Plógur - 16.06.1900, Qupperneq 1
LANDBÚNABARBLAB
„Bóndi er búst61pi.w
„Bú er Iand88t61pi.u
II. árg.
Reykjavík 16. jón! 1900.
Æ 5.
I»eir, sem enn eiga óborgaðan 1. árg.
„Plógs“, em vinsamlega beðnir að gjöra
það hið fyrsta.
A9 rétta við Iandbúnaðinn,
m.
Á því er enginn efi, að gras-
ræktin er sú ábatamesta atvinna á
landi voru; það sýnir bezt afkoma
fjölda einyrkja-bænda, sem hafa
mikla ómegð en sárlítinn bústofn.
Og þó segja megi að líf margra
þessara bænda sé oft lítilfjörlegt,
þá vita það þó allir, að til þess
að framfæra mörgum börnum til
fæðis og klæðis þótt fátæklegt sé,
þarf ekki neitt smáræði. — Það
er því grasræktin sem vérþurfum
að leggja sem mesta stund á. Hún
þarf að breytast smátt og smátt
þannig, að búfénaðurinn sé fóðr-
aður á ræktuðu grasi, ekki á út-
heyjum nema þar, sem flæðengja-
hey er, sem er oft jafngildi beztutöðu.
Það er ekki lítill vinnukraftur, sem
sumir bændur þurfa til þess að
slá þýfð tún og magrar engjar,
oft langt frá bæjum. Þetta ætti
■neð tímanum að breytast þannig,
að menn slæju slétta töðuvelli
handa kúm og sauðfé.
Eg set hér lítið dæmi, sem sýnir
hve mikill munur væri á að búa,
ef menn einungis hefðu slétta töðu-
velli til slægna.
Bóndi nokkur hefur lokið við
að slétta tún sitt (40 dagsláttur)
einn góðan veðurdag. Þetta 40
dagsl. tún gefur af sér í meðal
ári 720 hesta af töðu, 18 hesta
af dagsl. Á þessari töðu má sjálf-
sagt hafa 10 kýr, 150 fjár og 2
geldneyti. En til þess að heyja
fyrir þessum búpening þarf bónd-
inn auk sjálfs síns kaupamann
í 4—5 vikur og einn kvennmann.
Á sléttu slær meðal sláttumaður
I dagsláttu, en í þýfi hálfa dagsl.
og þaðan af minna. Hér er þvf
auðsætt, að kostnaður við buið er
ekki mikill í samanburði við það,
sem nú á sér venjulega stað, þar
sem viðlíka bú eru og eg hefi hér
bent á. En til þess að koma þess-
ari breytingu á, sem þarf sem fyrst,
verða bændur að hafa aðgang að
góðum peningalánum, eins og áð-
ur er tekið fram. Að taka lán til
luisabyggingar er óráðlegt fyrir
bændur, nema vel efnaðir séu. En
til grasræktar eru peningalán hættu-
laus hverjum bónda, einkum séu
þau lánuð til langs tíma.
Bóndi sem tekur 1000 kr. lán