Kennarablaðið - 01.05.1900, Blaðsíða 5

Kennarablaðið - 01.05.1900, Blaðsíða 5
117 ríkisins hálfu. Yflrleitt toh gera. ráð fyrir alt að 500 kr. kostnaði á ári. Margir þurfa meira, en ýmsir komast þó af með nokkuru minna. Meiri hluti nemenda fær styrk, 100—300 kr. á ári, sem veittur er af ríkissjóði og úthlutað eftir tiilögum skólastjóra. Yið styrkveitinguna er aðallega tekið tillit til fjárhagsástands nemenda, en þó einnig til kostgæfni og hegðunar. Fáir af 1. bekkjar piltum verða styrks þessa aðnjótandi. Sumir nemendur njóta auk þessa styrks af ýmsum styrktar- sjóðum, sem einstakir menn hafa stofnað í þeim tilgangi að létta fátækum piltum aðgang að námi. ílennarafcfaijiÖ og sveifafiennararnir. í 5. tölubl. „Kennarabl." stendur grein um „hið íslenzka Kennaraféiag." Þar er ekki annars getið en að það kosti jafnt fyrir alla að vera í því. En í því atriði er ég mjög gagnstæðrar skoðunar, og hefir það komið mér til að taka mér penna í hönd í þetta sinn. Mér virðist það vera markmið áðurnefndrar greinar að útbreiða Kennarafélagið sem mest út um landið, og væri þess víst sannarleg þörf. En það er miklu auðveidara að tala þetta en að framkvæma það. í greininni stendur meðal ann- ars, að gjöld þau, sem meðlimir félagsins þurft að greiða, séu varla teljandi, „að eins 2 kr. á ári. Og til þess að félags- menn hafl enn síður ástæðu til að sjá eftir þeim, fá þeir „Kennarabl." ókeypis." Er þetta nú nákvæmlega reiknað fyrir alla kennara út um landið? Setjum svo, að Jón um- gangskennari í Yesturdölum í Skagafjarðarsýslu viiji verða með- limur Kennnarafólagsins. Ilann skrifar kennurunum í nær- sveitunum og spyr þá, hvort þeir vilji mjmda deild með sér. Þeir svara flestir á þá leið, að þeim geti ekki komið til hugar að ganga í Kennarafélagið að svo stöddu; þeir hafi enga vissu fyrir því að halda atvinnunni lengur en í vetur, þeim ha.fi verið veitt hún af náð og með því skilyrði, að þeir settu

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.