Plógur - 23.05.1901, Qupperneq 6
30
unnið að því, þá lítið er að gera
að öðru, að vetrinum, sérstaklega
við sjávarsíðuna, en í girðinni ligg-
ur mestur kostnaður við jarðepla-
ræktina.
Að endingu vil egminnastá,
að mjög líklegt þykir mér að hið
tilvonandi landbúnaðarþing, láti
sig þetta einhverju skipta með
fleiru; væri óskandi að garðyrkju-
maður landbúnaðarfélagsins væri
látinnathuga, hvar tiltækilegast væri
að búa út jarðeplaakra, og með
hvaða fyrirkomulagi honum virðist
það heppilegast, og kann hann að
sjá marga vegi, sem nú eruívan-
þekkingu huldir.
Skal eg svo hnýta því hér apt-
an við, að mér finnst þingið gæti
verndað jarðeplaræktina með tolli
á innfluttum jarðeplum; egget ekki
séð það neitt hættulegt.
Athugasemdir.
Hinn heiðraði höfundur, sem skrif-
aði smápistlana: „Sundurlausar setn-
ingar" í 2. og 3. nr. Plógs, óskar á-
lits blaðsins á þeim.
Margar góðar bendingar eru í þess-
um sundurlausu setningum höf., en
sumt erekki alveg rétt, eðaað minnsta
kosti veitir ekki af athugasemdum við
ýms atriði.
Höfundur bendir á, að kalt, nýtt
vatn sé betra handa mjólkurkúm, en
fjósstaðið vatn. Þetta er nokkuð vafa-
samt. Ef kálfarnir eru strax vandir
við kalt vatn, er engin hætta á, að
hafa vatnið kalt. En við því er að
gera sem venjulegt er, sem sé að kúm
er gefið fjósstaðið vatn, að meiru eða
minna leyti, og er það þá ekki heppi-
legt að hætta við það og fara að gefa
kúnum kalt vatn, sem þær eru ó-
vanar.
Höf. heldur því fram, að fjósstaðið
vatn sé óhollt af bakteríum og óholl-
um reikulum efnurn (dömpum) sem
það dragi til sín.
Ekki geri eg þetta að stóru númeri,
sé hreinlega farið með vatnsílátið og
skipt um vatn daglega, sem sjálfsagt
er. Þegar eg mæli fram með fjós-
stöðnu vatni, á eg ekki við margra
daga fúlt vatn í óþrifakirnum, heldur
vatn, sem látið er t. d. að morgni dags
í ílát til kveldsins, til þess að taka úr
vatninu mesta kuldann. Og víst er
um það, að t frostum að vetrinum
drekka kýr lítið af klakavatni. Og
það er gömul reynsla fyrir þvt, að et
vatnið, sem kýrnar eiga að drekka er
að einhverju le/ti svo, að þær ekkí
hafa lyst X því, þá geldast kýrnar.
Alitið er að gott sé að gefa kúm salt,
meðfram til þess, að þær drekki þess
meira, og þykjast menn hafa veitt
því “ptirtekt, að þá mjólki þær betur.
Af þessari sömu ástæðu vilja menn
taka kaldakulið úr vatninu, því þá
drekka þær meir, en sé það lskalt.
A öðrum stað segir höf., að ekki sé
ráðlegt að láta mikinn „skít“ safnast
undir hrossin, því það hafi af hross-
unum og geri þau auk þess fótaveik.
Það er satt, að séu hrossin látin
standa í bleytu daglega, þá þrífast
þau ver en ella. En það þarf alls
ekki að vera bleyta í húsunum, þótt
ekki sé daglega mokað undan þeim.
Hrossataðið geymist bezt undir þeim
en til þess áð ekki tapist þvagið og
loptleg efnasambönd, þarf að bera
undir þau moðsalla eða einhver þess-
konar efni.