Ísland - 25.08.1898, Síða 1
II. ár, 3. ársíj.
QuillayalDörliur
(þvottabörkur) er hið bezta, sem fæst til
að ná blettum af alls konar fatnaði. Það
má þvo allan fatnað úr honum, og verður
fatnaðurinn þá sem nýr. Þessi ágæti
börkur fæst hjá
C. zimsen.
Húseignir og lóðir til sölu.
Tvíloftað hús í Þingholtsstræti nr. 21, vá-
trygt fyrir 7512 kr. Á húsinu hvíla
með 1. veðrétti 2400 kr. á 4°/0. Bygð
lóð er 191 □ álnir, óbygð lóð 896 □
álnir, fæst fyrir 5000 kr., útborgun
1600 kr. fyrsta ár og 1100 kr. á tveim-
ur árum með 4°/0 vexti.
Tvíloftað hús í Bergstaðastræti, „Bjargar-
steinn" kallað, vátrygt fyrir 2844 kr.
Á húsinu hvíla 1400 kr. á 4V2 °/o með
1. veðrétti; bygð lóð 124 □ álnir, ó-
bygð lóð 896 □ álnir, fæst fyrir 2500
kr. Útborgun 1100 kr. á tveimur árum.
„Melur“ eða „Smiðjan" við Bræðraborgar-
stíg, vátrygt fyrir 1311. Áhúsinuhvíla
250 kr., hvar af afborgast árlega 50
kr. ásamt vöxtum 4V8 °/oí bygð lóð 235
□ álnir, óbygð lóð 1897 □ álnir. Fæst
fyrir 2000 kr., útborgun 1000 kr. og
um 700 kr. á tveimur árum og 4°/0
vexti.
Hús í Sauðagerði, vátrygt fyrir 1200 kr.
Á húsinu hvíla 600 kr. á 41/,, °/0) fæst
fyrir 1200 kr., útborgun 500 kr. strax
og 100 kr. á ári. Bygð lóð 94 □ álnir,
óbygð 2606 □ álnir.
Lóð í Skuggahverfinu fyrir norðan Hissurs-
bæ, „Litlabær“, um 1077 □ álna kál-
garður, fæst fyrir 75 kr.
Lóð í Skuggahverfinu við Lindargötu um
4081 □ álnir eftir lóðargjaldsskránui
síðastl. ár, fæst fyrir 200 kr.
Lysthafendur snúi sér til verzlunar
undirskrifaðs.
Reykjavík, 8. ágúst 1898.
H. Th. A. Thomsen.
E TS. T A
P-A-K-K-A-L-I-T-I-R
OQ
HNrDIGtO (BLÁKKUSTEINN)
FÆST HJÁ:
C. ZIMSEiN.
Mlnnisspjald.
Landsbankinn opinn dagl. kl. 11 árdegis til 2 siðdegis. —
Bankastjóri við kl. IX1/*—1V». — Annar gæslustjðri við
kl. 12—1.
Söfnunarsjððurinn opinn 1 barnaskðlanum kl. 5—6 slð-
degis 1. mánud. í hverjum mánuði.
Landsbókasafnið: Lestarsalur opinn daglega frá k].12—
2 siðd.; á mánud, mvkd. og ld. til kl. 3 sd. — Útlán
sömu daga.
Fomgripasafnið opið mvkd. og ld. kl. 11—12 árdegis.
Baejarstjórnar-ínniir 1. og 3 fmtd. i mðm., kl. 5 siðdegis.
Fátækranefndar-fundir 2. og 4. fmtd. 1 mán., kl. 5 siðd.
Náttúrugripasafnið (í Glasgow) opið hvern sunnudag kl.
2—3 slðdegis.
Ókeypis lækning á spltalanum á þriðjud. og föstud. kl.
11—1.
Ókeypis tannlækning hjá tannlækni V. Bernhöft (Hðtel
Alexandra) 1. og 3. mánudag 1 mánuði hverjum.
Reykjavík, 26 ágúst 1898.
34. tölublað.
NAUTSHÚÐIR
franskar fást mjög ódýrar hjá
C. Zlmsen.
Hugsanaflækjan.
Svar til Haraldar Kíelssonar.
Frá Guðm. Uannessyui.
Þú hefur hlaupið langt yfir akamt, kunn-
ingi, þegar þú last bréf mitt í „Bjarka“.
Fyrri hluti þess er um orsakir vantrúar-
innar1, en síðari hluti þess um ritdóm
þinn. Grein þín og grein séra J. H. virt-
ust mér eiga sammerkt í því aðalatriði, að
telja bdygðir og illa breytni eiga sitt rétta
heimili hjá vantrúarmönnunum. Hann seg-
ir þetta blátt áfram; en þú virðist telja
flestar góðar dygðir kristindóminum sam-
vaxnar og frá honum runnar, svo nærri má
um það fara, hvað eftir verði handa hin-
um fráviltu sauðunum, vesalings vantrúar-
mönnunum.
Þessu vildi ég mótmæla og þetta virt-
ist mér nauðalíkt rógi og honum af ósvífn-
ara taginu, þó þér á engan hátt geti skil-
ist það. Þú hefur þannig eigi fyllilega
skilið hvað það var, „sem hleypti mér af
stað“, til þess að skrifa grein mína í
„Bjarka“.
Það er vorkunn þó þeir reki fyrst aug-
un í það sem aftast er, sem hebrezku lesa
frá morgni til kvölds.
Það, sem þér verður næst fyrir í grein
þinni, er að fræða fólk á því, hve ramm-
ur vantrúarmaður — eigum við ekki lield-
ur að segja guðleysingi — ég sé; „sá
langandvígasti kristinni trú að Þorst. Er-
lingssyni undanskiidum“ og „ákafur óvin-
ur kristindómsins i mörg ár“. Til þess
að sanna mál þitt, tilfærir þú síðan privat-
þekkingu þína á mér og gamlar viðræður
okkar í Höfn.
Mér er spurn: Á þetta að vera sönn-
un fyrir ágæti kristindómsins eða dygð-
um hinna rétttrúuðu guðsmanna? Vera
má, en hjá mínum gömlu, breyzku vinum,
vantrúarmönnunum, var það álitinn góður
siður að úthrópa ekki prívatviðkynningu
eða prívatsamtal manna, sízt að þarflausu.
Heldur ekki var það álitið samboðið góð-
um dreng að núa sjúkum meðbróður,
heilsuleysi hans um nasir í hvert siun
sem á hann er minst, en þetta gerir þú í
hvert sinn, er þú minnist á Þorst. Erlings-
son.
Ég vænti, að hann þurfi áminningar
með til þess að muna eftir veilum lung-
um sínum og við og við blóðií hrákunum.
Þið um það, hverri siðferðisreglu þið
') Yantrú = lifsskoðun, sem ekki er í samræmi
við kirkjuunar kenningar. Ég held þessari orð-
skýring sem sæmilega réttri. Orðið er eldra en
nýjatestamentið og kemur fyrir í öllnm þeim
heil. bókum, sem ég hef séð, að gamlatestamentinu
undanteknu. Þar hef ég eigi hitt það. í kóran-
inum kemur það fyrir á nokkrum stöðum og kallar
Mohammed þá vantrúaða, sem eigi trúa kenning-
um hans. Á sama hátt segir hvert kirkjufélag
fyrir sig.
fylgið, trúmenn og siðgæðisfrömuðir, en
vantrúarmenn telja slíkt áthæfi „perfíd“
og skammast sín fyrir, ef þeim verðnr
slíkt á.
Áunars ranghermir þú samtál okkar. Ég
sagði aldrei, að Kristur væri „varhuga-
verð persóna", heldur sagði ég þér frá
þvi, að í timaritinu „Jesus og Fornuften"
væri sá dómur á hann lagður, að hann
væri „en betænkelig persou“. Á þessu er
talsverður munur.
Ég kannast að öðru leyti fyllilega við
það, að ég tel mig í flokki vantrúarmanna
og er þess fullviss, að ég er þar í félagi
við fjölda ágætismanna.
Ég vil um leið benda þér á, að þú
rangfœrir eigi állfátt í grein minni í Bjarka.
Þessu hef ég veitt eftirtekt:
Setningin: „Þú segir að kvæðið (ör-
byrgð og auður) sé spegill, sem sýni trú-
uðum mönnum aldarháttinn" er ranghermi.
Ég segi (því orðin tók ég upp eftir J.
Helgasyni): „Þannig myndi eiga að dœma
ykkur — eftir ykkar eigin mœlikvarða“.
Að „ég álíti kristindominn orsök hins
illa í kristnum löndumu er mér óskiljandi
hvernig þú færð út úr orðum mínnm.
Þetta er tilhæfuleysa og misskilningur,
sem ég er viss um að þú kannast við, ef
þú athugar grein mína.
Hvergi hef ég staðhæft, að „skynsemi
nútíðarmanna sé betri en skynsemi for-
feðranna", ekki heldur, „að kristindómur-
inn geti ekki samrýmst skynsemi manna“.
Um þetta getur þú sannfærst með því að
lesa aftur grein mína.
Svo virðist sem þér þyki eigi stórvægi-
legt að rangfæra orð annara. Máske er
það í samræmi við siðferðiskröfurnar í
„Samkomum hinna kristnu manna“ í Höfn,
en þar hef ég eigi s“igið fæti mínum inn,
eins og þú segir.
Yantrúarmennirnir álíta skyldu sína að
segja satt1.
Þá þykja þér athugasemdirnar við rit-
dóm þinn um kvæði Þ. E. lítilfjörlegar,
jafnvel broslega lítilfjörlegar. Mér virðist
þú eigi veita því eftirtekt, að ég í grein
minni geng fram lijáþví viljandi að þrátta
um árásir kvæðanna á kirkju og kristin-
dbm. Ég bjóst við „ströngum ritdómi“,
en þó „réttlátum“ og hefði ekkert á móti
því haft. „Audiatur etaltera pars“. Það
sem ég einkum rak augun í í ritdómi þín-
um var tvent: hversu alt siðgæði átti að
vera kristindóminum saravaxið (cfr. J. H.)
og að kvæðin voru rangfærð. Ég benti á
tvö dæmi og álítur þú að sjálfsögðu mig
fara rangt með bæði.
Hvað þetta atriði saertir, þá vil ég geta
þess, að ég þarf hvorki þig né aðra að
spyrja um þetta. Ég var skáldinu gagn-
kunnugur þegar hann orti kvæði þessi,
og mér mun hann hafa einna fyrst lofað
*) Ókunnugum til skýringarvil ég geta þess, að
af gamalli viðkynningu hef ég þekt H. N. Bem
sannorðan mann og Bómamann, þó honnm hafi orð-
ið fótaskortur i „ísafold" og hann lent þar á breiða
veginum, sem liggur til glötunar.
að heyra þau. Ég hef átt tal við hann
um bæði, skýríng mín hefur auk þess
gengið gegn um hans hendur án allra at-
hugasemda og til þess að bæta ofan á:
kvæðin svo ljós, að þú ert sá fyrsti mað-
ur, sem ég hef vitað misskilja þau, en
að eins einn annan en þig á sama veg —
en hann var einnig úr rétttrúaða flokkn-
um.
í fyrri grein þinni um kvæðið „arfur-
inn“ virtist þér „heift“ koma fram í því.
í síðari greininni er það „socialistisk heift“.
Hvað er nú þessi „socialistiska heift“?
Ég veit eigi betur en að „socialismu8“
sé eigi annað en sú stefna í stjórnmálum,
sem auka vill sem mest völd ríkisins —
samdráttarstefnan — í mótsetningu við
anarkista. Stefna þessi eða flokksmenn
hennar hafa að einkunnarorðum orðin:
frelsi, jafnrétti og bróðerni, en trúbrögð
öU segja þeir „privatu-mál.
Eitt af tvennu er, að þú veitst ógerla
hvað „socialismu8“ er eða þú botnar ekk-
ert í kvæðum Þ. E. Hvar heldur hann
fram þessari sérstöku stjórnmálastefnu?
Alt þetta skrif í greinum þínum um „so-
cialisme" er í mínum augum — buil. —
Máske þarf einhverja sérstaka tegund
heiftar og mannvonzku, að þínu áliti, til
þess að halda fram þessari óhæfu: frelsi,
jafnrétti, bróðerni. Það er að vísu auð-
vitað, að 8é því fram fylgt, þá verða trú-
aðir og vantrúaðir að umgangast sem
bræður og „sjá hvorn annau í friði“, en
þetta segir þú hina trúuðu ekki geta. Þá
er líka úti um einkaleyfi fyrir réttum hug-
myndum um lífið hinumegin grafarinnar,
því jafnréttið réði og að líkindum mættu
allir sætta sig við stórt og hispurslaust:
„ignoramus41. Ég vænti hinum rélttrúuðu
þyki þetta súrt í brotið.
Þó ég vildi sleppa allri hinni nöpru
„ironi“ í kvæðinu „arfurinn“ og þræða orð-
ln sem þú, þá hjálpar jafnvel ekki það
þínum málstað. Sigurvegarar hafa lengst
af tekið bandingjana með við sigurfarir
sínar og einmitt í því skyni að gera þær
veglegri á þann hátt og sigurinn sætari.
Ég vil minna þig á Rómverja. Söguna
um Samson og Filisteana kannast allir
við. Þér er máske minnisstæðari gamla
klerkakenningin um það, að kvalir for-
dæmdra muni auka á sælu hinna hólpnu
í Paradís, en alls eigi rýra hana. Þetta
kalla ég „kristið hatur“.
í kvæðinu „örbyrgð og auður“ er inni-
haldið í stuttu máli á þessa leið: „Alt er
breytt. Fyr voru föstur og krossfesting
holdsins hinn vissasti sáluhjálparvegur, nú
vex auður og völd kirkjunnar manna þess
hærra sem þeir komast. Fátækum geng-
ur flest ervitt, hinir ríku sitja við altaris-
hornið. Börn hinna ríku eru „kostuð“ til
vegs og virðingar, fátæka skortir fé til
að koma þeim á framfæri. í fangelsunum
eru flestir fátæklingar, hinir ríku sleppa
einhvern veginn við þau. Fátæklingunum
líður hér illa og í líkræðunum er frek-