Lögfræðingur - 01.01.1900, Blaðsíða 41
Hundraðatal á jörðum.
41
2. Jóreiður Hallsdóttir fjekk Ingibjörgu Hallsdóttur til
heimanfylgju landið í Sælingsdal fyrir 30 hundruð (Sturl.
II. 155). I Johnsens Jarðatali er jörðin talin að fornu
mati 30 hundruð; að nýju mati er hún 20.6 hundruð.
Eptir þessu er Ijóst, að jörðin á Sturlungaöld hefur verið
talin í álnum, því að það er fjarri sanni, að hún hafi verið
talin 90 hundruð álna eða 9000 kr. virði.
3. «Sighvatr (Sturluson) hafði til búsefna föðurarf sinn,
40 hundruð. Hann tók fyrst Galtardalstungu ok seldi hana
ok keypti Staðarhól hálfan» (Sturl. I. 199). í jarðabók
Árna Magnússonar er Galtardalstunga metin 40 hundruð,
og sarna er talið 1805 af sýslumanni. Að nýju mati er
hún 41.2 hundruð* 1) Að áliti dr. Valtýs hefði jörðin átt
að vera 40 hundr. þriggja álna aura eða 120 hundruð, en
þar sem menn sjá, að jörðin er nú talin að fornu mati 40
hundruð og að nýja matið er líkt, þá eru full líkindi til
þess, að þau 40 hundruð jarðarinnar, sem nefnd eru í
Sturlungu, sje hundruð í álnum, en ekki hundruð í þriggja
álna aurum.
er allt of hátt mat á Holtsmú'a. sem er að riýju mati 18.5
hundr., en matið getur verið að eins komið fram við ójöfn-
uð, er skipt var. Eptir þessu hefur Reynistaður með bjáleig-
unni Holtsmúla verið hundrað hundruð álna eða eptir mati
dr. Valtýs, er hundraðið er talið lOOkr. virði, 12,000 kr. virði.
Síðast þegar Reynistaður var seldur, var gefið fyrir hann
10,020 kr. Ef Holtsmúli ertalinn 1850 kr. virði, þá er verð-
ið alls 11,870 kr., og vantar þá cigi mikið í, að verðið sje nú
á tímum hjer um bil alveg eins og að fornu.
1) Dr. Valtýr Guðmundsson telur jörðinarúm 34 hundr. aðuýju
mati, en hann hefur eigi athugað, að jörðina Litlutungu á að
telja með, því að hún var á dögum Árna Maguússonar hluti
úr jörðinni (Jarðatal Johnsens, bls. 168, 5. og 6. ath).