Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Side 6

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Side 6
10 TlÐINDI Það var á mikilli hátíð við stofnun hins íslenska lýðveldis, 18. júní 1944 sem þú varst vígður prestur. Við munum stóran hóp vígsluþega, þar sem þið voruð níu saman fyrir framan altarið í dómkirkjunni í Reykjavík. Þið voruð kærkomin gjöf hinu nýstofnaða lýðveldi. Siðan hafa árin liðið. Þegar þú hefur verið kjörinn vígslubiskup af starfsbræðrum þínum í hinu forna Hólastifti, er enn komið að vígslu þinni. Og þá eru þessi orð töluð til þín, er Jesús sagði aftur við lærisveina sína: „Eins og faðirinn hefur sent mig, eins sendi eg yður.“ Öll eigum við köllunina að vera send. Hver kristinn maður er sendiboði. Köllun hans er aögefa það, sem hann hefur þegið, og meðtekið af Kristi. Eg vel orðin til þess að vera yfirskrift vígslu þinnar. Kristur er í enn víðtækara skilningi að kalla á þig, til að útbreiða ríki sitt. Þrennt er það sem við þurfum að vita. Fyrst nefni ég það, að Kristur þarfnast okkar. Það var í borg í Evrópu eftir stríð, að tekist hafði að gera við Kristsmynd, sem stóð þar á miðju torgi. Hvernig sem leitað var, fundust þó ekki hendur stytt- unnar. Þegar myndastyttan var afhjúpuð, tók fólk eftir því, að á fótstall styttunnar höfðu viðgerðarmennirnir skrifað: Eg hefi engar hendur, ljá mér þínar.“ f bréfum sínum talar Páll postuli um kirkjuna sem líkama Krists. —Kirkjan er kjörin af Kristi til þess að vera rödd hans, láta orð hans vera í hljóðmæli, heyrast, fætur hans fara með boð til endimarka heims, og hendur til þess að snúa orðum upp í athafnir. Hinn kunni þýzki guðfræðingur Dietrich Bonhoeffer kall- aði Krist: Manninn verandi til fyrir aðra. „Og þetta sjáum við m.a. af Postulasögunni, en þar segir: „Þetta er sagan um Jesú frá Nasaret, hvernig Guð smurði hann heilögum anda og krafti. Hann gekk um, gjörði gott og græddi alla.“ (Post. 10 38a). í öðru lagi skal á það bent, að kirkjan þarf á Jesú að halda. Það segir sig sjálft, að hún vinnur ekki verk hans, þjónar ekki, sendist ekki án hans hjálpar. Þegar Þórarinn Björnsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis
https://timarit.is/publication/39

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.