Ísland


Ísland - 09.12.1898, Síða 1

Ísland - 09.12.1898, Síða 1
ISLAND. II. ár, 4. ársfj Reykjavík, 9. des. 1898. 48. tölublað. EHLT A P AKK. ALITIR 0€r IlfflDIGO (Blákkusteinn) fæst hjá C. ZIMSSIV. Tliule býður líftryggendum miklu betri kjör en nokkurt annað lífsábyrgðarfélag í heimi Nær því öllum ágóðanum er varið til BOHtLS-útborgunar, enda er „Bonus“ í TlXVLle hærri en í nokkru öðru félagi á Norðurlöndum. Umboðsmaður félagsins fyrir ísland, Bernharð Laxdal, Akureyri gefur þeim, er tryggja vilja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar. Kensla í orgelspili býðst fyiir lága borgun. Ritstj. vísar á. Minnisspjald. Landsbankinn opinn dagl. kl. 11 Ard. til 2 síðd. — Banka- stjóri við kl. 1172—1 V« — Annar gæzlustjóri við kl. 12—1. Söfnunarsjóðurinn opinn 1 barnaskólanura kl. 5—6 síðd 1. mánudag 1 hverjum mánuði. Landsbókasafnið: Lestrasalur opinn daglega frá kl. 12— 2 síðd.; á mánud., mvkd. og ld. til kl. 3 sd. — Útlán sömu daga. Forngripasafnið opið mvkd. og ld. kl. 11—12 árd. Bæjarstjórnar-fundir 1. og 3. fimtud. í mán., kl. 5 síðd. Fátækranefndar-fundir 2. og 4. fimtd. í mán., kl. 5 siðd. Náttúrugripasafnið (i Glasgow) opið hvern sunnudag kl. 2—3 siðd. Ókeypis lækning á spitalanum á hriðjud. og föstud. kl. 11—1. Ókeypis tannlækning hjá tannlækni V. Bernhöft (Hótel Alexandra) 1. og 3. mánudag í mánuði hverjum. Holdsveikra-spitalinn. Heimsóknartírai til sjúklinga dagl. kl. 2—3V2- Ókeypis augnlækning hjá Birni Ólafssyni augnlækni (á spítalanum) 1. föstudag i mánuði hverjum kl. 11—1. Smá athugasemdir til kaupenda ,íslands‘. Það hafa ýmsir haft orð á þvi, að „ís- land“ væri og hefði verið nú upp á síð- kastið miklu daufara en fyrrum og ekki eins fjölskrúðugt. Það er nokkuð satt í þessu og tjáir ekki að neita því. Líka hafa bæjarmenn og nærsveitamenn haft nokkra ástæðu til að kvarta um óreglu á útkomu blaðsins með köflum síðan í haust. Kaupendur, út um landið hafa aftur á móti ekki orðið hennar varir. En úr þeirii óreglu er nú að mestu bætt að því er blaðafjöldann snertir, svo að á nýári munu verða komin út jafnmörg tölu- blöð og heitið hefur verið. Að því er innihald blaðsins snertir má benda á, að „ísland“ hefur síðari hluta þessa árs flutt lesendum sínum eitt af fremstu skáldritum þessarar aldar og þar á ofan í þýðingu eftir það af skáldum okkar, sem nú hefur hæðst gengi, og verður „Brandi“ lokið í þessum árgangi blaðsins. Þnð getur verið að hann sé of þnngskilinn til þess að hann geti fallið ölluin Iesoadum blaðsias vel í geð, og að margir hafi ekki getað notið hms þar sem hann kemur fram í smáköflum, kafli og kafli í senn. En svo hefur verið til ætl- ast, að menn kliptu hann neðan af blað- inu og héldu honum saman, og má vel binda úrklippurnar inn, þótt brotið verði nokkuð óvenjulegt, það er: grallarabrot. Síðar verður „Brandur“ gefinn út í sér- preutun í vandaðri útgáfu. Og „ísland“ þykist vinna miklu þarfara verk með því að gefa lesendum sínum og bókmentum okkar heimsfrægt verk í ágætri þýðingu, heldnr en að kitla eyru manna með ó- merkilegum cldhús-rómunum, eins ogvenju- legast er að blöðin flytji neðanmáls í þýð- ingum. „ísland“ byrjaði í fyrra á viðskifta-að- ferð við kaupendur sína, .sem áður var ekki tíðkuð hér á landi, og var blaðið þá að eins selt gegn fyrirframborgun og gat því selst töluvert ódýrara en nú. Þessu gat það ekki haldið vegna óreglu ýmsra póstþjóna út um landið. Það varð því að taka upp gamla verzlunannátann íslenzka, lánsverzlunina. Þetta árið hefur það líka fengið að kynnast henni fullkom- lega. Óskilsemi við blaðamenn frá kaup- enda hálfu er ótrúlega mikil. Nú sem stendur er sjálfsagt árferðinu og peninga- eklunni að nokkru leiti um að kenna, en þó sjálfsagt ekki eingöngu. Um næstu áramót verður málafærzlumanni falið á hendur að innheimta skuldir blaðsins. Á næsta ári mun „ísland“ leggja alt kapp á að flytja sem fjölbreytilegast efni og hafa nú ýmsir góðir menn heitið &ð sendið því ritgerðir meir en áður. Það mun og leggja sig meir fram til að ræða um landsins gagn og nauðsynjar en síð- astliðið ár. Island erlendis. Ólafur Felixson, íslenzkur maður, sem í nokkur ár hefur verið starfsmaður við blað í Þrándheimi í Noregi, er orðinn ritstjóri að nýju blaði í Aalesund, sem byrjaði að koma út 1. okt. í haust. Þ»ð heitir „Heimhug“ og stendur neðan við nafnið, að það sé ætlað norkum æskulýð. Ýmsar greinir eru þar um íslenzk efni og auglýsir blaðið að meðal þeirra, sem stöð- ugt skrifi i það séu tveir íslendingar, Jósef Björnsson skólastjóri og Sigurður Sigurðsson búfræðingur frá Langholti. Þórður Guðjohnsen læknir i Khöfn, sonur Þ. Guðjohnsens verzlunarstjóra á Húsavík, kvað ætla að setjast að sem prakt. læknir á Borgundarhólmi á næstk. vori. Yestur íslendingar ræða nú og rita all- míkið um skemtiför, sem þeir ráðgera að fara heim hingað margir í hóp árið 1900. Þessi ráðagerð virðist hafa fylgi margra, en þó er ferðin ekki fastákveðin enn. Leiðrótting. Það var dálitið rangprentað í aths. við áætlun póstgufuskipanna, sem nýlega er prentuð hér í blaðinu. Það burtfarartími skipanna frá Rvik sé ákveðinn kl. 12 á nóttu, en á að vera kl. 6 síðdegis eða um miðaftan. Baðhúsið verður framvegis opið að eins þrjá daga í viku, sunnudaga, miðvikudaga og laugardaga. Þó geta þeir sem æskja fengið böð aðra daga, en þá verða þeir að hafa beðið um þau daginn áður, hjá H. Ó. Magnússyni Austurstr. 6. 193 öll veröldin hér strymir að úr öllum áttum ; hressið hug ; það hefur enginn mælsku-flug til jafns við yður, — oða hvað? Grann-prestar yðar opna arma, og yðar hjörð ber vota hvarma, alt hýóur þökk með virkt og varma’. Og verkið, — þetta vildar-smíði! og viðhöfnin og öll sú prýði! og textinn líf og ljéssins orð. og loks það mikla dýrðarborð, Ég horfði’ á kálf við húsgaflinn, og hreint varð ég sem gagntekinn! Það hefur kostað þraut og strið uns þvílíkt metfé yrði fundið, og það á harðri hungurstíð þá hér er ríkisdalur pundið! Nú þar um ekkl tala’ eg tíðara, að tala’ um annað ferð var heitið. Brandur Jú, talið, skerið, rífið, reitið! Pröfasturinn Nei, optast tek ég tökum þýðara. Bn fljótt, ég kýs ei færið siðara. Um eitt ég get ei á mér setið, — og óðar en það mál ég nefni, ég veit þér hafið hitt og getið á hvað ég, séra Brandur, stefni. Þér skiljið, það er mín skyldu-vinna að skoða breytni presta minna. Þér litla rækt opt leggið við 194 Iandsvenjur hér og fornan sið; en venjan er þó víst hið næsta, ég vil ei segja: Allra stærsta. Nei, bezti vin, ég bríxla ekki; — þér, bróðir, ungnr, staðan ný, þér komuð hér úr höfuðbý og höfðuð skygnst hér lítt um bekki. En nú er, vinur, meir en mál að milda’ og laga þetta brjál. Þér hafið of mjög hingað til gert hverjnm einum prestleg skil, en vega’ ei alla’ í einu lagi, er ætíð synd af versta tagi. Nei, eitt skal yflr alla ganga, og óðar hverfur stefnan ranga. Brandur Útlistið betur! Prófasturinn Bezta kirkja er bygð af yður til að styrkja hér Guðsorð. Hún er gróðrarsvið og girðing kringum lögmálið. En stjórnin hefur helga trú til halds og trausts sem lífsins brú, og verndar hennar stöðu’ og stétt svo styðji’ hún aptur lög og rétt. En stjórnin á ei rentu ráð og reiknings krefst fyrir sína náð. Þeir kristnu jafnan kunna’ að hlýða. Því ætlið ei hún ausi út fé þótt annarsvegar Drottinn sé, 195 ef hún á launalaust að stríða. Nei, henni’ er gatan glögg og kunn, og gæfa hvers manns yrði þunn, ef stjórnin væri’ ei vörn og hlíf, og verndaði’ að eins þetta líf. En þetta hennar mark og mið er menn, sem okkur, bundið við, embættislýðinn, okkur presta! Brandur Hvert orð er vizka! Meira! Prófasturinn Fresta ég vil ei því sem eptir er. Það orðsins hús, sem gáfuð þér, ég treysti nú að ei þér eflð, sé einnig þessu ríki gefið. í þeirri trú ég held þá hátíð, sem halda skal og víst er fátíð. í þeirri trú skal klukkum klingja, og kirkjugjafar-ljóðin syngja. Ég veit með gjöf þér hlýðni heitið og hugsið betur um hvað veitið. Brandur Það hef ég aldrei, aldrei meint! Prófasturinn Sú athugun kom, vinur, seint. Brandur Hvað seint? Hvað seint? Við sjáum það! Prófasturinn Nei, segið ei meir, og brosum að! Hvað er það, sem þér eptir þraytið? 13* 196 Hvað er það, sem þér lofið, heitið? Þér getið umvent öllum heim, og eflt og stoðað líka ríkið, og þannig herrum þjónað tveim, ef þreki, viti’ og greind ei flíkið. Þér messið ei fyrir einn og einn, að ekki hrasi Páll og Steinn; þér messið, svo að sóknin öll um síðir nái dýrðarhöll; en hjálpist sóknin, sjálfsagt er að sérhver einn til DrottinB fer. Nú, ríkið er í eðli sjálfu alþýðu-veldi rétt að hálfu, það hafnar frelsi og hatast við, en hefur jöfnuð fyrir mið; en jöfnuður kemst aldrei á ef ójöfnuður drottna má, og einmitt hann þér alið hér, og aukið stórum, því er ver, sem fyrri hvergi hreifði sér. Hver maður fyr hét meðlimur, nú möglar hver sem einráður, en rikinu er það engin bót. Af einmitt þeirri sprettur rót hve illa fer með eignarskattinn og allar skyldu-kvaðir samt, að kirkjan látið hefur hattinn, er höfðum allra sómdi jafnt. Brandur Þar opnast mikil útsjón, ó! 13

x

Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.