Kennarablaðið - 01.04.1900, Qupperneq 1
MÁNAfiAlUUT UM UPPELBI 00 KENSLUMAL
1, ÁRG,
APRIL 1900.
7, BLAÐ,
Áttundi
kennarafundur fyrir Norðnrlönd
í Kristianía, 1900.
Á sjöunda kennarafundi fyrir Norðurlönd, sem haldinn var
í Stockhólmi 1895, var ákveðið, að hinn næsti norræni kennara-
fundur skyldi haldinn í Kristiania árið 1900, og fól danska
forstöðunefndardeildin framkvæmdarnefnd sinni á hendur að
mynda danska forstöðunefndardeild fyrir þennan fund.
Undirritaðir fulltrúar frá ýmsum skóladeildum og kennara-
félögum í Danmörku hafa nú samkvæmt téðri ákvörðun komið
saman sem forstöðunefnd í þeim tilgangi að undirbúa hinn
áttunda norræna kennarafund, að því er Danmörku snertir, og
skai fundur þessi samkvæmt bráðabyrgða-ákvörðun haldinn í
Kristianía 6.—9. ágúst þ. á. Eftir áskorun frá norsku for-
stöðunefndinni bjóðum vér hér með kennurum (með konum
þeirra) og kenslukonum við opinbera skóla og einkaskóla, um-
sjónarmönnum skóla og skólalæknum að mæta á fundinum.
Auk þess geta og einstakir aðrir menn og konur, sem sýnt
hafa sérstakan starfandi áhuga á mentamálum, fengið aðgang
að fundinum, ef þeir snúa sér til forstöðunefndarinnar því
viðvíkjandi.
Peir, er halda vilja fyrirlestra eða koma fram með um-