Plógur - 20.03.1900, Qupperneq 6

Plógur - 20.03.1900, Qupperneq 6
22 sitt upprunalega eðli, af því, að vaxa um langan tíma, sem viltjurt. (Frh.). Athugasemd um kaffinautn. í II. árg „Plógs" 2. blaði er endir á grein um kaffidrykkju hér á landi frá merkum presti og er hún vel hugsuð, enda þó eg geri stutta athugasemd við hana, því mér skilst að presturinn tali um einsamalt kaffi, en ekki allan þann þremil, sem hafður er sainan við kaffið. Aðalefnið í kaffinu er „coffain" og er það tauga og hjarta styrkj- andi, einnig er það svefnbætandi. sé það brúkað í hófi einsamait. Það er því ekki sjálfu knffinu að kenna þótt það hafi heilsuspillandi áhrif, þegar það er drukkið í óhófi og blandað ýmsum óhollum efn- um, t. a. m. brent saman við það rúgi, byggi ertum o. s. frv. það mun nú algengast, að hafa með kaffinu hið alþekta ísafoldar ex- portskaffi, sem er mest megnis af brendum fíflarótum og svo ýms- um óþektum efnum til uppfyling- ar, líklega miður hollum. Þessi kaffidrýgir er óhollur, og ætti fólk að vara sig á honum Kaffið ætti að brúkast eitt útaf fyrir sig, enda þótt það verði þá þynnra, og getur það þá ekki verið heilsu- spillandi, sé það í hófi brúkað En þess má geta, að við ísl. munum varia fá ósvikið kaffi frá öðrum löndum. Það er búið áður að ná úr því mestu af „Coffain- inu", aðalefninu og selja það í lyfjabúðirnar, sem læknalyf. Kaffið, eins og það er algeng- ast tilbúið hjá oss, er mjög svo óhollur drykkur. En það má ekki skella skuldinni uppá kaffið sjálft, heldur þau efni sem höfð eru sam- an við það tii þess að gera það sem svartast og þykkast í boll- anum. Kaffi- en ekki kaffisfillis- vinur. * * * Aths. Þessi grein, sem er frá læknisfróðum manni, sannar, ágæt- lega það, sem presturinn heldur fram, að kaffið sé óhollur drykk- ur. Það er kaffinu engin málsbót, þótt það hafi til góða eiginleika, ef það er ósvikið og óblandað öðrum efnum og svo brúkað í hófi. Við því er að gera sem er, sem sé, að kaffið er drýgt ávalt með rót, sumstaðar fl. efnum, að kaffið er ávalt meira eða minna svikið, og að síðustu brúkað í óhófi. Það er því ljóst, að kaffinautn- in er meira eða minna heilsuspili- andi, eins og hún tíðkast hjá oss. Ritstj. Heygæði. Eins og kunnugt er, hafa engar efna- rannsóknir verið gerðar á íslenzkum fóðurgrösum, svo teljandi sé, einung- is lítið eitt frá búnaðarskólanum á Hóium. Bændur verða því að stafa

x

Plógur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.