Plógur - 03.12.1900, Page 1
p
LANDBtiííAÐAlWiLAÐ
„Bóndi er búBtólpi."
„Bú er landsstólpi.*
II, árg.
Reykjavík 3. desember 1900.
M 10.
Akuryrkja.
(Niðurl.). Á þessari öld hafa
litlar kornyrkju-tilraunir verið gerð-
ar. Schierbeck gerði hér ýmsar
tilraunir i Reykjavík með bygg-
ræktun o. fl. Hann sáði byggi
I. júní 1883, 6. seftember var
byggið fullþroskað. Þetta sumar
var tæplega í meðallagi hlýtt.
Sumarið 1884 og 85 voru annal-
uð kuldasumur. Enda mishepn-
aðist þau sumur byggræktun
Schierbecks að mestu leyti. Einar
Helgason garðyrkjufr. sáði byggi
á Hvítárvöllum og Rauðará sum-
arið 1888, og fékk fullþroskað
bygg. Sama sumar sáði ég byggi,
12 tegundum þroskuðust flestar
þessar korntegundir nokkurn veg-
inn. Sú tegundin, sem sáð var
21. maí, fyrir hvítasunnu-hretið,
þroskaðist lang-bezt. — Þetta
sumar var ekki hlýtt hér á suður-
landi; miklar rigningar siðari hluta
samarsins.
Eins og kunnugt er, þroskast
bygg nyrzt í Noregi, á 70° n. br ,
þar setn ars-meðal hitinn er miklu
minni en víðast hvar hér á landi.
Þetta mætti í fljótu áliti sýnast
benda til þess, að hér sé nægur
hiti á sumrum, svo að bygg geti
þrifist. En við nánari umhugsun
verður það ijóst, að á því er ekki
hægt að byggja að fullu. Sem
dæmi má benda á, að árs-meðal
hitinn í Þrándheimi er líkur því,
sem hann er í Reykjavík. En
munurinn á jurtagróðrinum i Þránd-
heimi og Reykjavík er býsna mik-
ill. í Þrándheimi vaxa alls konar
tré, og epli þroskast þar vel.
Þessu líkur er ekki jurtagróðurinn
i Reykjavík. Á Akureyri er minni
hiti en í Reykjavík, þó vex reyr-
inn á Akureyri miklu betur en í
Rvík. Svona tná benda á mörg
dæmi.
Þetta stafar aðallega af því, að
það gerir minst til fyrir jurtagróð-
urinn, þótt veturinn sé langur og
kaldur, einungis að sumarið sé
hlýtt þó stutt sé, og sérstaklega
að sumarhitinn komi misjafnt
niður. Jurtirnar hafa meiri not
einum degi, sem hitinn er 20°,
en 4—5 dögum, ef hitinn að eins-
er 9—ii°, Þetta er vísindalega
sannað og á ekki hér við að skýra
frá orsökunum.
Eftir þessu er það þá Ijóst, að
tilraunir sem gerðar eru með jurta-
ræktun hér í Rvík, eða við sjávar-