Fram


Fram - 13.04.1918, Blaðsíða 4

Fram - 13.04.1918, Blaðsíða 4
42 Nr. 11 Eg undirritaður tek að mér að ráða verka- fóík, til sjáfar og landvinnu á komandi sumri; eg hefi talsverða reynslu í því efni, og feg’g’ áhersiu á, að útvega aðeins duglegt og reglusamt fólk. Peir, sem óska að nota mína milligöngu semji nánar við rnig bréflega eða símleiðis. Reykjavík, 12. marz 1918. Sigurður Þorsteinsson. Barónsstíg 10. að ánni Isonso var eftir orustuna teknir 10 þús. drepnir ítalir og Aust- urríkismenn. Fjarlægðin frá herlín- unni að ánni er 1800 metrar. Tíu þús. manna drepnir á svolitlum bletti. Og slátrunin heldur áfram, og með hverjum degi eru drepnar og lim- lestar lOþús., ogaftur lOþús. manna. Herteknir menníPýskal. —o— f bók er ameríski sendiherrann sem var í Berlín þegar stríðið byrjaði, James W. Oerard, hefir skrifað, og heitir: Pau fjögur ár er eg dvaldi í Pyskalandi, stendur eftirfylgjandi kafli: »Eg hafði heyrt svo margar frá- sagnir um, að þýskir borgararbök- uðu herteknum mönnum svo marg- vísleg óþægindi, að það gladdi mig mjög mikið, að lesa ofurlitla grein i Norddeutsche »Allgemeine Zeit- ung,« sem þetta var aðal inntakið í: s-Peir íbúar bæjarins N. N., sem nefndir eru hér á eftir, hafa gjört sig seka í óhæfilegri framkomu gegn herteknum mönnum, og eru því dæmdir til fangelsis og sekta, sem hér segir, og nöfn þeirra eru skráð hér, til þess að þau geti geymst, og hinar komandi þýsku kynslóðir minst þeirra með verðskuldaðri fyrir- litningu.« Par næst fylgdi [skrá yfir nöfnin, fangelsisvist og sekta upphæðir. Nafn bæjarins, sem er nálægt landa- mærum Danmerkur og Pýskalands, var einnig tilfært. Eg varð glaður yfir því, að þýska stjórnin loks hafði fengið opin augun, svo hún var far- in að sjá, að nauðsynlegt var að vernda hertekna menn fyrir árásum borgaralýðsins, og eg skrifaði am- eríska konsúlnum í Kiel, og bað hann að útvega nánari upplýsingar í málinu. Hann tilkynti mér svo, að nokkrir vesalings fangar hefðu farið um þennan tilnefnda bæ í Norður- Slésvík, og að þeir hefðu látið í Ijósi að þeir kveldust af hungri og þorsta, höfðu þá nokkrir góðhjartaðir dansk- ir íbúar bæjarins gefið þeim lítið eitt að borða og drekka, en til hegn- ingar fyrir þetta voru þeir dæmdir í fangelsisvist og sektir, og til þess að nöfn þeirra skyldu geymd uin aldur og æfi, svo allir Þjóðverjar gætu minst þeirra með fyrirlitningu og óvirðingu. Eg þekki ekkert sem betur sannar það hatur, sem hin þýsku yfirvöld höfðu á þeim þjóð- um, er voru í ófriði við Þýskaland. Bæjarfré ttir. —o— Afmæli. 14. apr. Baldvina Baldvinsdóttir ungfrú. 15. » Þormóður Eyólfsson kaupm. 16. » Quðný Pálsdóttir ekkjtrfrú. 18. » Jóhann Sígurgeirsson trésm. 18. » Ólína Ólafsdóttir húsfrú. Tíðin hefir verið mjög umhleypingasöm þessa viku, ýmist norðanhríðar eða hláka, fs hefir verið hér nærri úti fyrir, og frést hef- ir að Sterling hafi siglt í gegnum ís fyrir Sléttu, og að hann hafi verið um þrjár mílur undan Langanesi, þegar hún fór þar fyrir fyrripart vikunnar. H. Söbstad hefir leigt þrjá mótorbáta úr Ólafsfirði, sem eiga að ganga til hákallaveiða. Hafa þeir einu sinni farið út, en urðu að koma inn strax aftur vegna veðurs. Mannslát. Nýlega er látin hér í bænum ekkjan Katrín Loftsdóttir. Hún misti mann sinn á skipinu Kári, er fórst á Eyjafirði í hinum svokallaða Kárabyl. Voru börn þeirra þá ung 5 að tölu en þó hún væri fremur fá- tæk, tókst henni að ala þau upp, og eru þau hin mannvænlegustu. Katrrn 'sál. var vel skynsöm kona, góðhjörtuð og vel lát- in af öllum, H. Hákallaskip hinna sameinuðu verslana er nú verið ið útbúa til veiða. Er nú ólíku betra að eiga skip sín á Siglufirði en Akureyri, þar sem öll vorvertíð tapast vegna íssins, sem ennþá liggur á Eyafirði út að Hjalteyri. Skyldi ekki Siglufjörður með tímanurn verða framtíðarlægi als skipastóls Eya- fjarðar, þegar búið er að dýpka höfnina? Sam tíningur. —o— Síldveiðin í Noregi bæði við Krist- jánssund og Haugasund hefir geng- ið afarilla í vetur, ekki aflast helm- ingur á móti því í fyrra. A einstöku skipum hefir tap á útgerðinni verið alt að 50 þús. kr. Ástandið er yfir- leitt ilt í Noregi, skortur á flestum eða öllum matvælum. Milli 56 og 60 gráðu suðlægrar breiddar má sigla umhverfis jörðina, án þess að nokkurstaðar sjái land. Nú á tímum má svo að orði kveða, að allir hlutir séu falsaðir og eftir- myndaðir. í New-York er farið að búa til vindla, úr eintómum pappír. Pappírinn, sem er laus í sér og mjúk- ur, er gegnvættur í tóbakssósu og þurkaður svo. Síðan er hann högg- vin út í lögun sem tóbaksblöð, og svo nákvæmlega líkt, að æðar sjást í blöðunum. Ressir vindlar eru mjög ódýrir og mikið reykíir. í mörgum löndum eru fæðuteg- undir einnig faisaðar. í Ameríku hafa menn fundið verksmiðju, sem einungis framleiðir möndlur úr rófna- afgangi frá sykurgjörð. Önnur verk- smiðja þar býr*til súkkulaði úr sykri, mjöli, okkurdufti, kindamör og kac- aohýði. Eitt hið stærsta barnaheimili sem til er í heimi er í Moskva. Pao var sfofnsett af Katrínu II., og er fram- fært með tolli af spilum. Tundursendillinn, sem nú er eitt af mikilvægustu vopnum herflotanna fékk ekki sérlega góðar viðtökur í fyrstu. Hann er fundinn upp af Ful- ton árið 1805, var þd reyndur og gekk vel, en stjórnin vildi ekkert með uppgötvunina h?.fa. Hið fyrsta ríki er fékk sér tundursendil, var Noregur, árið 1873. Gamla lifur kaupir hæsta verði O. Tynæs. 70 Mr. Pemberton, sem þóttist vera orðinn viss um að bar- oninn hefði mælt sér mót á þessum slóðum, áleit réttast að skifta enn um búning. Hann tók af sér hattinn og fleygði honum, frakkann lét hann fara sömuleiðina, hárkollunni stakk hann í barm sinn. Innan undir frakkanum var hann í bláröndóttri vinnuskyrtu, upp úr vasa sínum tók hann lérefts kaskeiti, stakk krítarpípu í munn sér, og lallaði svo hægt áleiðis þangað er baroninn stóð. Dulbúningur Mr. Pombertons var ágætur, engum gat dottið annað í hug en hann væri yerkamaður á heimleið frá verksmiðjunum. Fólkið hélt áfram að streyma eftir götunni, en baron- inn stóð grafkyr, og Mr. Pemberton slepti ekki af honum augunum. Alt í einu sá Mr. Pemberton hóp karla og kvenna koma út úr klæðaverksmiðju einni, og í sama bili gekk bar- oninn á eftir hópnum, þó hélt hann sér í skugganum við húsin. »Skyldi Mr. Jones vinna á þessari verksmiðju, og bar- oninn vera að leita að honum?« sagði Mr. Pemberton við sjálfan sig um leið og hann gekk í sömu áttina sem bar- oninn, »það er ekki líklegt, nemaef baroninn væri að njósna um hann.« Verkamennirnir voru nú komnir á götuhornið, skiptu þeir sér þar, og urðu samferða tveir eða fleiri eftir því sem leið þeirra lá. Ungur fátæklega búinn verkamaður, og sömuleiðis ung- ur hár og velvaxinn kvenmaður urðu samferða inn í Blund- elstræti, sem liggur jafnhliða Brandonstræti, baroninn fylgdi 71 þeim eftir, og Mr. Pemberton, sem gat til að baroninn vildi hitta þessar persónur, gekk á eftir. Kvenmaðurinn og karlmaðurinn héldu áfram eftir ýms- um smá götum þar til þau hurfu inn í hús eitt i Furlong- stræti. Baroninn staðnæmdist augnablik fyrir utan húsið, og gekk svo hugsandi áleiðis til næstu aðalgötu, niðurlútur með hendurnar á baki sér. Pegar hann kom á aðalgötuna kallaði hann á vagn er þar var nærri. »Nú byrjar spretturinn aftur,« muldraði Mr. Pemberton, sem altaf hafði verið á hælunum á baroninum, »hvert skyldi leiðin liggja nú?« í því heyrði hann baroninn segja við ekilinn um ieið og hann sté inn í vagninn: »Til Albertvegar 23.« »Þá er það búið í kvöld,« sagði Mr. Pemberton. »Byrj- ar aftur á morgun.« Að svo mæltu hélt hann heimleiðis. Seinnipart næsta dags, fór Mr. Pemberton aftur til Al- bertsvegar hafði hann þá tekið sér nýjan dulbúning: ofstuttar hálfrifnar buxur, gula skítuga treyu, rauðan klút um háls- inn, upplitaðan hatt og skóræfla á fótuni. Hann hafði settá sig grátt strítt alskegg, í munninum hafði hann vindlings- stubb. Eins og hann var klæddur, gat enginn þekt hann frá slæpingjum þeim eff í stórbæjum lifa mest á betli og smá- þjófnaði. Hið sama og fór fram kvöldið áður endurtók sig þetta kvöld. Mr. Pemberton faldi sig í stiganum og sá baron Sahlmann ganga til Parkstrætis og taka sér þar vagn. »Nú veit eg hvert ferðinni er heitið,« sagði Mr. Pember-

x

Fram

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fram
https://timarit.is/publication/34

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.