Lögfræðingur - 01.01.1900, Blaðsíða 120
120
Páll Briem.
mörgum þjóðilokkum í öðrum löndum, sem eru margfalt
fjölmennari, en þeir eru.
Teikning er mjög nauðsynleg fyrir hvern mann. þ»að
er eigi heppilegt, þegar æskulj'ðurinn vex þannig upp, að
liann getur eigi búið til óskakkt stryk. Teikningin er
nauðsynleg til þess, að skerpa athuga manna og opna
augu þeirra fyrir ýmsu, sem þeir annars geta tæplega sjeð;
hún eykur fegurðartilfinningu manna, og er skilyrði fyrir
því, að hægt sje að kenna æskulýðnum handavinnu. Sem
eðlilegur milliliður milli teikningar og handavinnunnar
kemur skólaiðnaður, og væri heppilegt, að æskulýðurinn
fengi nokkra kennslu í honum.
J>að má heita að kunnátta í handavinnu sje á lágu
stigi hjer á iandi, og því er nauðsynlegt, að þjóðfjelagið
taki að sjer að sjá um, að æskulýðurinn fái fræðslu í
þessari grein. Handavinnu þurfa jafnt að læra sveinar og
meyjar, auk þess sem veita þarf meyjunum fræðslu í mat-
reiðslu og liússtjórn.
þ>ess var áður getið, að það væri nauðsynlegt, að menn
yxu upp hraustir og heilbrigðir. þ>ó að andinn stjórni
líkamanum, þá gildir einnig hjer, að hershöfðingi með ó-
nýtu liði fær litlu áorkað. Pyrir því er nauðsynlegt að
hafa leikfimi, leiki og skókböð, sem herða og styrkja lík-
amann, auk þess sem leikirnir eru ágætt meðal til þess,
að skýra fyrir unglingum nauðsyn margra dyggða, svo
sem hlýðni, sannsögli, sjálfsafneitun og hugprýði.
Hjer hefur verið talað um almenna menntun, en ekki
um sjermenntun þá, sem jafnan þarf að veita í öðrum skól-
um, kvennaskólum, gagnfræðaskólum, búnaðarskólum o.sv.
frv. þ>essi almenna menntun, sem hjer hefur verið rætt um,
er nokkru meiri, en áður hefur verið heimtuð hjer á lanidi,