Kennarablaðið - 01.12.1899, Qupperneq 15

Kennarablaðið - 01.12.1899, Qupperneq 15
47 bandið tapaðist. Þetta mætti gera og er víða gert á þann hátt, að börnunum eru fyrst kendar að eins einstakar sögur, þó þannig, að byrjað er á gamia testamentinu, en meira tekið úr nýja testamentinu; er þeim svo að eins sagt aðalinntakið úr því, sem hlaupið er yfir, svo að söguþráðurinn haidist. Næsta ár er nýjum sögum bætt inn í, og þannig hvert árið eftir annað, þangað til börnin hafa fengið alt með, sem minst er á í kenslubókinni, og ef til vill meira, ef að þörf þyldr og tækifæri leyfli'. í ýmsum kenslubókum í biblíusögum standa við sögurnar merki, er sýna, hvenær ætlast ‘er til að þær séu teknar með, eða ieturbreyting gefur bendingu um það. Þá er að minnast á utanbókarlærdóminn. í byrjuninni ættu skólarnir enga kenslubók að nota í biblíusögum. Fyrsta árið, eða helzt tvö fyrstu árin, ætti kenslan einungis að vera munnleg. Kennarinn segir þá börn- unum sögurnar með ljósum og auðskildum orðum, helzt tvisvar, svo að þær festist betur í minninu, og útskýrir þær svo fyrir þeim á eftir; er þá sjálfsagt, að kennarinn heflr eigi einn orðið, heldur hjálpa börnin til eftir því, sem þau geta. Þannig er þá varið síðari hluta hverrar kenslustundar; en fyrri hluta hennar er varið til yflrheyrslu eða samræðu um það, sem börnunum var sagt í næstu kenslustund á undan. Sé þessi aðferð viðhöfð, þykir börnunum námið miklu skemti- legra en þegar þau eiga að vera að basla við að komast fram úr sögunum heima og læra þær utanbókar ; þau fylgja því betur með og komast betur að aðalefninu. Sórstaklega er ástæða til að leggja áherzlu á þetta, á meða.n vór ekki höfum góða kenslubók í bibhusögum, sem börnin gætu haft nokkurn veginn full not af að lesa heima. Hefðum vér bók, sem rituð væri á börnunum skiljanlegra máli, þá væri þó nokkuð öðru máli að gegna. Og slíka bók þurfum vér að fá, bæði vegna þeirra barna, sem í barnaskólana ganga, og einkum vegna þeirra, sem litla eða enga tilsögn geta fengið, þeirra, sem heimilin verða að annast um. Ég býst varla við, að heimil- in geti tekið upp þá aðferð, sem ég hér hefi talað um, að minsta kosti ekki alment; en hinu býst ég við og vonast eftir,

x

Kennarablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.