Plógur - 02.01.1900, Side 1

Plógur - 02.01.1900, Side 1
PLOGUR LAIDBUNÁÖARBLÁB “Bóndí er búst61pi.“ nBú er land88tólpi.“ II, árg. Reykjavík 2. jan úar 1900. M 1. Mlnni bænda. Vér bjðjum heilla’ og heiðurs íslands sonum, sem hlúa’ að því og vilja græða alt, og framtíð þess með fögrum skreyta . vonum', sem finna til, en skjálfa’ ei þótt sé kait. Já heill sé þeim, sem grafa gull úr haugum og gylla sjálfir minnisvarðann sinn, — með svita’ og sliti’ á sínum eigin taugum, er sanda græða’ og bæta jarðveginn. Það vantar ekki holt og hrjóstur-ása og hraunin ber og grýtt og þung á brá, það vantar ekki þúfur þær sem blása, sem þreyta vöðva, mölva egg úr Ijá; við þessa fjanda þarf með dug að stríða, og Það skal gera íslenzkt bænda lið, og þess mun varla þurfa lengi’ að bíða að þjóð vor úr því rísi að nýju við. Gitðnt. Gttðmundsson. Gleðilegt nýár óskar Plógur kaupendum sínum °g þakkar þeim jafnframt fyrir gamla árið, fyrir að hafa greitt svo götu hans, að hann getur von- góður byrjað 2. árgang sinn. Margir hafa óskað þess, að Plóg- ur stækkaði við byrjun þessa árs. En vér sjáum oss það ekki fært að verða við þeirri ósk að svo komnu, því tiltölulega eru þeir margir, sem enn ekki hafa borg- að blaðið, og er þó komið langt yfir gjalddaga þess. Svo framarlega sem kaupend- urnir borgaPlög, mun hannstækka, án þess þó að verða þeim mun dýran. — Það er undir ykkur sjálfum kömið heiðruðu kaupend- ur hvert hann getur komið oftar til ykkar árlega, en hann hefir gert Jiðna árið. Eftir bréfum að dæma, frá hátt á annað hundrað út- sölumönnum Plógs eru kaupendurn- ir ánægðir með blaðið og stefnu þess. Ogflestirviðurkennaþeirbrýna þörf á landbúnaðarblaði. Aðeins '2 af þeim, sem skrifað hafa Plóg, hafa látið óánægju sína í ljósi yf- ir tilveru hans. Plógur hefur því góðar framtiðar vonir; vonar það, að hann beri sig. Útgáfa Plógs er ekkert gróðrafyrirtæki, það get eg fullvissað menn um. Það «er einungis af áhuga út- gef. á mál efni því, sem hann berst fyrir, að Plógur er ti! orðinn. Plógur æskir eftir stuttorðum pistlum frá góðum búmönnum, um eitt eða annað, er þeir geta frætt aðra um af reynslunni Plógur æskirþess einnig, að þeir

x

Plógur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.