Ísland - 12.03.1899, Síða 1

Ísland - 12.03.1899, Síða 1
ISLAND. 1. ársfj. Reykjavík, 12. marz 1899. 5. tölubl. .SUNNANFARI* fæst hjá Einari Qunnarssyni, Kirkjustr. 4. í 5 fyrstu árin vantar samtals 8 blöð og kosta þeir þannig 5 kr. VI. árg. kostar 2,50 og VII. 2 kr. hjer á staðntim. Þeim kaupendum, sem ekki hafa borgað VII. árs síðara hefti, verður ekki sent það fyr en þeir secda borgun og burðargjaid. Hafi nokkrir útsölumenn óseldan Sunnan- fara, eru þeir beðnir að senda liann til baka; annars verða þeir krafðir um andvirði lians. Y innufólksekklan. Jeg er ekki vanur að hafa formála, ea því má samt ekki gleyma, að um þetta mllefni er báið að skrifa svo mikið, að knlla má það sje að bera í bakk&fullann lækinn að bæta við það ritgjörðum. Ekki er til neins að sakast um orðinn hlut, en samt dettur mjer í hug iöggjöfin um vistarbands- leysinguna. Hjer er svo margt ýmist í ökla eða eyra; sumt getur ekki þokazt úr stað, sumt stökk- ur fjall af fjalli í skessuhlaupum. Það mundi hafa gefizt eins vel að fara hægra, stytta timann og minnka gjaldið. Timinn hefði átt að vera 14 eða 15 ár, sem útheimtist til að verða laus fyrir ekk- ert, og lausamennskugjald innan þess tíma 50 kr. fyrir karlmann, en 25 kr. fyrir kvennmann. Þeg- ar frelsið er veitt með skessuhlaupum, verður opt missmíði á notkuninni, en veiting þess með smærri skrefum kennir mönnum betur að Dota það; en hugmynd mannrjettindanna kallaði hart að mörg- um. Það er algengt hjá stjórnvitringum vorum, mannvinum og heimsspekingum, að vit þeirra er eins og netaský og gilaþyrping í loptinu, en hefur ekki lag á því að renna um æðar og taugar mann- lifsins, eins og því er farið á jörðuuni og eðli þess heimtar; svo hefur farið með þetta mál og fleiri. En nú er komið sem komið er. Tillögur manna skiptast í tvennt: sumir virðast draga taum bænda, sumir aptur taum vinnufólksins. En hjer á engin hlutdrægni að eiga sjer stað. Kaupgjald t. d. á að vera í rjettum jöfnuði við gæði landsins. Það má ekki vera hærra en svo, að bóndinn hafi gjald- þol til að greiða það og ekki lægra en svo, að ekki sje níðzt á vinnufólki í samanburði við gjald- þol bænda, og þessi hlutföll munu til skamms tíma hafa verið nærri lagi, og eðlilegast er, að þau myndist af sjálfu sjor. Ofhátt kaup er eyðileggj- andi fyrir landbúnaðinn og sjávarútveginn og kem- ur með tvennu móti í koll vinuulýðuum: hann legg- ur minni stund á að læra hagsýni og sparsemi, meðan enginn kostnaður kallar að honum. Svo þegar vinnulýðurinn verður vinnuveitandi of þyngir kaupgjaldið honum aptur, svo hann getur ekki út- vegað sjer næga vinnu. Það verður því skaðlegt fyrir hvert hjú, að kaupgjaldið sje hærra en at- vinnuvegirnir þola og verður öllum til ills nema þeim, sem mest græða, og myudar auðmanna- og fátæklingagrúa. Og þó er minnst komið undir kaupgjaldinu, þar sem bóndinn fæðir hjúin og ekki er unnið eptir ákveðnum samningi, langmest kom- ið undir því, að vel og dyggilega sje unnið og vinnufólkið sje ekki fram úr hófi kostavant; það er drýgst sem drýpur. Þegar borin er saman vinnumennska og lausamennska hjer á Jandi, verð- ur því ekki neitað, að vinnumennska á hjer víðast bezt við og verður farsælust bæði fyrir húsbænd,- ur og hjú. Það segir sig sjálft, hve mikið tjón húsbónda er búið af þvi, hafi hann ekki svo margt vinnufólk, sem hann þarf til heimilisstarfa um árið. Hugsa má sjer það getí eins verið lausafólk, en hæpið er það í strjálbyggðu og tólksfáu landi, að hann geti allt af náð í það og bíði aldrei tjón af mannleysi. Aptur missir lausafólkið margan dag og hefur margan kostnað, liggi það ekki uppi á bændum, sem vinnufólk hefur ekki af að segjf, og þó lausafólk fái stundum hátt kaup, eins og t. d. á Anstfjörðum, gengur margt í súginn og kostnað- inn fyrir almenningi. Sjálft getur lausafólkið stung- ið hendinni í sinn eiginn barm og sjeð, hvo mikið hagnr þess er blómlegri en vinnufólksins. Jeg hef kynnzt ýmsu af lausafólki, sem hefur verið miklu lakar statt en vinnufólkið. Það er vonandi, að það verði ekki iangt þangað til, að það sjer það líka sjálft, þó enginn geti reitt sig á það. En það er annað verra en kauphæðin fyrir bændurna; það er peningagjaldið. Svo er mikil deyfð og ólag á verzluninni hjer, eins og allt af verður meðan hún er mestmegnis vöruskiptaverzlun. En hjer mundi mega miðla málum, þaunig, að kaupafólkið fengi helminginn af kaupinu í peningum, en helm- inginn í landaurum eða út úr búð, ef gjaldandi verzlaði við kaupmann kaupamannsins. Vel verk- að feitmeti mun fiest kaupafólk geta þegið, og eins sauðkindur; allt þess konar mundi einfaldast að gjalda á landsvísu, en kindur líka eptir vigt; það yrði stundum hærra og stundum lægra á markaði, en það væri reiknað til kaupgjalds. Hjer verða báðir hlutaðeigendur að hugsa um leiðrjettingu, ekki hvor að teygja sinn skækil, heldur hitt, hvern- ig beggja hagsmunir geti samrýmzt, því báðir hafa bezt af því, og landið hefur bezt af því, að hags- munir beggja sjeu sem beztir og með sem sann- gjörnustum jöfnuði. Það er vonandi, að augu vinnulýðsins opnist smásaman, svo hann sjái, að honum og landinu sje það fyrir beztu, að hann gangi að vinnumennsku. Lika er vonandi, að bændur rígbindi sig ekki við gamlar venjur, en liðki til í öllu þvi, sem þeim er ekki um megn. Einkum er það í sveitinni, sem vinnufólk virðist ómissandi; það eru líka sveitabændur, sem bágast eiga með peningagjaldið. Bjóðist vinnulýðnum af- arkaup einhvers staðar, eins og verið hefur á Aust- fjörðum, ellegar ef botnverpingar yfirgæfu Faxa- fióa, er þeir hefðu eyðilagt fiskitegund þá, er þeir sækjast eptir, og aptur færi að aflast á Flóanum, gæti sveitabúsk&pnum verið hætta búin, ef ekki væri ársvistarfólk i sveitinni, þangað til sveita- búskapur yrði svo arðsamur, að bændur gætu keppt við hvern sem vera skyldi í kaupgjaldsupphæð. Þeir eru til, þó fáir sjeu og ekki sem kunnug- astir, sem álíta nógan vinnulýð á íslandi, en það getur ekki verið; sjávarútvegur eykst og fleirum atvinnuvegum fjölgar, og það að miklu meira leyti en fólkið fjölgar; allt af týnist fólk út úr landinu, einkum frá vinnunni. Mikill fjöldi lærir; annar flokkurinn hnappast að verzlun, iðaaðarmönnum fjölgar, allt af þynnast fylkingarnar, sem vinna bændavinnu. En þó fólkið hafi fjölgað um fáeinar þúsundir, er fjölgunin eiagöngu börn, því ekki hefur vinnandi fólk flutzt inn í landið. Hjer er því enginn vafi á því, að ekki er nóg vinnufólk í landinu, ekki einu sinni til að halda því búskapar- lagi við, sem nú er, hvað þá til endurbóta. En nú er almenningur að heita á Bárð og vona á hann. En hvað á þingið að gera? Á það að herða á vistarbandinu. Það tel jeg ekki gerandi. En það gæti veitt vinnufólki einhver forrjettindi fyrir lausafólki eða verðlauu, ef það er í vist þangað til það fer að búa, fyrir 10 ár og þaðan af meira. og fyrir 15 ár, þó það færi þá ekki að búa eða yrði þá laust eptir þann tíma. Fólk, sem giptist til búskapar úr vinnumennsku, ætti að ganga fyrir lausafólki með jarðnæði og hæii eða eitthvað því líkt. Vinnufólk, sem verið hefði í vist í 15 ár, en færi svo ekki að búa, ætti að fá verðlaun, og eptir því hærri sem það væri lengur í vinnumennsku. Svo getur þingið lagt fram pen- inga til að smala fólki frá öðrum þjóðum, sem mjer sýnist óumflýjanlegt, því gagnslaust er að skrifa og skrafa um þetta sem annað, ef ekkert er gjört, og svefn og doði mun ekki lengur duga í þessu máli. Vinnulýðurinn biði auðvitað meiii eða minni halla við innflutning af fólki, en í það tjáir ekki að horfa; fyrst verður að sjá fyrir bænduuum, og lausafólkið getur líka dregið úr þessum halla með því að ganga í vistir. í vetur ættu þingmenn að fá skýrslur um það, hve margt vinnufóik bændur vantaði, hver í sínu kjördæmi, til hliðsjónar við meðferð málsins á þingi. J. B. Yínsölubannið. Templarar hjer i Reykjavik hafa nú komið fram með þá uppástungu, að skorað verði á næsta al- þingi, að fylgja fram algjörðu vínsölubanni hjer á landi. Eptir áskorun frá þeim boðaði þingmaður Reykvíkinga til almenns borgarafundar 3. þ.m. til að ræða málið, og var það ályktun fuudarins, að æskilegt væri, að vínsölubannið kæmist á. Það skal tekið fram til skýringar fyrir þá, sem mál- itíu eru ókunnugir, að hjer er ?.ð eins farið fram á, að bannað sje að vín, eða áfengi, gangi kaup- um og sölum innanlands; þar á móti er hverjum einum heimilt að panta svo mikið af áfengum drykkjum, sem hann vill, utanlands frá, neyta þeirra í landinu og veita þá öðrum. Víusölubann- ið bannar mönnum að eins að hafa áfengi á boð- stólum sem verzlunarvöru. Að þessu leyti er það gagnstætt aðflutningsbanninu á áfengi, sem nokk- uð hefur verið rætt hjer um áður, og sem banna á allan flutning áfengra drykkja til landsins. Þessi uppástunga er hjer ný, hefur aldrei verið rædd áður, nema ef vera kynni innan Templara- reglunnar. Það hlýtur því að vera kærkomið Templurum og öðrum bindindisvinum, að hún sje rædd af alvöru, einkum sje það gert frá því sjón- arrniði, hvort uppastungan sje heppilega valinu vegur til að ná markmiði þeirra, að út rýma á- fengisnautninni úr landinu. Það er sjálfsagt, að allir sanngjarnir menn, hvort bindindismenn eru eða ekki, hljóta að viður- kenna, að markmið Templarareglunnar er gott og lofsvert, og, að hún hefur yfir að líta ekki lítils- vert starf hjer á landi. Um hitt geta veriðskipt- ar skoðanir, hvort þessi eða hin uppástungan, sem fram kemur frá reglunni til efliugar bindindisins, sje heppileg eða ekki. Og um þessa uppástungu eru skoðanirnar skiptar meðal helztu bindindis- frömuðanna innan reglunnar hjer í bæuum, og verða það sjálfsagt enn meir, þegar út fyrir regluna kemur. Kjarni málsins er þetta: Miðar vínsölubannið, ef það kemst á, til þess að minnka áfengisnautn- ina í landinu? Þetta virtist mjer þeir, sem á fundinum töluðu og jeg heyrði til, taka sjer gefið,— en það er einmitt það, sem sanna þarf, eða færa líkur að — og því varð það aðalefnið að ræða um, hveruig bæta ætti landssjóðnum tapið, ef vínfanga- tollurinn svo gott sem hyifi úr sögunni. Hvort vínsölubaunið miðaði til að minnka á- fengisnautuina, getur reynslan ein sannað. Það eru að eins líkur, sem hægt er að færa frani með og móti. Drykkjan á veitingahúsunum hyrfi; það er víst. En hitt er lika víst, að það er ekki nema lítill hluti af því áfengi, sem keypt er, drukkið á veitingahúsum. Og hvort munu nú meiri líkindi til, að þeir menn, sem iðulega drekka vín á veit- ingahúsum, hætti að drekka, ef veitingahúsunum yrðí lokað, eða þeir drykkju þá aunars staðar. Jeg

x

Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.