Lögfræðingur - 01.01.1900, Blaðsíða 96
96
Páll Briem.
framleiðsla í iðnaði, landbúnaði o. sv. frv. er undir kom-
in. pað er ekki sterki verkmaðurinn, heldur skynsami
verkmaðurinn, sem ber uppi iðnaðinn. J>að er ekki vjel-
in, heldur er það hin skapandi og leiðandi skynsemi, sem
er mestur aíiandi fjárins og gætir þess. Andi mannsins
er hjer meistarinn og sterkasta aflið til þess, að skapa
auðæfin og leiða þau fram úr skauti náttúrunnar. |>ess
vegna er hinn besti auður hverrar þjóðar fólginn í því, að
þjóðarinnar menn hafi til að bera andlega yfirburði og
andlega atgjöríi.
Hvað gjörði Prússland, þegar Frakkland beygði það
alveg niður að jörð? |>að endurbætti skólana. Hvað
gjörði Frakkland, þegar pýskaland kom þvíáknjen? þ>að
endurbætti skólana. Samkeppni þjóðanna er andleg bar-
átta. J>að er ekki eintómur bardagamaðurinn, sem er
sigurvegari vorra daga, lieldur er það sá, sem skarar fram
úr að hugsun. í ófriðnum 1870—71 voru Frakkar ekki
óhraustari en J>jóðverjar, en skipulag hjá þeim var verra.
J>jóðverjar standa okkur á sporði í verslun og iðnaði, af
því að skólar þeirra eru fremri.«
Annar menntamálahöfundur á |>ýskalandi, J. Tews
kennari, segir svo: »f->egar menn skrafa um stjórnmál
hugsunarlítið, þá telja menn skólann arðlitla stofnun. En
það er hlægileg skoðun í þjóðhagslegum efnum. f>að er
ekkert til, sem gefur meiri arð, heldur en skóli, sem gjörir
ungmenni þjóðarinnar vel hæf til þess, að leysa af hendi
þau störf, er vinna þarf í þjóðfjelaginu, að því ógleymdu,
að skólinn er nú á dögum sú stofnun, sem viðhald, vöxt-
3) Holman, H. English national edueation. London. 1898.
bls. III.