Eir - 01.01.1900, Blaðsíða 46

Eir - 01.01.1900, Blaðsíða 46
46 Alls hafa 13 af sjúklingum spítalans átt holdsveika for- eldi-a, annað eða bæði. Af þeim áttu 7 sjúklingar holdsveika feðui' að eins. 4 — — mæður - 2 — — foreldrin bæði. . 12 sjúklingar hafa átt holdsveik systkini en ekki hoidsveik foreldri. 9 sjUklingar annað holdsveikt frændfólk, en ekki for- eldra holdsveika eða systkini. Alls hafa 34 sjUklingar átt einhverja holdsveika í ætt- inni. Aftnr n móti á meira en liehningurinn eða 45 sjúklingar enqa hohlsveika í œtt sinni. Þar getur því með engu móti verið um erfðir að ræða. Hvað hina 34 sjUklingana snertir, væri í raun og veru að eins hægt að tala um erfðir þar sem annað eða bæði for- eldiin voru holdsveik, en nU stendur svo á, að i 1 að minsta kosti af þeim 13 sjUklingum spítalans, sem eiga holdsveik foreldri, fœddust áður en sjúkdómur foreldranna kotn fram, og meiri hlutinn allmörgum árum áður. Það bendir þvi alt á, að sjUklingar þessir hafi heldur ekki beinlinis fengið sjUkdóminn í arf, heldur hafl hann eins og fjöldi annara næmra sjUkdóma borist frá foreldrunum til barnanna. á sama hátt eins og þau höfðu getað fengið hann af vandalausu fólki. Allmargir af sjUklingunum vita eigi til, að þeir hafi haft nein mök við holdsveika áður þeir sýktust, en fari maður að spyrja þá nánar, þá kemur það oftast upp Ur kafinu, að þeir hafi þó að minsta kosta komið á bæi, þar seni hoidsveiklingar voru. fyrir, eða þessir sjUklingar hafi komið á þeina heimiii. 15 sjUklingar af þeim 45, sem enga holdsveika eiga í ætt sinni, hafa að meira eða minna leyti umgengist hoidsveikl- inga. Sem dæmi skal ég geta þess, að 4 af þessiun sjúklingum sváfu kjá líkþráum, nokkrn áður þeir stjktust sjálfir, suntir að eins í nokkrar vikur, einn í nokkur ár. Það má geta nærri, að börn sem eiga hoidsveik foreldri eiga mjög á hættu að fá sjUkdóminn af þeim. Flest sofa þau eða hafa sofið hjá foróldrum sinum lengur eða skemur eftir að þau sýktust.

x

Eir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eir
https://timarit.is/publication/36

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.