Freyja - 01.03.1905, Page 1
3-
. BINDI. MARZ 1905. TÖLUBLAÐ 8
PJETURSBORG.
(tír Baldri.)
—O---
I.
Þaö stóö eins og skotspónn,með berskjölduð brjós
gegn- byssunum spenntum er atlagan hófst,
það brást ekki dyggð fyrir brottflóttans grið
það boenheyrslulausa, það einstœða lið,
þeir kappar úr Hungraðra-hreysi,
þœr hetjur frá Réttindaleysi.
Og svo reið að skruggan og skotin,
sem skóg lýstur eldirl^ —svo breyttuSt þau mögn
í hræ-reyk og helkyrðar-þögn.
Svo lyftist sá lognmökkur ögn,
sem lín-blæja’ af líkbörum flotin.
Svo glórði’ í þau hundruð sem höfðu þar velzt,
svo hvinu við óp þess, af sársauka kvelst —
og andartaks-þögnin var þrotin.
Þar stóð upp’ í hertýgjum lífvörður lands
hjá leifum af fylking hins vopnlausa manns,
við lík-köst og lifandi brotin.