Plógur - 03.12.1900, Síða 1

Plógur - 03.12.1900, Síða 1
p LANDBtiííAÐAlWiLAÐ „Bóndi er búBtólpi." „Bú er landsstólpi.* II, árg. Reykjavík 3. desember 1900. M 10. Akuryrkja. (Niðurl.). Á þessari öld hafa litlar kornyrkju-tilraunir verið gerð- ar. Schierbeck gerði hér ýmsar tilraunir i Reykjavík með bygg- ræktun o. fl. Hann sáði byggi I. júní 1883, 6. seftember var byggið fullþroskað. Þetta sumar var tæplega í meðallagi hlýtt. Sumarið 1884 og 85 voru annal- uð kuldasumur. Enda mishepn- aðist þau sumur byggræktun Schierbecks að mestu leyti. Einar Helgason garðyrkjufr. sáði byggi á Hvítárvöllum og Rauðará sum- arið 1888, og fékk fullþroskað bygg. Sama sumar sáði ég byggi, 12 tegundum þroskuðust flestar þessar korntegundir nokkurn veg- inn. Sú tegundin, sem sáð var 21. maí, fyrir hvítasunnu-hretið, þroskaðist lang-bezt. — Þetta sumar var ekki hlýtt hér á suður- landi; miklar rigningar siðari hluta samarsins. Eins og kunnugt er, þroskast bygg nyrzt í Noregi, á 70° n. br , þar setn ars-meðal hitinn er miklu minni en víðast hvar hér á landi. Þetta mætti í fljótu áliti sýnast benda til þess, að hér sé nægur hiti á sumrum, svo að bygg geti þrifist. En við nánari umhugsun verður það ijóst, að á því er ekki hægt að byggja að fullu. Sem dæmi má benda á, að árs-meðal hitinn í Þrándheimi er líkur því, sem hann er í Reykjavík. En munurinn á jurtagróðrinum i Þránd- heimi og Reykjavík er býsna mik- ill. í Þrándheimi vaxa alls konar tré, og epli þroskast þar vel. Þessu líkur er ekki jurtagróðurinn i Reykjavík. Á Akureyri er minni hiti en í Reykjavík, þó vex reyr- inn á Akureyri miklu betur en í Rvík. Svona tná benda á mörg dæmi. Þetta stafar aðallega af því, að það gerir minst til fyrir jurtagróð- urinn, þótt veturinn sé langur og kaldur, einungis að sumarið sé hlýtt þó stutt sé, og sérstaklega að sumarhitinn komi misjafnt niður. Jurtirnar hafa meiri not einum degi, sem hitinn er 20°, en 4—5 dögum, ef hitinn að eins- er 9—ii°, Þetta er vísindalega sannað og á ekki hér við að skýra frá orsökunum. Eftir þessu er það þá Ijóst, að tilraunir sem gerðar eru með jurta- ræktun hér í Rvík, eða við sjávar-

x

Plógur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.