Plógur - 16.06.1900, Síða 8

Plógur - 16.06.1900, Síða 8
40 upp laglegt bú, sem gæfi enn þá meiri tekjur. 2. Eg hefi heyrt getið um tún, sem hefij sprottið svo vel. að 25—"?o hestar fengust af dagsláttunni. Ekki fæ eg af ræktuðum sléttum á túninu mínu nema 15—16 hesta. Hvernið á eg að fara með sléttnrnar, svo eg fái meira gras af þeim? (J. E.). Svar: Þeir eru fáir, sem hafa rækt- að svo tún sín að ekki hafi verið hægt að segja, að þau hefði mátt rækta enn þá betur. Geir Zoéga kaupm. í Reykja- vík fékk af túni sínu, nýræktuðu, fyrir 20—30 árum 30 hesta af töðu aídagsl., kaupm. Þ. Eigilssen í Hafnarfirði hefir fengið 25 hesta af dagsl.. , Gunnl. sál Briem verzl.stj. í Hafnarf. fekk sumar- ið 1894 af roo ferh.faðma bletti 7 hesta af töðu. Þaðersama og hann hefði fengið 63 hesta af dagsláttunni. Þetta hefi eg sjálfur séð. Eg hefði naumast trúað því, ef eg hefði ekki séð það. Séra Björn Halldórsson segir í Atla bls. 58: „Það er gamalt búmannalag hér á landi, að hálfur annar eyrisvöllur (1V2 dagslátta) gefi af sér kýrfóður, er hann þá vel ræktaður, og þó ekki í bezta lagi“. Séra Björn var svo merkur og áreiðanlegur maður, að hann hefir ekki tekið þetta úr lausu lofti. Endá sýnir það kúafjöld- inn í landinu á fyrri öldum, að tún hafa þá verið í betri rækt alment, en þau nú eru, þrátt fyrir alla nú tímans jarðyrkju. —, Túnin hafa þá verið bet- ur tödd. Spyrjandinn ætti að reyna að verja sléttur sínar hesta ágangi, dreifa um þærnægum áburði um-ogeftir réttir, bera svo fljótandi áburð á þær að vorinu. Eg hygg að flestar sléttur gætu gefið nf sér alt að 30 hesta af dagsl., ef þa r hefði nógan og góðan áburð. Hitt og þetta, Kálgarðará öllú landinu voru árið 1876 272 dagsláttur, en 1896 voru það 692 dag- sláttur, Öll túná landinu 1896 eru talin 46,499 dagsláttur. Arid i8qó er talið að hafi heyjast á öllu landinu 499 þúsund hestar af töðu og af útheyi 1 miljón og 92 þúsundir hesta. Sama ár fengust úr görðurri 13 þúsund tn. af kartöflum og 10 þúsund tn. af rófum. Arið i8qó var flutt út frá fsl. 1,740,. 000 pd. af ull, 42,000 ® af söltuðum sauðskinnum, 60,400 sauðkindur á fæti til Englandsá 811,000 krónur og 2,927 hross fyrir 142,000 krónur. A meðan bóndinn getur sagt við hjú sfn : komið með mér, gengur búskapurinn oftast vel. En þegár bóndinn verður að' segja hjúum sínum að fara oq gjöta petta eða hitt, þá er mál komið fyrir hann að hætta búskap. Tapaðan auð má vinna sér inn aftur með starfsemi og sparnaði, tapaðan fróðleik með námi, tapaða heilsu með .regliisemi og meðulum, en tíminn, sem vér eyðum, kemur aldrei aftur. (William Mathevvs.). Ef þú ætlar þér að gjöra eithvað til. nytsemdar, þá skaltu ekki bíða eftir einhverjum óvanalegum atvikum, held- ur nota þau algengu. Það er betra að ganga fót fyrir fót, en að hlaupa sprett við og við (Goethe). Afgreiðsla „Plógs“ er í „bar- ónshúsinu" inzta húsi við Laugaveg. Höfundar að 2 ritgjörðum, sem Plóg hafa verið sendar um kaffinautn, eru hénneð látnir vita, að „Plógur" getur ekki tekið meira um það efni í þessum árgangi en komið er. Ritstjóri og ábyrgðarm.: Sig. Þórólfsson. Prentaður í Glasgow-prentsmiðjunni.

x

Plógur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.