Eir - 01.01.1900, Blaðsíða 27

Eir - 01.01.1900, Blaðsíða 27
f 27 sólarhring og það var sem liann eyddi meðan hann svalt þann tíma, en því er ekki svo varið. Það kemur hrátt í ljós, að hann léttist, nema hann fái meira af þessum efnum í mat sínum. Líkami vor er svo gerður. Yór getum kallað það óhóf, en hjá því óhófinu komumst vér aldrei. (Framh.) j^eilur hafa lengi verið illa rœmdar hér á landi, og það er sannast að segja, þær eiga ekki gott orð skilið. Þær eru erflðar við- fangs, til mikilla lýta og stundum til viðbjóðs. Iíngu að síður hefir geitunum verið gert rangt til í ýmsu og loðir það enn við. Ég er hræddur um að þær hofni sin fyrir róginn, verði því þrálátari og verri viðureignar sem ver er taiað um þær, þótt undarlegt kiinni að virðast. Ég býst ekki við að þeim fari eins og þokunni í þjóðsögunum, sem á að hverfa ef allir blessa hana, og ég óska þess ekki heldtir að monn taki það til bragðs, en ég vona að þær dofni, ef þær fá að njóta sann- mælis. Éað er viða — ég held aiment — talin sérleg vanvirða að hafa geitur. Éað er álitinn einhver hinn mesti vottur frá- munalegs óþrifnaðar. Éað er sagt að þær kvikni í lúsakollum einum, og þrátt fyrir þennan ímyndaða uppruna fyrirverða menn sig meiia fyrir geitur en lýs. Eðlileg afleiðing þessa er sú, að þeir sem hafa geitur halda því ieyndu í lengstu lög. Oft er viðkvæðið að þeir hafi kirtlaveiki, og með ýmsum öðrum útúrdúrum er reynt að leyna hinu sanna eðli veikinnar. Kí'nnast menn ekki við „geitnahúfurnar“ sem eru látnar ná niður fyrir eyru til að hylja „ósómann“, liúfurnar, sem aldrei eru teknar ofan, sízt á stórhátiðum? Pað skín út úr þessum aumingjum, sem hafa geitur, mörgum hverjum, að þeir vita hverjum augum á þá er litið af almenningi, að þeir em skoðaðir sem nokkuiskonar af- hrðk. Þeir fyrirverða sig fyrir að leita læknisráða. Ef til vill

x

Eir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eir
https://timarit.is/publication/36

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.