Alþýðublaðið - 27.01.1927, Qupperneq 1
©öfiH ét af Mpý3ufl@kkstusit
1927.
Báturinn ófundinn.
Loítskeyti kom í morgun frá
Vestmannaeyjum til stjórnarráðs-
Ins. Segir þar, að vélbáturinn
„Mínerva“ sé ófundinn.
Erlend símskeyti.
Khöfn, FB., 26. jan.
Fimtudaginn 27. janúar.
22. tölublað.
Framhalds-aðalfundur
verður haldinn fimtudaginn 27. p. m. kl. 8 e. h.
i Goodtemplarahúsinu.
Fundarefni:
1. Félagsmál. 2. iCasipgJaldksmálið.
Mætið allir stundvíslega!
Stjðrnin.
B. D. s.
ÚTS AL A.
Nokkur hundruð kaffikönnur
1—2 kr„ katlar 90 aura, þvotta-
balar, blikkfötur, skólpfötur,
þvottabretti og margt fieira með
gjafvexði. Aluminiumpottar frá 1
kr., bollapör 25 aura, diskar,
stórir, 45 aura. Á gölluðum vör-
um samkomulagsverð.
Kinamálin.
Japanar neita að berjast við
Kínverja.
Búist við sama af Bandaríkj-
unum.
Frá Lundúnum er símað: Stjórn-
Sin í Japan hefir neitað hernaðar-
samvinnu við England gagnvart
Kína. Talið er sennilegt, að
Bandaríkin neiti því einnig. Er
jafnvel búist við, að flestar þjóð-
ir muni viðurkenna kröfur Kan-
tonstjórnarinnar.
fer héHan fll FJ©i*®gs f kvöld kl. ©,
WHrsir afhesadást í stsig®
MICo HJaris^g©ii.
IlaniBies Jéitsson,
Laugavegi 28.
Brnnatryggið
hjá okkur. Við tökum bæði litlar
og stórar tryggingar og gerum
engan mun á, hvort viðskiftin eru
stór eða lítil, við gerum alla vel
ánægða.
H.f. TroIIe & Rothe,
rétar Levl
selur næstu daga flauelis- og filt-hatta með mjög lágu verJí,
Mássssædiar l
Munið, að þvottadagurinn verður ykkur þriðj-
ungi ódýrari, ef þið notið
MT 6old Dost. -Wi
Fæst alls staðar, í heildsölu hjá
Sturlaug|f Jéiassfssl & €o.
Sími 1680. Simi 1680.
im
Indverskir þjoðernissiimar Iáta
í Ijós samúð við Kínverja.
Frá Bombay er símað: Stjórnin
í Indlandi sendir herlið til Kína.
Indverskir þjóðernissinnar hafa
mótmælt því harðiega og hafa
Játiö í ljós samúð sína með Kín-
vexjum.
Khöfn, FB., 27. jan.
Ástralskir sjómenn neita að
vinna gegn Kinverjum.
Frá Mcibourne er símað: Sjó-
imenn í Ástralíu hafa neitað því,
að aðstoða við flutning á herliði
<og herföngum, sem fara á tii
Kína.
Jarðskjálfti i Noregi.
Frá Osló er símað: Snöggur
jarðskjálftakippur kom í Bjö'rgvin
>og Haugasundi. Kippurinn var
snarpur, og varð hans lika vart
á Skotlandi norðanverðu. Tjón
varð ekki af völdum hans.
„Infflúeiisaii44
í Kaupmannahöfn.
1 gær barst stjörnarráðinu svo-
feit símskeyti frá Sveini Björns-
.syni sendiherra:
„6 300 ný „infiúenzu-tilfelh" í
Kaupmannahöfn í síðustu viku.
Veikin er stöðugt væg hér. Eng-
ar aðrar sérstakar nýjungar um
„inflúenzuna“.“
Jarðarför
Ólafs Gunnarssonar læknis fór
'fram í gær að viðstöddu miklu
fjölmenni.
Sóttvarnir gesn „mfMenzuai!i“
í Fsreylnm.
„Morgunblaðið14 segir rangt frá.
„Mgbl.“ hermir það í gær, og
ber fyrir sig Færeyjablaðið
„Tingakrossur", að sóttvarnir á
eyjunum gegn „inflúenzunni“ sé
„ekki annað en kák“. í blaðinu sé
sagt frá þvj, að enskt kolaskip hafi
komið til Þörshafnar 11. janúar
ög haft. samband við land og
landsmenn alveg eins og fara
geri, en yfirvöldin hafi ekki hafst
annað að en að festa upp aug-
lýsingu með viðvörun tii bæjar-
búa uni að hafa ekki -mök við
•skipverja.
Alþbl hefir spurst fyrir hjá
sendiherra Dana um það, hvernig
í þessu liggi, og upplýsti hann, að
frásögn „Mgbl.“ væri algerlega
villandi. Sóttvarnarráðstafan.irnar
í Færeyjum hafi einmitt verið á-
kveðnar 11. janúar, sama dag og
kolaskipið enska kom, og náði
ráðstöfunin því ekki til þess. Eft-
ir að sóttvarnarráðstafanirnar
voru ákveðnar, hefir þeim auð'
vitað verið fylgt fast fram.
litnleiid fíDlndi.'
Af Snæfellsnesi.
Stykkishölmi, FB., 26. jan.
Veðurfar gott hér um slóðir
undanfarið, nema hvassviðri mik-
;ið var í fyrra dag, -en ekki hefir
frézt, að nokkur skaði hafi orðið
af völdiim þess. „Lagarfoss“ gat
ekki lokið sér af alveg á Sandi og
Ólafsvík og fór inn á Grundar-
fjörð í óveðrinu, kom svo hingað
og fór héðan í birtiingu í morigun
áleiðís til Flateyjar, en mun hafa
skijið eftir hér jiað, sem hann
hafði að vörum til Sands og ól-
afsvikur .
M.b. „Svanur“ annast strand-
gæzlu hér í flóanum um skeið,
unz strandvarnarskipin eru bæði
tekin að annast strandgæzluna
aftur. Botnvörpungar og línuveið-
arar hafa verið ærið nærgöngulir
hjá Sandi og Ólafsvík, og kvarta
Eimskipafélagshúsinu.
úr kúm sem nytkaðar eru hér í
bænum, er til sölu daglega kl. 10
til 11 árdegis.
Nánari upplýsingar í síma 591.
HIm vel|j©ktsu
„Maiíes44
aærföt aftwr koBMÍM í öllum
stæpiam — Wevð að eins
kr. ©,S@ settið.
Útsala.
Vmsar þvottasápur, t. d. sól-
skinssápan, seidar með alt að
helmings afslætti. Sódi 10 aura,
Kristalssápan 40 aura 1/2 kg.
Þvottaduft 45 aura pakkinn.
Margt fleira, t. d. niðursoðnir á-
vextir, fyrir, um og undir hálf-
virði. Sykur og matvörur mjög ó-
dýrt.
„Merk|asteiim“
Vesturgötu 12.
menn undan veiðarfæraskemdum
af vöjdum þeirra.
Heilsufar dágott. Kvefpest rén-
andi.