Freyja - 01.07.1898, Qupperneq 3
FREYJA, JÚLÍ 1898.
3
hinn riki piltur innst í sæti
sör valla ræður vegna kæti;
er réttvíslega röðin sett?
Ég trúi þessu enn þá eigi
ég ætla að gæta vel að því
og koma sjálfur kyrkju í,
en því er ver að satt ég segi;
það sanna lang bezt fötin hans,
að hann er eign hins auðga manns,
sem gæfan leiðir lífs á vegi;
sjá, danska skó og hálstau hvítt
liann hefur alt svo gott og nýtt,
en enga grein í kveri kann,
þó klerkurinn sé að prófa hann.
IX.
Hver grætur, særður sorg og trega
og situr fremst á bekknum þarna,
og búinn fremur fátæklega
í fögrum hópi droltins barna?
Hann líkist dauða dœmdum manni
og dirfist ekki neinn að sjá;
ei veit ög hvað því valda má
að huggast ei í helgum ranni.
Vill fóik h inn ei í friði láta?
Hvi fór hann hingað til að gráta?
Hví kom hann til að kveljast hét
i kyrkjuni, hver vill segja mér?
Er þetta dóms-hús, drottinn minn,
hvar dæmist til glötunar syndarinn?
í þessu h úsi er þjáning skoðuð;
í þessu húsi er náðin boðuð.
En fríði sveinninn sviftur vonum,
sem gáfna Ijót sér geimir í
og gæti mikill orðið því,
en kvíði býr í brjósti honum,
því vel hann veit,
við sult og sveit,
hann lifa má um aldurs ár
og oftar en núna fella tár.
X.
Spyr klerkur drenginn einu að,
en ekki fær liann svar um það,
því grátur heftir mál í munni,
því fátæklingsins blaut er brá,
nú barn hann reynizt verra en sá,
sem ekkert fagurt kann né kunni
G■ J. Guttormsson.
F E l í ÐASA G A
UNGFRÚ J. A. TIL ÍSLANDS.
(Framliald frá síðasta númeri.)
Frá því semma á öldum hefur
ríki og kyrkja verið þar sameinað,
926 var fyrst komið á sameinaðri
innbyrðis stjórn, og 929 voru lög
samþykt á Þingvelli; og lögsögumað
ur kosinn er kunna skyldi lög öll og
iesa upp í lögréttu í áhevrn fólksins.
Alþ. átti bæði að semja lög og dæma
m«l manna. Um nokkur ár voru svo
allar deilur jafnaðar þar, alt þang-
að til að rýgur kom í höfðingja,
skiftist þá landið í héruð, og skyldi
þá hver héraðshöfðingi dæma mál í
sínu héraði á héraðs þingum. Varð
þá a Iþing meira löggjafar þing en
dómþing, A 12. öld höfðu lands-
menn lög sín fyrst skrifuð, I deilum
(sem þá voru svo tfðar rneðal höfð-
ingja landsins) leitaði einn á náðir
Noregs konungs; þótti kon.vel að ná
áliriíum á íslandi, og var það upp-
tök hinnar löngu kúgunar lands-
manna sem byrjaði með Noregi, og
barst þaðan í hendur Dana.
A U.öldinni sameinaðist Noregur
með öllu tilheyrandi Danaveldi.
Var þá alþing Isl. af tekið með
öllu, en landsyfirrétti koinið á ístað
inn. A rið 1843 var alþing aftur stofn
sett og tveim árum seinna flutt til
Reykjav., sem er höfuðstaður lands-
ins. Árið 1674 á þúsund ára þjóðhá-
tíð þeirra gaf konungur þeim stjórn-
arbót, sem hann afhenti þeim sjálfur
á hinni fornu þingstöð þjóðarinnar:
Þingvelli. Stjórnarbót þessi gjörði þá
að sjá.lfstjórnandi þjóð. Alþing sam-
anstendur af efri og neðri málsofu,
og 36 þingmönnum. I efri málstof-
unni eru 6 konung kjörnir menn, og
6 kosnir af þingmönnum neðri má]-
stofunnar; eru því 12 í efri, og 24 í
neðri niálstofunni. Yfir hvora þeirra
er forseti kcsinn af þingmönnum
sjálfum. Alþing kemur saman annað
hvort ar. Þingmenn eru kosnir af
kjörgengum karlmönnum yfir 20ára
sem gjalda til ríkis og kyrkju. Stúd-
entar hafa kosninga rétt sökum
kunnáttu þeirra. Konur eruhvorki
,fólk‘ né ,einstak lingar', cg hafa því
ekki kosninga rétt; en þeirra tími
kemur.
Við vorum svo heppnar að vera
staddar í Revkjavík urn þingtímann.
Ungfrú Olafrasýndi okkur forngripa
safnið; mátti þar sji marga liluti
merkilega. Eftir það fórum við inn
á áhorfandapallinn í þingsalnum,
og okkur til stórrar undrunar hitt-
um þar stóran hóp af konum. Úr
beztu sætunum sást vel yfir allan
salinn- Landshöfðinginn þekktist
glögt á einkennisbúningi sjnum. Mest
a '.iygli dró þó ræðumaðurinn að sér
hann hafði þá verið forseti í 6 ár
Hann hafði sett annann rnann í sæti
sitt, og hélt svo þrumandi ræðu um
heima stjórn íslands. Maður þessi
var Benidikt Sveinsson, ræðuskör-
ungur mikill, og föðurlands vinur.
Öll herbergi tilheyrandi.þingsalnum
eru snoturlega búin; í einu þeirra
er standmynd af Jóni Sigurðssyni,
manni þeim sem ísland á mest að
þakka af öllum seinni tíðar mönnum
sínum. Ólíkt flestum öðrum endur-
bótamönnum, auðnaðist honum að
sjá fylling vona sinna, og áyöxt erf-
iðis síns áður enn hann dó.
I höfuðstaðnum eru tveir háskólar
Lat'nuskólinn og prestaskólinn. Af
þeim fyrri fara stúdentar á Khafnar-
háskólann; af þeim síðari vígjast þeir
til stöðu sinnar.
I sveitum eru engir alþýðuakólar
sökum vegalengdar milli býlanna;
í þess stað eru umferðar kennarar,
sem færa sig stað úr stað; fá börnin
þannig undirstöðu í flestu sem kent
er á alþýðuskólum
Nú réðum við af að ferðast austur
um land og fengurn með okkur
Indriða Einarsson, hann var vegum
kunnur vel. Ilópurinn samanstóð af
okkur sjálfum, meðreiðar manni og
þeim beztu hestum sem til voru í höf-
uðstaðnum.
Eftir nokkurra mílna ferð áleiðis
til Eyrarbakka, komum við í liraun
umgirt háum fjöllum eða hæðum með
allskonar lagi og litum; hér hefur
n íttúran með sinu vilta breytilega
eðli tekið mannlegu hyggjuviti langt
fram er hún myndaði þessar eldf jalla
bungur, sem með hörku sir.ni hæða
hin ytriöfl, og standa eins oglifandi
undur óbreyttanleg öld eftir öld.
Nú vorum við að kynnast erfiðleik-
unum, sem fylgja íslensku ferða
lagi, umkringd eins og við vorum af
hrauni sem var margar m'lur alt um
hverfis okkur,
Af 18 hraunflóðum, sem sögur
fara af hefur ekkert verið eins mikil
fenglegt, og haft eins eyðileggjandi
áhrif og það er leið okkar lá í gegn-
um. Sé hraun það afleiðing af gosi,
hlýtur það að hafa verið einhvern-
tíma snemma á öldum, i ómunatíð,
þvf í 1000 ára sögu þjóðarinnar er
þess hvergi getið. Framh. næst.