Kennarablaðið - 01.05.1900, Blaðsíða 9

Kennarablaðið - 01.05.1900, Blaðsíða 9
121 Orðugleiíiar og úrrœði. Eins og oft hefir verið tekið fram, er margt því til fyrir- stöðu, að umferðakenslan í sveitunum geti komið að veruleg- um notum, svo sem strjálbygð, fátækt landsmanna, hirðu- leysi foieldra og húsbænda barnanna, mentunarleysi kennar- anna, félagsleysi og umsjónarieysi með kenslu yfir höfuð. Með línum þessum vil jeg ieyfa mér að fara örfáum orðuro um hvern þessara örðugieika, sem auðsjáanlega hljóta að standa i vegi fyrir framförum æskuiýðsins, og síðan koma, fram með tillögur nokkrar til umbóta á ástandinu í þessu efni. Strjálbygðin er og verður sjáifsagt lengst af lítt sigran- iegur örðugleiki í flestum sveitum. Af henni leiðir það, að kennararnir verða að vera alt of víða, og geta þvi ekki dvalið nema stuttan tíma á hverjum stað; verður kenslutími hvers einstaks nemanda þar af leiðandi alt of stuttur. Úr þessu verður að bæta með því að safna böi-nunum saman, svo sem ástæður frekast leyfa, og mætti án efa gera meira að því en gert er. Fátækt landsmanna stendur og alþýðumentuninni mjög svo fyrir þrifum; hefir fátæktin löngum verið fylgikona vor ís- lendinga, og er enn eigi fyrirsjáanlegt, að anuað muni verða i framtíðinni. En eigi ætla óg það fátækri þjóð ráðlegt að leggja árar í bát, að þvi er mentamál snertir; mundi það án efa borga sig illa. Úr því sem gera er, teldi ég heppilegast, að framfærslusjóðum yrði komið á fót, í þeim tilgangi að manna og menta fátæk börn. Til að koma í veg fyrir þriðja örðugleikann, sem sé hirðu- leysi foreldra og yfirboðara, ættu þeir, sem hafa umsjón með barnakenslu, rækilega að brýna fyrir mönnum nauðsyn og nytsemi kenslunnar, og það strax á haustin, áður en umferða- kenslan byrjar. A mentunarleysi kennaranna væru auðráðnar bætur, ef að kennarar annars hefðu vilja á að nota hina framboðnu mentastofnun, nefnilega kennaraskólann í Flensborg. Hirðuleysi kennara með að sækja hann stendur mentun þeirra aðallega

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.