Plógur - 16.06.1900, Side 8
40
upp laglegt bú, sem gæfi enn þá meiri
tekjur.
2. Eg hefi heyrt getið um tún, sem
hefij sprottið svo vel. að 25—"?o hestar
fengust af dagsláttunni. Ekki fæ eg af
ræktuðum sléttum á túninu mínu nema
15—16 hesta. Hvernið á eg að fara
með sléttnrnar, svo eg fái meira gras
af þeim? (J. E.).
Svar: Þeir eru fáir, sem hafa rækt-
að svo tún sín að ekki hafi verið hægt
að segja, að þau hefði mátt rækta enn
þá betur. Geir Zoéga kaupm. í Reykja-
vík fékk af túni sínu, nýræktuðu, fyrir
20—30 árum 30 hesta af töðu aídagsl.,
kaupm. Þ. Eigilssen í Hafnarfirði hefir
fengið 25 hesta af dagsl.. , Gunnl. sál
Briem verzl.stj. í Hafnarf. fekk sumar-
ið 1894 af roo ferh.faðma bletti 7 hesta
af töðu. Þaðersama og hann hefði fengið
63 hesta af dagsláttunni. Þetta hefi eg
sjálfur séð. Eg hefði naumast trúað því,
ef eg hefði ekki séð það. Séra Björn
Halldórsson segir í Atla bls. 58: „Það
er gamalt búmannalag hér á landi, að
hálfur annar eyrisvöllur (1V2 dagslátta)
gefi af sér kýrfóður, er hann þá vel
ræktaður, og þó ekki í bezta lagi“. Séra
Björn var svo merkur og áreiðanlegur
maður, að hann hefir ekki tekið þetta
úr lausu lofti. Endá sýnir það kúafjöld-
inn í landinu á fyrri öldum, að tún
hafa þá verið í betri rækt alment, en
þau nú eru, þrátt fyrir alla nú tímans
jarðyrkju. —, Túnin hafa þá verið bet-
ur tödd.
Spyrjandinn ætti að reyna að verja
sléttur sínar hesta ágangi, dreifa um
þærnægum áburði um-ogeftir réttir, bera
svo fljótandi áburð á þær að vorinu.
Eg hygg að flestar sléttur gætu gefið
nf sér alt að 30 hesta af dagsl., ef
þa r hefði nógan og góðan áburð.
Hitt og þetta,
Kálgarðará öllú landinu voru árið 1876
272 dagsláttur, en 1896 voru það 692 dag-
sláttur, Öll túná landinu 1896 eru talin
46,499 dagsláttur.
Arid i8qó er talið að hafi heyjast á
öllu landinu 499 þúsund hestar af töðu
og af útheyi 1 miljón og 92 þúsundir hesta.
Sama ár fengust úr görðurri 13 þúsund
tn. af kartöflum og 10 þúsund tn. af
rófum.
Arið i8qó var flutt út frá fsl. 1,740,.
000 pd. af ull, 42,000 ® af söltuðum
sauðskinnum, 60,400 sauðkindur á fæti
til Englandsá 811,000 krónur og 2,927
hross fyrir 142,000 krónur.
A meðan bóndinn getur sagt við hjú
sfn : komið með mér, gengur búskapurinn
oftast vel. En þegár bóndinn verður að'
segja hjúum sínum að fara oq gjöta
petta eða hitt, þá er mál komið fyrir
hann að hætta búskap.
Tapaðan auð má vinna sér inn aftur
með starfsemi og sparnaði, tapaðan
fróðleik með námi, tapaða heilsu með
.regliisemi og meðulum, en tíminn, sem
vér eyðum, kemur aldrei aftur. (William
Mathevvs.).
Ef þú ætlar þér að gjöra eithvað til.
nytsemdar, þá skaltu ekki bíða eftir
einhverjum óvanalegum atvikum, held-
ur nota þau algengu. Það er betra
að ganga fót fyrir fót, en að hlaupa
sprett við og við (Goethe).
Afgreiðsla „Plógs“ er í „bar-
ónshúsinu" inzta húsi við Laugaveg.
Höfundar að 2 ritgjörðum, sem Plóg
hafa verið sendar um kaffinautn, eru
hénneð látnir vita, að „Plógur" getur
ekki tekið meira um það efni í þessum
árgangi en komið er.
Ritstjóri og ábyrgðarm.:
Sig. Þórólfsson.
Prentaður í Glasgow-prentsmiðjunni.