Plógur - 01.04.1907, Síða 1
PLÖGUR
IANDBÚNAÐARBLAÐ •
„Bóndi er bústólpi“. »tBú er landstólpi**.
IX. árg.
Reykjavík, apríl 1907.
Á Ping’völl
ríða sjálfsagt margir á næst-
komandi sumri. — Það er ekki
þjóðrækni eða velferðarmál þjóð-
arinnar, sem teymir fjöldann
þangað, heldur konungur vor og
öll sú viðhöfn, sem honum
fylgir. — Það er skemtun, já,
sjaldsjeð skemtun að ríða á
Þingvöll og sjá þar sjálfan kon-
unginn í allri sinni djnð. En
þessi skemtun getur orðið
sumum æði dýr. Heyrst hefir,
að margir liugsi til þeirra farar
bæði af Norður- og Suðurlandi,
ekki einungis bændur, heldur
blátt áfram veckamenn. Um há
bjargræðistímann er slík skemtun
dýr og viðsjárverð.
En þessi skemtun fer fram á
Þingvöllum, þessum ógleyman-
lega endurminningastað þjóðar-
innar, þarsem allar helstu minn-
ingar, beiskar og hugnæmar eru
bundnar við. Og þennan stað
hafa færri séð, en æskilegt væri.
Á þetta má sjálfsagt líta. En
þó hygg jeg, að þeir, sem af
sannri andlegri þrá, vilja offra
talsverðum peninguin og tíma,
til þess að sjá og skoða Þing-
völl, ættu að velja sér annan
4.
hentugri tíma en þessa konungs-
sýningar hátíð. Þar verður
margt að sjá og heyra, sem
varpar skugga á Þingvöll, og í
þeim skugga vakna síður helgar
endurminningar, er geta vakið
og glætt sannar þjóðernistilfínn-
ingar i brjóstum manna.
Yæri ekki heppilegast að hver
sjTsla á landinu sendi t. d. 2
kosna fulltrúa á Þingvöll i sumar
til þass að fagna konungi. Hætt
er við að konungi vorum og
hinum starfsömu frændum vorum
Dönum, þyki hálfbroslegt, að
sjá stóra hópa af bændum og
öðrum starfsmönnum koma lil
hátíðahalds úr Qarlægum hér-
uðum um hábjargræðistímann.
Já. þótt það sé í aðra hönd, að
sjá konung. — Hann er þó
maður eins og aðrir mennjein-
ungis maður, skartklæddur
maður, auðvitað góður inaður
eins og margir eru., En alt má
kaupa of dýru verði. —
Hvenær skyldu þjóðirnar liætta
að tilbiðja konunga sina? beygja
sig í auðmýkt fyrir þeim, telja
það endimark allra óska og vona,
að fá þá náð, að dekra við þá,
eða mega krjúpa við fótskör
náðar þeirra og hátignar!! —