Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Side 4
PÉTUR SIGURGEIRSSON, biskup:
Predikun í Hóladómkirkju
við biskupsvígslu séra Sigurðar Guðmundssonar
vígslubiskups 27. júní 1982
JÓHANNESARGUÐSPJALL 20. 19-21:
. . . Þennan fyrsta dag vikunnar voru lærisveinarnir
saman og höfðu læst dyrum af ótta við Gyðinga. Þá
kom Jesús, stóð mitt á meðal þeirra og sagði við þá:
„Friður sé með yður.“ Þegar hann hafði þetta mælt,
sýndi hann þeim hendur sínar og síðu. Lærisveinarnir
urðu glaðir, er þeir sáu Drottin.
Þá sagði Jesús aftur við þá:
„Friður sé með yður. Eins og faðirinn hefur sent mig,
eins sendi eg yður.“
Þegar við komum saman hér í hinum forna helgidómi að
Hólum í Hjaltadal, til þess að vera í „andlegu húsi“ — sam-
félagi kristinna manna lýsa vel þessi orð Biblíunnar leiðina
þangaðinn.
Þar er fyrst til að taka, það sem lagt er til grundvallar:„Þá
kom Jesús og stóð mitt á meðal þeirra. “ Nafnið Jesús er fyrst alls,
þegar um kirkjuna er að ræða. Jesús er hyrningarsteinninn að
þeirri andlegu byggingu. „Ekki er hjálpræðið í neinum öðr-
um, og ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld,
sem getur frelsað oss“ (Post. 4, 12).
Eitt sinn var lærifaðir Múhameðstrúarmanna beðinn um
að skilgreina, hver væri munurinn á kristinni trú og
Múhameðstrú. Svar hans var mjög einfalt. Hann sagði:
„Þið hafiðJesú.“
Staðreyndin er ekki aðeins sú, að við eigum nafn hans,
heldur líka, að við vitum, hver hann er. Sú þekking á honum,
er því að þakka, að hann hefur tjáð sig, gefið sig til kynna,