Lögfræðingur - 01.01.1900, Blaðsíða 89
Menntun barna og unglinga.
89
þjóð, eru látnir hníga undir þeirri byrði, sem jafnvel betri
menn þjóðarinnar álíta ofvaxna heilu amti.
Á hinn bóginn er það aptur á móti nærri broslegt,
þegar þeir menn dæma skóla og kennara hart, sem eiga
að leggja fjeð fram og sem er það beinlínis að kenna, að
skólar og kennarar geta eigi notið sín vegna fjárskorts.
Jeg hef miðað við búskapinn hjer á landi, og get
jeg eigi, ef jeg á að halda líkingunni áfram, sagt annað,
en að í menntamálum alþýðu ráði rjettnefnd andleg hor-
kongapólitík og að íslenska þjóðin sje af öllum þjóðum í
Norðurálfunni, að Tyrkjum einum undanskildum, mestur
andlegur horkongur.
Jeg veit, að þetta muni særa tilfinningar ýmsra manna,
og að margir muni vera á allt öðru máli, en jeg. Skal
jeg því minnast á annað, sem jeg hygg að öllum komi
saman um, og það er, að íslendingar sjeu fátækir og að
atvinnuvegirnir sjeu í mjög slæmu lagi. — f>að er eng-
inn iðnaður til í landinu. Yjer látum Englendinga og
aðrar útlendar þjóðir vinna utan á okkur fötin og borgum
hátt kaup bæði þeim, er starfa að vinnunni, og þeim, sem
færa okkur hana. En á meðan er atvinnan svo í landinu,
að í bæjum og sjávarsveitum víðsvegar á landinu ganga
menn iðjulausir 175 daga áf þeim 300 dögum, sem eru
virkir í árinu. forskurinn og ísan hafa frá alda öðli heim-
sótt þetta land, en þau eru svo mislynd, að þau koma
stundum hjer og stundum þar, en ef þau koma ekki beint
heim til fólksins, þá sveltur það. f>að, sem bóndinn
framleiðir, er í litlu verði. f>ó að hjer á landi sje eins
góð mjólk, eins og hjá samþegnum vorum, þá er það svo,
sem úr henni er unnið, að það er yfirleitt ljeleg vara í
lágu verði.