Kennarablaðið - 01.04.1900, Page 15
111
11. gr.
Féhirðir heflr á hendi innheimtu á tekjum féia.gsins og
greiðslu á útgjöldum þess eftir ávísun forseta. Hann semur
ársreikning félagsins, sem nær frá nýári til nýárs, svo snemma,
að endurskoðunarmenn geti endurskoðað hann fyrir ársfund og
stjórnin svarað athugasemdum þeirra, ef nokkrar eru. Leggur
síðan ársfundur úrskurð á tillögur endurskoðunarmanna.
12. gr.
Yaraforseti gegnir forsetastörfum í forföllum forseta.
13. gr.
'
Missi fulltrúa við, kemur varafulltrúi i hans stað eftir
lrlutkesti fyrir þann tíma, sem hann átti eftir.
14. gr.
Tillögur til lagabreytinga skal bera upp á ársfundi. Nái
slík tillaga þar helming atkvæða, skal geta hennar í auglýs-
ingu næsta ársfundar og bera hana þar upp í annað sinn. Yerði
tillagan þá samþykt óbreytt með 2/s atkvæða, öðlast hún
lagagildi.
jRennarafundurinn í Mrisíiania,
sem auglýstur er hér í biaðinu, er sameiginlegur kennarafundur
fyrir öll Norðurlönd. Hafa samskonar fundir verið haldnir við
og við á síðari árum, síðast í Stockhólmi 1895, og þar áður
í Kaupmannahöfn 1890. Á báðum þeim fundum mættu kenn-
arar frá íslandi, og vonandi er, að einhverjir héðan af landi
sæki fundinn í sumar. Betra tækifæri en þetta geta menn
ekki fengið til að heimsækja bæði Noreg og Danmörku, þar
sem fargjaldið verður lækkað um helming, og auk þess teljum
vér sjálfsagt, að íslenzkir kennarar verði allra hinna sömu
hlunninda aðnjótandi sem danskir kennarar. Yér erum þess
fullvissir, að engan kennara, sem annars með nokkurum ráð-
um getur kloflð kostnaðinn, mun iðra þess að hafa farið þessa