Mosfellsblaðið - 01.07.1999, Page 7

Mosfellsblaðið - 01.07.1999, Page 7
Skólagarðamir norðan Gagnfrœðaskólans. Fjölskylda að setja niður 20. júní, eftir að gefist var upp á Skarhólamýri. Mosfellsbær var um árabil með kart- öflugarða fyrir bæjarbúa í hæðinni sunnan við Gagnfræðaskólann. 1995 voru garðamir fluttir á Vestursvæðið við núverandi Baugshlíð, meðan verið væri að undirbúa garðstæði í Skarhóla- mýrir við Lágafell, samkvæmt aðal- skipulagi. Garðamir vom í tvö sumur á Vestursvæðinu við ólánlegar aðstæð- ur, en síðan fluttir að Skarhólamýri og em þar nú þriðja sumarið. Þar hafa sumir leigjendur búið við það að setja niður í blauta leirdmllu og hafa nokkrir gefist upp. Garðyrkju- stjóri hefur verið fólki vinsamlegur og beint því í ónotað svæði í skólagörðun- um, þar sem er landhalli, þurrt og gott. Þessi færsla garðanna er illa undir- búin og garðyrkjustjóri sveltur í fjár- magni til undirbúnings. Þessi útivistar- aðstaða gerir kröfu til þess að land sé vel framræst, vegir og aðkoma sé sæm- andi, sett upp skýli með borði og bekkjum og skilyrðislaust hreinlætis- aðstaða þegar sett er niður og tekið upp að hausti. Merking vegna bannaðrar umferðar hunda og þetta sé í anda sið- aðs bæjarfélags. Ekki þarf mikla pen- inga til að koma þessu í lag og að rækta kartöflur er íþrótt út af fyrir sig. Fyrst llsk\ÍEinsla. svo kvóti síðan höfln Fiskvinnslan Snakkfiskur h/f var stofnuð í Kópavogi fyrir íjómm ámm, en flutti að Þverholti 8, í hús A.Oskars- sonar h/f í april s.l. Húsnæðið er um 340 ferm. I viðtali við Halldór Berg kom fram að fyrirtækið hefur þróað svonefndan snakkfisk, sem þurrkaður er í sérstökum ofni á staðnum og er þessi framleiðsla afar bragðgóð, í þetta er notuð ýsa og stein- bítur. Einnig fram- leiða þeir fískborg- ara og em að þróa ýmsar tegundir af fískréttum. - Asmt fyrirtækinu M.S. vinna þeir á staðnum þorsk og ýsu í frystingu og llytja út til Bret- lands. Það em nýjar fréttir að fiskvinnsla sé komin á fót í Mosfellsbæ, en hvers vegna ekki? Mosfellsbær er mjög mið- svæðis og því mætti ekki kaupa hingað kvóta og huga betur að hafnarstæði sem við höfum á aðalskipulagi og hafa fyrirvara á hæð undir Sundabrú. F.v. Júlíus Rafn Júlíusson og Halldór Berg Jónsson í vinnusal fyrir- tœkisins með fiskborgara í vinnslu. Þeir eru búðirfrá Vestmanna- eyjum,en búa í Reykjavík og Hafnarfirði. Enskunámskeið í haust verður haldið enskunámskeið fyrir fullorðna í Mosfellsbæ. Námskeiðið verður bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Áhersla verður lögð á talmál í léttu og skemmtilegu umhverfi. Þeir sem hafa áhuga vinsamlega hafið samband við Sue Ólafsson í síma: 5666 956 eftir kl. 15 Arleg vorhátíð Foreldrafélags leik- skólans í Reykjakoti var haldin 5. júní s.l., en félagið bauð börnum og fjöl- skyldum þeirra í frítt grill og meðlæti, síðan var öllum börnunum um 125 tals- ins gefínn bolur. Formaður Foreldrafé- lagsins er Jóna Dís Bragadóttir. Samkeppni um hönnun skóla- byggingar á Vestursvæðinu Bæjarstjórn hefur samþykkt að ganga til samninga við arkitektastof- una „Úti og inni sf arkitektar“ og með- höfunda þeirra urn endanlega hönnun ágrunnskólaá Vestursvæðinu. Hönn- unin er byggð á tiilögu þeirra í sam- keppni sem valin var af dómnefnd sem besta tillagan. ferslfjur og freistandi Moslellsblaðið ©

x

Mosfellsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.