Lögfræðingur - 01.01.1900, Page 1
Hundraðatal á jörðum.
Samið liofur
Páll líriem.
Með tilskipun 1. apríl 1861 var staðfest af konungi
ný jarðabók fyrir ísland. í jarðabók þessari voru all-
ar jarðir á íslandi metnar til liundraða. Eptir lienni
voru allar jarðir á íslandi metnar 86,755 lindr. 12 al.
Hundruð og álnir eru mælir jarða. fungavara er talin
í pundum, fjórðungum , vættum, o. sv. frv., vefnaðarvara
í þumlungum og álnum, fijótandi vökvi í pottum og pel-
um, peningar í krónum og aururn, og á líkan liátt eru
jarðir taldar í hundruðum og álnum. f>að er mikill mun-
ur á 5 hundraða koti og jörð, sem er hundrað hundraða,
eins og sumar af allra bestu jörðum landsins eru. Eptir
hundraðatali borga menn skatt af jörðunum og greiða af
þeim tíundir til prests, kirkju og fátækra. Eptir hundr-
aðatali mega menn telja með jörðum sínum fleiri eða færri
kúgildi, og þegar jarðir eru seldar, er opt miðað við
hundraðatal þeirra. |>að er því auðsætt, að það skiptir
miklu, að hundraðatal jarða sje sem allra rjettastur mælir.
Hundraðatal á jörðum er fornt mjög, en menn vita eigi^
hvernig jarðir hafa upphaflega verið lagðar í hundruð.
Lögfræðingur. IV. 1900.
1