Freyja - 01.07.1903, Page 13

Freyja - 01.07.1903, Page 13
FREYJA 205 svo strangt. E11 tœplega minnkar þaö hann í augum alþýöunnar. Enda er þaö fyrir löngu reynt oröið.aö alþýöan verðuraldrei kveöin niöur, né heldur bætt meö ósanngjarnri hörku. Þaö er vinsemd og bróöurþel, sem lagar og lyftir og brúar djúpið milli alþýöunnar og mennta-mannanna. Ekki get ég séð hvernig ritst. fer aö draga þaö út úr , ,Síöustu varnar-ræöu E. C. Stanton fyrir konur, “ að sjálfsagt sé fyrir hverja konu aö hlaupa frá manni sínum undir eins og hún veröur eitthvaö óánægð við hann. Slíkt er íjarstœða mikil. Þar er aðeins talaö um það sem örþrifsráð, hjónaskilnaöur sé þá ekki einungis mögulegur, heldur og auðfenginn,þegar persónurnar geta ekki lengur búið sam- an nema sár og börnum sínum til siöferðislegs tjóns. í einu ríki í Banöaríkjunum er hjónaskilnaöur ekki til. Afleiöingin er blátt á- fram fjölkvæni, að vísu er það nokkuð á huldu. En það kvað vera eitt af þessum glæpum, sem enginn þorir að hreyfa við af ótta fyrir að koma upp urn sjáltann sig, og stjórnin reynir ekki að lagfæra, af sörnu ástæöu. Þetta er sjálfsagt auðnumerki fyrir þetta ríki, ogþað sem mannfélagiö ætti að keppaaö! Annars er þaö tíöara að menn hlaupi frá konum sínum, en að þœr hlaupi frá þeim. Ég skal fúslega leggja það undir dóm heilbrigðrar skynsemi, hvort sú skoöun E.C.S. sé vanheil eða ekki. Og svo mun'um fleira vera, það sem sumir kalla vanheilt, að það verður af öðrum hollt og heilbrigöt kallað. Eigi er það heldur sjaldan, aö hugsjónirnar - nýmœlin, sem einu sinni voru barnaskapur eöa villa kölluö, hafa með tímanum rutt sér til rúms og orðið að drottnandi afli í heimin- um, og eitt af þeim nýmælum var kristindómurinn sjálfur. Margrjet J. Benedictsson. IÐNAÐARSYNINGIN í WINNIPEG. Menn eru farnir að búast viö Iðnaöarsýningunni í Winnipeg árlega eins og sjálfsögðum hlut. Nokkru sem ekki meigi missast. Hún er orðin hátíö fyrir fólkið í Manitoba og víðar. Ilún er nokkurskonar staöur, þar sem vinir og vandamenn mæla sér mót í þúsunda tali, þess vegna hlakka menn til hennar fjœr og .nœr. Árlega er mörgum þúsundum dala kostað til þessarar sýning- ar. Árlega veröur hún tilkömumeiri og stórkostlegri. Og eins og

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.