verið banvæn, biðji sér griða, ef hann vill einhverra hluta vegna ekki deyja. Er það nokkuð á móti mannlegum tilfinniugum? Ea hvað sem þessu líður, þá skai ég ekki framar nú en áður halda því fram til neinnar vissu, að Svarthöfði hafi látizt af áverkunum eftir Þverárfund 1255. Á hitt er þar á móti að líta, hvernig B. Ó. fer að því að sanna það, að Svarthöfði hafi lifað lengur. Sönnun hans er þessi: Brandi ábóta og síðar biskupi, föðurbróður Odds Þórarins- sonar, sárnaði dráp Odds og að hann var kasaður í urð sem molrakki eða þjófur. Þessvega má teija það víst, srgir B. Ó., — en það stendur hvergi —, að þ ið hafi verið eitt hið fyrsta verk hans, þegar haira settist að stóli, að leita vitna um mál Odds og fá hann leystan úr banui. Því „hyggw “ B. Ó., að það sé fyrir honum, sem Svarthöfði og Ólafur Oddson sóru eiðana um prestfundaibaiðslu Odds, og þar með telur hann staðinn i sögu Staða- Árna „fullkomna sönmra fyrir þvi, að Svaríhöfði hafl lifað 1264“, því aðBrand- ur var að eins eitt ár biskup og dó ein- mitt þetta ár. Þessi sönnun er að því leyti merkileg, að hún sannar með því, sem fyrst 'þurfti að sanna, en það er, að það hafi verið Brandur biskup, sem eiðana tók — því það stendur hvergi —; og ann- að það, að húa er jafnhandhæg til þess að sanna með hið gagnstæða. — Það er vitaniega alveg rétt, sem B. Ó. segir, að Brandi ábóta og biskupi var hiu mesta raun að drápi Odds og banni, en leugra get ég ekki óhikað átt samleið með B. Ó. á þessari vegferð. Staðinn í sögu Staða-Árna, sem um er að ræða og prentaður er í 18. blaði íslands, er nátdúrlegast og mest blátt áfram að skilja evo, að það hafi verið Heiurekur biskap, sem eiðana tók, og frá þeim skilningi, sem næst fellur, ættu mena aldrei að víkja, nema í uauðsyn. í sög- unni stendur „firir biskupi“, og til þess að hægt væri að segja það um Brand biskup, þyrfti beiulínis að bæta inn í sög- una („firir Brandi biskupi41). Eu með sönuunarmáta B. Ó. má sanna það svona, að það hafi varið Heiurekur biskup, sem tók eiðana: Dráp Odds (14. jan. 1255) og bann það, er á konum lá, var öllum frændum hans og vinum hinn mesti harm- ur og hugraun, og ekki hvað sízt Brandi ábóta föðurbróður hans, sem þá var mæt- astur klerkur og mest virður á íslandi eftir biskupana. Hefir hann þegar eftir fall hans fyrir hvern mun viljað fá honum kirkjuieg, og þegar honum hefir komið til eyrna, &ð þeir Svarthöfði og Ólafur hefði heyrt Odd við dauða sinn beiðast. prest- fundar1, „hygg ég“ hann hafi brugðið 1 Það má ekki blanda því saman að „beiðast preBtsfundar11 og „ná prestBfundi11, eins og B. Ó. gerir. Það eru atriðisorð í þessu máli.

x

Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.