Lögfræðingur - 01.01.1900, Blaðsíða 139
Dómstólar og rjettarfar.
139
vinnur vitnið, og rjettir um leið upp 3 fremstu fingur
hægri handar, eptir að dómarinn liefur lesið upp fyrir því
eiðsútskýringuna og áminnt það um sannsögli á annan
hátt, ef þörf er á. Enginn getur unnið eið, nema hann
sje orðinn 15 ára.
I'egar tvö fullgild vitni bera hið sama um eitthvert
atriði, og ekkert er fvrir hendi, sern virðist hnekkja fram-
hurði þeirra, er full sönnun komin fram fyrir þessu atriði,
en fullgild eru þau vitni að eins, sem eru í alla staði
heiðarleg og óiastanleg; ógild vitni eru því þeir menn,
sem hafa gjört sig seka í stórglæp, svo sem morði, brennu,
blóðskömm og þess háttar, eða þjófnaði, svikum eða lík-
um glæpum, sem lýsa lágum hugsunarhætti; þessi vitni
má að sönnu leiða fyrir rjettinn, en þau verða ekki tekin
í eið. Ef það sannast, að vitni er opinber óvinur þess,
sem hann vitnar á móti, þá er það ógilt, en bæði má
leiða hatursmanninn sem vitni og eiðfesta hann. Vilhöll
vitni eru einnig ógild, en þau vitni eru vilhöll, sem sjálf
hafa hag af því, að málið fái þau úrslit, sem þau halda
fram, eða þau vitni í hag einhverra sjer náskyldra, svo
sem foreldra, systkina, barna og yfir liöfuð svo náskyldra
eða tengdra og systkinabörn eru. Hjú, meðan þau eru hjá
húsbændum, eru eigi gild vitni, ef þau bera vitni þeirn í
hag. I>ó eru þessi vilhöllu vitni gild í málum, þar sem
eðli málsins er þannig, að ekki hefur verið hægt að ná í
nein önnur vitni. þ>að er álitið, að þessi vitni geti neit-
að að láta leiða sig, nema þegar undantekningin á sjer
stað, og hjón má aldrei leiða hvort gegn öðru, ef fram-
burður þess getur haft í för með sjer fjárútlát fyrir fje-
lagsbúið. Vitni, sem hafa velvildarþokka tii þess partsins,