Lögfræðingur - 01.01.1900, Blaðsíða 95
Menntun barna og unglinga.
9'5
haldsmann, og í góðu árunum eru þessir fjárhaldsmenn
hinnar íslensku þjóðar greiðari en ella á að lána forráðs-
leysingjunum. Svo er og hitt, að ef einhver vill bjarga
sjer og verður dálítið efnaður, þá eru ótal soltnir hrafnar
komnir í kringum liann. Gestir og gangandi þykjast hafa
heimting á alls konar framlögum endurgjaldslaust. Hey-
þrotamenn koma úr öllum áttum o. sv. frv.
|>etta er ekkert einkennilegt fyrir fslendinga; þetta
sama lögmál gildir um alla menn. Ómenntaðir menn
kunna yfirleitt ekki að fara með efni sín, og það er einn-
ig annað lögmál, sem gildir um þá, og það er fyrst og
fremst. að þeir geta ekki kannast við menntunarleysi sitt,
og þeir geta ekki skilið gildi menntunarinnar. [>ess vegna
er svo, að lítt menntaðir menn eru ákafiega tregir til, að
leggja fje til þess, að efla menntunina. |>að er ekkert
annað, en hin sárasta neyð, sem getur knúið menntunar-
snauðan lýð til þess, að leggja á sig byrðar vegna mennt-
unarinnar.
Jeg gat áðan um, að ýmsir menn töluðu um, að það
þyrfti að kenna þjóðinni að vinna. J>etta er rjett, en það,
sem þá ríður mest á, er að kenna mönnum að vinna með
viti. Andinn stýrir hendinni. pess vegna ríður á, að
mennta andann, og vil jeg í þessu efni taka upp orð
manns á Englandi, þar sem hann talar um menntun
manna og efnahag, en orð hans hljóða þannig:
i)pegar á að meta fjárhag einhvers land, þá er ekki
rjett að miða við auðæfin, heldur er hinn sanni mæli-
kvarði hæfileikar landsins til þess, að skapa auðæfi. f>að
er ekki bolmagnið, heldur andi mannsins, sem veitir yfir-
burði í iðnaði og allri framleiðslu. f>að eru ekki kraptar
líkamans, heldur kraptar heilans, sem framúrskarandi