Fram - 21.05.1921, Page 2
82
FRAM
Ni. 20
Síldarfrum varpið
samþykt sem lög frá aiþingi, en
með miklum breytingum.
Svohljóðandi símskeyti barst oss
í dag frá fréttaritará blaðsins í Rvík:
Síldveiðafrumvarpið samþ. í gær
í þessu formi: Ríkisstjórninni heim-
ilað að hafa á hendi sölu allrar
síldar sem verkuð er til útflutnings
hér á landi.
Stjórnin getur skipað einn mann
eða íleiri ti! að sjá um sölu og út-
flutning síldar fyrir sína hönd og
sett með reglugjörðum nánari fyr-
irmæli um afhending síldar til út-
flutnings, og annast annað sem að
þessu lýtur, þar á meðal ákveða
sektir fyrir brot. Ríkisstjóinin af-
hendir eigendum söluverð síldar
þeirrar er hún selur jafnóðum og
það greiðist, þó ska! draga frá sölu-
verðinu allan þann kostnað sem
ríkisstjórnin hefur vegna útflutnings
og sölu síldarinnar.
Lögin öðlast gildi strax.
Pirtgi siitið kl. 1 / dag.
Það lítur út fyrir að í síðasta
blaði hafi máske of snemma og
með helst ti! gleiðu letri verið til-
kynt að frumvarp þetta væri dauða-
dæmt. Pá um skeið leit svo út fyrir
að málið mundi verða svæft, en
því hefir verið fast framfylgt af
meðhaldsmönnum þess, sem að
lokum hafa náð ofanskráðum á-
rangri. Eins og menn sjá er í raun-
inni lítið eða ekkert orðið eftir af
ákvæðum frumvarpsins, í þess upp-
runalegu mynd, þar sem eingöngu
er orðjjð að ræða um heimild til
handa ríkisstjórninni, um að hún
megi taka í sínar hendur sölu síld-
arinnar, virðist henni þess við þurfa,
og verður maður að treysta því
að til slíks verði ekki gripið þótt
einhver lítill hluti framleiðenda ís-
lenskrar síldar kynni að krefjast
einkasölu. Til þessarar heimildar
um afskifti ríkisstjórnarinnar af síld-
arsölunni mun vart horfið án þess
mikill meiri hluti allra þeirra er
salta og selja síld æski þess. Væri
svo almennur áhugi fyrir samsölu,
gætu þeir hinir sömu eins vel geng-
ið í sölufélag, af frjálsum vilja,
sem óneitanlega væri skemtilegri
aðferð.
Alt veiðibann og misrétti sem í
frunivarpinu fólst í fyrstu, er úr
sögunni.
Síldveiðar Norðmanna hér
við land í sumar.
Peir ætla sér að verka síld-
ina umborð.
Tiaugesunds Dagblad« hefir átt
tal við ýmsa útgerðarmenn í Hauga-
sundi og þar nærlendis um það,
hvort hin nýju þvingunarlög íslend-
inga muni hafa nokkur áhrif á til-
högun síldarútvegsins við strendur
fslands.
Allir útgerðarmennirnir voru á
einu máli um það, að þessi þving-
unarákvæði væru óhæfa ein (utillate-
lige) og mundu gera útveginum
mjög erfitt fyrir, en annars mundu
mjög fáir hugsa til snyrpinótaveiða
við ísland þetta árið eins og síidar-
markaðinum væri nú komið. Mundu
því lög þessi eða ákvæði ekki hafa
mikla þýðingu fyrst um sinn, enda
þótt þau kæmu bráðiega til fram-
kvæmdar, en þau mundu segja til
sín þegar fram í sækti.
Svo er ráð fyrir gert, að ekki
muni nema 4—5 skipfrá Haugasundi
stunda síldveiðar við ísland í sumar
og eitthvað 4 frá öðrum stöðum
þar í grend og munu flest skipa þess-
ara hafa útbúnað til þess að verka
síldina umborð.
Vér höfum átt kost á að sjá sendi-
bréf til kaupmanns hér í bænum frá
mjög ábyggilegum síldarútgerðar-
manni sem heima á nálægt Alasundi
í Noregi; segir hann að mjög fáir
munu hugsa til þess að salta í landi
hér á íslandi að þessu sinni, vegna
þess að hver tunna söltuð í landi
muni verða að minsta kosti 7 kr.
dýrari en síldartunna söltuð fyrir ut-
an landhelgi, og megi hann fullyrða
að 50—60 leiðangrar verði gjörðir
út til þess að veiða og salta útifyrir.
Símfregnir
frá Reykjavík í gærdag.
Erlendar:
Kolaverkfallið enska óbreytt.
Miklar viðsjár verið með Eng-
lendingum og Frökkum út af Efri-
Slesíu, en nú útlit fyrir að deilan
jafnist friðsamlega.
índverska skáldið Tagore kemur
til Kaupm.hafnar á morgun.
Innlendar:
Frá Alþingi:
Samvinnunéfnd peningamála bor-
ið fram tillögu um að heimila ríK-
isstjórninni að taka ábyrgð á skuld-
um þeim er tslenskir botnvörpu-
eigendur skulda 1 Englandi cirka
200 þúsund krónur af hverju skipi.
(Till. þessi samþ. í morgun 22,:5.)
— Stofnun ríkisvtðbanka íslands
afgreitt sem lög. — Sarnþ. heimild
handa ríkisstjórninni að láta fram-
kvæma rannsókn til uudirbúnings
virkjunar Sogsfossanna. Samþykt
heimild handa ríkisstjórninni til að
taka gjaldeyrislán erlendis (5 milj,?)
Samþykt að halda Landsverzlun
áfram.
Ný rit.
Framh.
Næsti kafli hljóðat um b I ö n d -
u n s t e y p u e f n a, er höf. segir
að sé engan veginn vandalaus og
mjög mikið ttndir því komið, að
hún sé vel og vandlega af hendi
leyst. Sjálft verkið sé töluvert erfitt
og sýnir höf. fram á, hversu það
megi vinna setrt léttast og hagan-
legast. Pá segii hann það ekki skifta
minna máli, »að styrkleiki steypunn-
ar og gæði eru að miklu leyti und-
ir biönduuinni komin. Sandkornin
loða hvergi saman rtema sements-
blanda sé í milli þeirra, maiarstein-
arnir hvergi nena sand- og sem-
entsblanda sé milli þeirra. Ef blönd-
unin er ófullkomin, íer ætíð svo, að
sumstaðar er óþarflega mikið sem-
ent í steypunni, en anuarstaðar of-
lítið og þar verður þá steypan bæði
veik og opin fyrir vatni. Hrönglist
steypugjótið meira saman á einum
stal en öðrum, verðm steypan hol-
ótt og óþétt, því þar vantar þá ineira
eða minna af sandi og sementi til
þess að fylla milli steinanna. Oóð
blöndun er á við töluverða viðbót
af sementi.«
Pá drepur höf. á blöndunarvélar,
er gangi fyrir mótorafli, en aðallega
ræðir hann um blöndun með hand-
afli og lýsir þeirri aðferð mjög ná-
kvæmlega sem og ahöldutn þeim,
er til hennar þarf og mismuninum
á því, hvort einn maður fæst'við
verkið eða fleiri. Áhöldin telur hann
vera: skóflur, mál fyrir sementið, mál
fyrir sand og möl, blöndunarpall,
flutningstæki og vatnsílát (tunnu) og
er nánar getið um hvert áhald út af
fyrir sig.
Loks segir hann að »vegna þess,
hve mikið er undir góðri blöndun
lcomið, verður sífelt að hafa strang-
ar gætur á því, að verkið sé ætíð
samvizkusamlega unnið og vatnið
hvorki of né van. Flestum hættir
við að bleyta steypuna helzt til mik-
ið, meðfram vegna þess, að mok-
unin gengur þá léttar. Pá er ekki
lítið komið undir því, að engin ó-
hreinindi komist í blöuduna (for af
skóm, mold) ogað óhrein steypuefni
(mulningur) séu vel þvegin og hrein«
......»Við steypuvinnuna verður
að haga svo verkum og vinnuafli,
að aðfærsia steypuefna, blöndun og
fráfærsla blötföunnar standist sem
bezt á. svo enginn þurfi eftir öðr-
um að bíða. Regar vinnu er hætt,
eru öll áhöld, sem komið hafa í
sementsklöndu, vandlega hreisuð
(þvegin og skafin) svo steypan
harðni eklci á þeim. Er þá afartorvelt
að ná henni af.«
Pá kemur kafli um f y 11 i n g
s t e y p u m ó t a, er ræðir um flutn-
ing steypublöndunar og fylling móts-
ins og því uánar lýst. Einkum er
ítarlega farið út í seinna atriðið og
þar greinilega sagt fyrir um hvert
handtak, að heita má. Segir höf., að
verkið við fylling mótsins fari injög
eftir því, hve blaut blandan sé og
þurfi að vera mjög vandlega af hendi
leyst, eigi steypan ekki að verða
stórgölluð, enda engum trúandi fyr-
ir því öðrum en bezta manninum,
sem völ sé á. Skýrir hann svo ná-
kvæmlega frá meðferð rakrar, deigr-
ar og blautrar blöndu, hverrar teg-
undarinnar út af fyrir sig.
Næsti kafli er um s t o r k n u n
steyp-unnar og meðferð
á henni með ín hún harðn-
a r og hvert atr ði rætt fyrir sig,
storknunin sjáif og meðferð rakrar
steypu og deigrar og blautrar.
Storknunin segir höf. að byrji venjul.
eftir 2—8 klst. og sé lokið eftir 5
til 12, en þó komi þar ýmisl. til
greina, svo sem hitiogkuldi, vatns-
megn steypunnar, raki í lofti og
votviðrí. Harðni hún svo örast
fyrstu dagana og jafn’ramt vaxi
burðarþol hennar og haidi áfram að
vaxa árum saman og baini því góð
steypa með aldrinum. T. d. geti
burðarþol steypu verið 160 kg. eftir
7 daga, eftir 28 daga 227, eftir 3
mánuði 311 og eftir 4 ár 441. Ekki
megi trufla storknuniua og þurfi þvi
að koma steypunni sem fyrst í mót-
in eftir að lokið er við blöndunina
og síðan halda steypunni vel rakri
fyrstu 3—4 dagana að minsta kosti,
en helzt í 10— 20 daga. Ressari
v ö t n u n steypunnar er svo nánar
lýst þar sem talað er um meðferð
deigrar og blautrar steypu.
Loks er kafli um breytingar
á rúmtaki steypu, vatns-
þéttleika hennar og hlý-
i n d i, en í þessu hefti »Sindra« er
að eins byrjunin á þeim kafla og
kemur svo framhaldið síðar. Skal
hér þvi.staðar numið að sinni að
skýra frá ritgerð þessari, en
af þessu stutta yfirliti, sem
hér er gert, mega menn sjá hveaf-
arfróðleg og ítarleg ritgerðin muni
verða og algerlega ómissandi leiðar-
vísir hverjum þeim, sem eitthvað
ætlar sér að fást við steinsteypu og
ekki er því leiknari í listinni, enda
segir ritstjórinn á öðrum stað í
þessu hefti um þessa ritgerð próf-
O. H.: »Fátt er okkur meiri nauð-
syn á að vita en einmitt það, er
ritgerð hans fjallar um ogvar hægt
að fá betri mann til þess að skýra
þetta fyrir íslendingum? Hver hefir
hugsað það betur frant og aftur, út
í yztu æsar,í heidur en Guðm.
Hannesson?«
Framh. *
Vikan.
T í ð i n: Skammgóður vermir reyndust
hlýindin um síðustu helgi. Hefur verið
hríðarveður flesta daga vikunnar og fest
töluvert af snjó.
Skipaferðir. »Síríus« skip Berg-
enska félagsins kom hér á Hvítasunnndag,
er það gott skip og góð þægindi fyrir 54
farþega á 1. og 2. farrými. Einnig er þar
innréttað 3. farrými er tekur 40 farþega.
Loftskeytatæki eru á skipinu. Bergenska
félagið er hið eina félag sem lætur skip
sín sigla eftír fastri áætþin hér við land,
á þessu ári. Með »Síríus« kom hingað frá
útlöndum Halldór Jónasson kaupmaður,
frá Reykjavík var fjöldi farþega, meðal
þeirra hingað: Ása Sigurðardóttir, verzl-
unarmennirnir Haraidur Björnsson og
Sigurjón Sigurjónsson, bryggjuformaður
Þorl. Jóhannesson.
Með skipinu tók sér far héðan til Nor-
egs Ole Tynes útgerðarmaður og til Reyðar-
fjarðar fóru Pétur Bóasson kaupmaður með
konu sinni og barni, höfðu þa i hjón dval-
ið hér um tíma í kynnisför.
»V i 11 e m o e s« fá>‘ frá Rví c í dag á-
leiðis hingað norður. vertíar væntanlegur
hér um miðja næstu viku.
iSterling» fer frá Rvík á morgun.
Ifýr ríkisboi ii • ri. Oie Tynes út-
geiöarmanni ýiér í Sigiuíirö. hefur með