Fram - 10.08.1918, Síða 2
122
FRAM
Nr. 31
FRAM
kemur út 52 sinnutn á ári.
Verð 4 kr. Gjalddagi 1. júní.
Útgefandi: Hlutafélag.
Ritstjórar:
Friðb. Níeisson
og
Hannes Jónasson.
Afgreiðslu- og innheimtumað-
ur Friðb. Níelsson.
Siglufjarðarprentsmiðja 1918.
mm
Almanak næstu viku.
Ágúst 1918.
Sd. 11. d. Jón próf. Steingrímsson 1791
Md. 12. d. Egill bp. Eyjólfsson 1341.
Þd. 13. f. Rudolf Oneist 1816.
Md. 14. d. Steingr. bp. Jónss. 1769 Fyrsta
kvartil 10,16 e. m.
Fd. 15. Maríumessa. f. Napoleon mikli
1769. 17. v. sumars
Fd. 16. f. Lodvik Harboe 1709
Ld. 17. d. Svb. Egilsson 1852. f. Jón bóka-
vörður Árnason 1819.
als í sjóher Bandaríkjanna. En ef
taidir séu með smiðir og verkamenn,
verði tala mannanna 594,000.
Kristianíu 24. júlí.
Það hefir nú fengist samkomulag
um sölu á síld norsku stjórnarinnar
til skepnufóðurs með niðursettu verði
og er það 23 kr. tunnan. Frá því
dragast svo 5 kr. er landbúnaðar-
félagsstjórnin hefir lofað að borga
af hverri tunnu, svo að bændurnir
fá síldina fyrir 18 kr. tunnuna. Með
þessu verði er búist við að seljast
muni fleiri hundruð þús. síldartn.
Helsingfors 25. júlí
Biaðið »Pravda* segir svo frá, að
tveir höfuðverðir hinna »Rauðu« hafi
tekið fyrverandi Rússakeisara hcnd-
um og flutt hann til skeiðvallarins
við Jekatarinenburg, og að þar hafi
10 höfuðverðir beðið. Hafi honum
síðan verið tilkynt að hann yrði skot-
inn þá þegar. Keisarinn bað þá um
leyfi til þess að meiga tala við konu
sína áður, en var neitað um það.
Gekk hann þá, rólegur og mótstöðu-
laust, franTfyrir hermennina og —
var skotinn.
Amsterdam 25. júlí.
Frá London er símað, að banda-
mönnum hafi tekist að eyðileggja
að fullu nýja, stóra varnargarðinn
við Zeebrúgge, og að tveim þýsk-
um kafbátum hafi verið sökt.
Kristianíu 25. júlí.
Frá Berlín er símað, að á tveim
dögum hafi 437 menn sýkst af kól-
eru í Petrograð.
í Stokkhólmi hafa ekki fleiri veikst
af kólerunni, en einn af þeim er
veiktust á dögunum, er dáinn.
Stríðið.
Fréttaritari vor í Rvík segir eng-
ar markverðar stríðsfréttir þessa viku.
Bandamenn haldi áfram að sækja á
í Frakklandi, og hafi nýlega hafið
sókn austan og suðaustan við
Amiens.
Annars alt tíðindalaust.
Leiðrétting.
Á 1. síðu 4. d. 1. málsgrein hef-
ir orðið Skagrak fallið úr í nokkru
af upplaginu.
Smjörverðið.
Hve langt skildi ofurmagn óbil-
girni og ósanngirni geta náð? Nú
kostar smjörpundið hér 3,25 — 3,30
og skyrpotturinn 1,00.
Petta verð er svo langt fyrir ofan
hóf, svo fjarskylt framleiðslukostn-
aði, sem nokkuð getur verið. Verðið
á smjörinu er 3,00 hjá bændum,
kaupmenn hækka það um 25 — 30
aura, fullmikil hækkun en ekkert ok-
ur þó eins og á sumum vörum, en
þessi 30 aura hækkun á pundi er
óþörf. Hér mun tæplega finnast það
heimili sem ekki hefir þörf fyrir að
kaupa smjör, og engin ástæða fyrir
seljanda að færa kaupmönnum það,
fyrirhöfn engu meiri að afhenda það
öðrum kaupendum, sem borga með
peningum um leið.
í þessu tilfelli, sem svo mörgum
öðrum, eru kaupmenn óþarfa milii-
liðir, sök sér væri ef þeir fullnægðu
þörfum allra bæjarbúa, að þvi er
þessa vöru snertir, en því er fjærri
að svo sé.
Verðið á smjörinu frá bændum
er tæplega hægt að réttlæta. Að vísu
má segja svo, að hverjum sé leyfi-
iegt að setja það verð á sína vöru
er honum líst, það er leyfilegt frá
lagalegu sjónarmiði, en algild regla
er þó, að verð hverrar vöru miðast
við gildi hennar gagnvart öðrum
vörum eða peningum, eða þá fram-
leiðslukostnað, en þetta verð smjörs-
ins er miklu hærra en svo að sam-
jöfnuður geti komið til greina.
Til sönnunar því, að bændurhér
nærsveitis selja smjör sitt mjög mik-
ið hærra en rétt og eðlilegt er, vil
eg segja frá því, að merkur efna-
bóndi í Eyjafirði sem aldrei hefir
kastað aurum sínum á glæ, seldi
mér nokkur pund af smjöri í. vor.
Pá var verð smjörsins víðast hvar
2,00. Petta smjör seldi bóndinn á
1,80. Eg bauð honum 2,00 eins og
eg hafði borgaðannarsstaðar, en hann
neitaði, kvaðst ekki hafa selt smjör-
ið dýrara en þetta undanfarið, og
hafa góðan hagnað á sölunni með
þessu verði. Síðan hefir eftirspurn-
in aukist, og eðlilegt að verðið hafi
hækkað nokkuð, en 1,50 aurahækk-
un á pundi síðan í vor er ranglátt.
Skyr er nú, eða var um miðjan
júlímánuð, selt á Akureyri á 0,50
potturinn og er alldýit, hversvegna
þarf það að vera hundrað prósent
dýrara hér?
Peir sem byrja á þessari óheyri-
legu sölu bæta lítið orðstýr sinn og
eru þjóðfélaginu lítt til sóma. Væri
íslendingum nær að taka höndum
saman og létta byrðarnar hver fyrir
öðrum en að auka erfiðleikana sem
mest, nú á þessum vondu tímum.
H vanneyri.
Á síðasta hreppsnendarfundi var
kosin þriggja manna nefnd til að
athuga hvort no'kkur tök væru til
þess að i’hreppurinn fengi keypta
jörðina Hvanneyri, sem meiri hluti
kaupstaðarins stendur á, og gera
tilraunir í þá átt. í nefndinni eru
B. Porsteinsson, G. T. Hallgríms-
son og Jón Guðmundsson.
mSiglufjarðar-bío
Sýnir kvikmyndir á hverju kvöldi.
Ágætar myndir! ####
Skrífarinn verður sýnduríkvöldkl.8-9og9'|2-10'|2
Sunnudaginn verður sýnt
Föðurlausa barnið kl. 7-8>8'|2-9,l2 og 1011.
Næstu viku verða sýndar ágætar myndir t. d.
Umhverfis jörðina á 80 dögum,
Einstæðingurinn o. fl.
Nánar auglýst á götunum.
H.f. Siglufjarðar-bío.
Fréttir.
Nýlega druknaði maðurafbát frá
Akureyri, Porbergur Jónsson? að
nafni. Var hann á siglingu í hægu
veðri. Fanst báturinn mannlaus, lá
í honum treyja mannsins, voru í
vösunum peningar og annað fémætt.
Úr bátnum saknaði eigandinn steins
og færisspotta; leikur grunur á að
maðurinn hafi fyrirfarið sér.
Smjörlíki töluvert er nýlega kom-
ið til Reykjavíkur frá Ameríku, en
er að eins selt gegn seðlum er bjarg-
ráðanefnd gefur út. Kostar það 2
kr. pundið í smásölu,
íslendingurinn, Páll fsólfsson, er
orðinn organleikari í Sct. Thomas-
kirkjunni í Leipzig.
»Fredericia« er væntanleg fljót-
lega til Rvík frá Ameríku með steirr-
olíu til olíufélagsins.
Sæmsæti á að halda Árna Egg-
ertssyni í Rvík á þriðjudaginn kemur.
Nýlátinn er Pétur Sigurðsson frá
Hrólfsskála.
Á suðurlandi er sögð góð tíð
þessa dagana, en slæm grasspretta.
»GuIlfoss« er á leið frá Ameríku.
Hefir hann að þessu sinni meðferð-
is 400 smál. af hveiti, 100 smál.
af hrísgrjónum og um 400 smál. af
ýmsum kaupmannavörum.
! _______________
Bæjarfréttir.
—0— '
Afmæli:
10. ág. Pálína Fersæth húsfrú.
14. — Halld. Sigurðard., húsfrú.
17. — Helgi Björnsson prentari
17. — Andrés Hafliðas. versl.m.
17. — Gunnl. Porfinnss., verkstj.
Tíðin
hefir verið slæm þessa viku, norð-
austan stormar og úrfelli öðru hvoru.
Síðan á sunnudag hefir engin síld
aflast, og mun öllum þeim er at-
vinnu hafa af síldveiði þykja horfa
óvænlega.
Frá Jan Mayen
kom véiskipið »Snorri« ífyrrinótt,
og fór til Akureyrar í gær. Pað var
fulllestað alskonar rekavið.
y>Sterling«
kom hingað aðfaranótt 7. þ. m.
Með skipinu komu hingað Hallgr.
Kristinnsson forstöðum. landsversl-
unarinnar, R. Ólafsson konsúll kaup-
mennirnir Pétur Pétursson og Jón
Bergsveinsson, Sigtr. Porsteinsson
verslunarm., Sigtr. Jónsson timbur-
meistari, Vald. Thorarensen málafl,-
maður o. fl.
Hallgr. Kristinnsson
kom hingað þess erindis að semja
um bræðslu á nokkru af ensku síld-
inni er landsstjórnin hefir keypt, má
búast við að eitthvað verði brætt
hér, en engir samningar um það eru
fullgerðir enn. Líklegt er þó að gert
verði út um það fljótlega, því ekki
má draga langt fram á haust eða
vetur að flytja út um landið fóður-
bæti þann, sem bændur að sjálf-
sögðu þurfa að fá sér.
Skólanefndin
hefir nú tekið ákvörðun um skóla-
hald næsta vetur. Er ákveðið að
barnaskólinn starfi í sex mánuði,
börnum sé skift í 3 deildir, en þeim
kent á víxl í einni stofu. Petta fyr-
irkomulag var haft síðasta vetur og
reyndist vel.
Unglingaskóli verður enginn.
Svarðarþjófnaður
er byrjaður í stórum stíl að margra
manna sögn. Pykjast ýmsir eiga um
sárt að binda, en til lítils er að kveina,
hér er enga hjálp að fá. Hvenær
kemur að því ao lög og réttur taki
sér bústað á Siglufirði?
Síldveiðin.
Um síðustu helgi voru komnar í
land í Siglufirði 28 þús. tn., og síð-
an hefir ekkert veiðst. n fsafirði eru
veiddar um 10 þús., á Önundarfirði
um 1 þús , á Ingólfsfirði og Reylqa-
firði um 3 þús. á hverjum staðn-
um og 3 til 4 þús. á Eyjafirði. Enn
eru því ekki komnar á land þessar
50 Ipús. tn. sem selja má til Sví-
þjóoar. ,
Nokkur
norsk gufuskip, semætla að stunda
síldveiði og salta á sjó úti, hafa
komið hér inn þessa dagana vegna
ógæfta.