Fram - 08.03.1918, Blaðsíða 3
Nr. 7
FRAM
25
LJÁBLÖÐ
Peir se/11 hafa í hyggju að kaupa hjá mér ljá-
blöð og brýni til sumarsins þyrftu að lát mig vita
um það þið allra fyrsta. Verðið líkt og síðasta sumar.
Sig. Kristjánsson.
HÁKARLSLIFUR
kaupir hæsta verði næstu vertíð, lifrarbræðsla
Oskars Halldórssonar
ísafirði.
er ekki ólíklegt að fyrst um sinn
fengist rafmagn til að sjóða við að
minsta kosti 4—5 mánuði af árinu.
Hve mikla þýðingu þetta hefir er
hægra að hugsa sér en tölum telja
því þó stríðinu linni, má óhætt ganga
að því vísu að hátt verð mun bæði
á kolum og steinolíu. Þar sem nú
augljóst er, að byggja þarf nýja afl-
stöð til þess að fá rafmagn til ljósa,
virðist sjálfsagt að taka þetta með
í reikninginn strax.
Fyrirkomulag það sem lýst hefir
verið, verður óneitanlega dýrt, en
þess verður að gæta, að þetta fyr-
irtæki mun gefa svo mikið af sér,
að fullkomlega verður hægt að greiða
rentur og afborganif. Annað er4það
að þegar búið er af hreppsnefnd að
tryggj* sér rétt' til ánna, má haga
byggingum eftir ástæðum, takaárn-
ar smátt os smátt ef svo vill, sé
ekki hægt ao koma öllu í framkvæmd
í einu. Verst er, ef árnar ganga úr
höndum hreppsnefndar og verða
einstakra manna eign svo óhjákvæmi-
legt verður að taka eignarnámi bæði
þær sjálfar og mögulegar bygging-
ar, eftir þessu mun ekki þurfa að
bíða lengi að því er Skútu ána snert-
ir, en sé undinn bráður bugur að
með hana, mun það ekki mjög mikl-
um erfiðleikum bundið nú, að minsta
kosti hefir Lárus í Saurbæ látið það
í Ijósi við mig að því er hann snert-
ir. Hann mun hafa réttinn að hálfu
hvað þessa á snertir.
Eitt veit eg með vissu, og það
er, að fólk hér vill mikið til vinna
að fá að hafa rafljósin, og það jafn-
vel undir þeim skilyrðum sem nú
eru. F>ess vegna þarf, og er nauð-
synlegt að tryggja bænum allan þann
vatnskraft sem til er, og það frá
fyrstu hendi.
Að því er snertir iðnað«rstofnan-
ir og aðra vinnu sem reka mætti
og þyrfti með rafmagni, þá er það
svo margvíslegt, að best mun vera
að fara ekki langt út í j»á sálma.
Pó vil eg leyfa mér að nefna slipp
og vélsmíðaverkstæði, rafmagn á all-
ar síldarstöðvar til véla er kverka
síldina, þær vélar koma vooandi
innan skams, rafmagn til allra minni
fiskibáta,’ fljótlega mun verðabreytt
til, og rafmagn tekið í stað stein-
olíu, ennfremur loftskeytastöð, nóta
og línuverksmiðju, og svo má að
eins drepa á rafmagn til að reka
með tunnuverksmiðjur, og síldar-
verksmiðjur.
Hér er margt ótalið, en af þessu
sem talið er upp má sjá, að þó
Siglufjörður hefði mörg þúsund
hestöfl rafmagns til umráða, þá kæm-
ust þau til nota á einu ári.
F*eir sem framkvæmdavaldið hafa
hér, verða þvi að gera sér hugfast
að leggja allar árnar undir bæinn,
og það í tíma, verða að muna eft-
ir að margt smátt gerir eitt stórt,
og að það verða engar smávegis
kröfur sem Siglufjörður gerir í fram-
tíðinni á þessu sviði.
Framh.
Kolaúthlutunin.
Eg var einn af þeim mörgn er komu á
miðsvetrarfundinn og bjóst við að heyra
þar margt fróðlegt. Eg bjóst við að heyra
hreppsnefnd gera þar grein fyrir verziun
sinni eða úthlutun. Eins bjóst eg við því
að gerðar mundu fyrirspurnir til hrepps-
nefndar og þeim svarað. — En þetta varð
ekki. — Af hverju veit eg ekki, en hugsa
þó helst að mönnum hafi ekki gefist tími
til þess, því þegar búið var að lesa það
upp á þessum fundi, sem venjulega er upp-
lesið á slíkum fundum, spurði oddviti hvort
nokkur vildi taka til máls. Stóð þá Guðm.
Bíldahl upp og vakti máls á hvort hrepp^-
nefnd ætti að annast svarðartekju í stærri
stíl á næsta vori. Oddviti svaraði snúðugt
og sagði: »Eg er annars búinn að segja
fundi slitið.«
Eg sem þetta rita, hafði sérstaklega von-
ast til, að heyra minst á kolaúthlutun
hreppsnefndarinnar, því mér, og eg veit
líka mörgum öðrum þykir, hún mjög at-
hugaverð og'skal skýra dálítið nánar frá því.
Á síðastliðnu hausti var listi látinn ganga
um kauptúnið, og gátu þeir, sem skrifuðu
sig á hann fengið keypt ensk kol (frá
Tynæs) fyrir kr. 250,00 smálestina. Á þenn-
an lista skrifuðu sig aðallega kaupmenn
og betur stæðari kauptúnsbúar, en menn
miður efnum búnir og fátæklingar treystu
sér ekki að kaupa eldsneyti með þeSsu
verði. Flestir vonuðu að þeir næðu sverði
sínum heim og treystu á hann,
Nokkru síðar komu hingað hin svoköll-
uðu »dýrtíðarkol.« Kol þessi hefir mér
skilist eiga að vera nokkurskonar dýrtíð-
aruppbót. Þau átti að selja fyrir kr. 125
smálestina, þó þannig að misjafnt verð
væri á þeim, en meðalverð þetta. Flokka
átti menn niður og þeir, sem fátækastir
veru skyldu fá kolin ódýrust o. s. frv. Hér
á Siglufirði voru þrír flokkar. 1. fl. fékk
kolin fyrir 170 kr. 2. fl. fyrir 135 kr. og
3. fl. fyrir 100 kr. f öðrum og þriðja flokki
voru sárafáir, en þorri manna í fyrstn flokki.
Vegna þess að miklu fleiri voru í fyrsta
flokki en í þriðja flokki varð meðalverð-
langt fyrir ofan 125 kr. á smálest og hlýt-
ur því ágóði á þessari kolaúthlutun að hafa
orðið töluverður. Til þessarar hækkunar haf ði
víst hreppsnefnd enga heimild, en þvi síð-
ur hafði hún heimild til að verja ágóðan-
um til þess er hún gerði. Hreppsnefndin
varði sem sé ágóðanum til þess að bæta
þeim upp, sem keypt höfðu og borgað
kolin frá Tynæs. Uppbótin er sögð að
hafa verið frá 25—50 kr. á smálest. Þessi
uppbót finst mér mjög athugaverð og al-
veg óviðunandi, þar sem það er sannan-
legt að fátækari menn hafa að nokkruleiti
borgað þá uppbót er þeir efnaðri fengu.
Þegar nú svo fór með svörð manna að
honum varð ekki náð heim vegna ótíðar
og hreppsnefnd hafði bannað þeim mönn-
um er svörð áttu í Leyningi, að rista torf
til að þekja svörðinn, svo hann spiltist og
rýrnaði að miklum mun, og til vandræða
horfði með eldsneyti, voru fengin lánuð
kol hjá einum útgerðarmanni hér gegn á-
56
í þrjá sólarhringa var Mr. Pemberton veikur. F*að er
að segja æddi um bæinn í ýms konar dulbúningi. F*egar
hann þriðju nóttina kom heim þreyttur og illa ásigkominn
reif hann af sér hárkolluna, henti henni frá sér, og játaði
með sjálfum sér, að á þennan hátt væri ómögulegt að finna
Kate Ferring.
Hann var í vondu skapi, morguninn eftir þegar hann
gekk til skrifstofu sinnar í Lawn Road.
Pó honum hefði tekist svona illa með leitina, þá var
hann als ekki af baki dottinn, nú varð að nota nýa aðferð.
Hvort hún hepnaðist, var undir því komið hvernig
gamla Dickson gengi að leita að kvenmanninum með gula
hárið. Frá honum hafði hann ekkert frétt frá því um kvöld-
ið, sem sagt er frá hér að framan.
Fyrsta kvöldið sem Mr. Pemberton sat á skrifstofu sinni
eftir veikindin, kom gamli Dickson alt í einu æðandi inn án
þess að berja á dyrnar.
»Eg hefi hana, Mr. Pemberton! Pað veit guð eg hefi
fundið hana!« stundi hann upp og féll svo máttvana niður
á stól.
»Kvenmanninn með gula hárið ?« sagði Mr. Pemberton
fljótt, og stökk á fætur.
Gamli Dickson kinkaði kolli.
»Hvar? Hvernig?« spurði Mr. Pemberton. Hver taug
í líkama hans titraði.
Nú kemur það, Mr. Pemberton. Eg er allur af mér geng-
inn, eg flýtti mér svo mikið upp stigana til þess að koma
ekki of seint. Eg óttaðist að þér væruð farinn.
Gamli Dickson þagnaði, leit þreytulega til Mr. Pember-
ton, snýtti sér og hélt svo áfram:
53
lýsingu á götuhornunum, en hann féll strax frá þeirri hug-
mynd.
í fyrsta lagi gaf hann morðingunum með því bendingu
um að gæta að sér, auglýsingarnar greindu frá að lögreglan
væri aðstarfa við morðmálið frá »Skollabýli,« ogíöðrulagi,
hver gat sannað að Kate Ferring sjálf væri ekki við morðið
riðin, meira að segja gat kvenmaðurinn með gula hárið,
sem myrti kvenmannin verið Kate Ferring sjálf.
Ef svo væri, þá var glæpurinn ennþá viðurstyggilegri,
þá var það móðurmorð. Pað sýndi utanáskriftin á umslag-
inu. »Til minnar elskulegu dóttur Kate Ferring, frá móður
hennar.«
Við þessa hugsun stökk Mr. Pemberton á fætur, og
gekk um gólf með löngum skrefum.
Nálægt miðnætti hélt Mr. Pemberton frá stöðinni í Lawn
Road áleiðis heim til sín.
Hann gekk álútur með staf sinn undirhendinni, og með
höndurnar í vösunum á yfirhöfn sinni. Veðrið og rigning-
in lamdi um hann, en hann tók ekkert eftir þvi, varð held-
ur ekki var við þegar hann öslaði pollana á strætunum, svo
gusurnar gengu upp um hann allan.
Hugur hans var allur hjá Kate Ferring, hugsanirnar
snérust eingöngu um hvernig hann ætti að finna hana inn-
an um miljónir Lundúnaborgar, og það án þess að það
vekti athygli manna eða eftirtekt.
Og þegar hann var háttaður þreyttur og hálf óstyrkur,
gat hann ekki sofnað. Hann lá lengi og starði hugsandi
út í loftið þar til svefninn sigraði hann.
En í óværum draumum sá hann Kate Ferring, skínandi
fagra, en með ljósgult hár, sem skein á sem á bál sæi.