Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 12

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 12
16 TÍÐINDI Stúdentsprófi lauk ég frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1940. Menntaskólaárin eru minnisstæð og yfir þeim blær gleði og fegurðar. — Erfið voru þau þó að ýmsu leyti. Atvinnuleysi og kreppa i landi. En þeir erfiðleikar sem ég og fleiri urðum að takast á við áttu þátt í að þroska okkur og dýpka lífsskilning okkar. — Samferðin með góðum félögum í menntaskóla og vinum er vissulega eitt af því sem aldrei gleymist. Alltaf er gott að hitta gömlu félagana og blanda geði við þá. — Eftir stúdentspróf var aðeins um eitt að ræða að lesa guðfrœði og verða prestur. Haustið 1940 hófum við sex stúdentsbræður frá M.A. nám í Guðfræðideild Háskóla Islands og skólabróðir okkar, núver- andi biskup, sem verið hafði með okkur í M.A. allt fram á vetur í fimmta bekk, kom nú aftur í hópinn. — Við urðum allir samrýndir mjög og hefur sú vinátta ekki rofnað til þessa. — Guðfræðipróf tókum við vorið 1944. — Ég varð að fá aldursleyfi til vígslu og var það gefið út á Þingvöllum 17. júni á fyrsta ríkisráðsfundi forseta Islands. — Biskup Islands, herra Sigurgeir Sigurðsson, vígði okkur níu þann 18. júní 1944. Það var mikilvægt spor sem þá var stigið. Sigurgeir biskup var okkur ljúfur og góður. Hann leiðbeindi og styrkti af áhuga. — Fyrsta heimilið sem ég kom á, er ég sem ungur stúdent kom til Reykjavíkur var biskupsheimilið. Þar var mér tekið af hinni alkunnu ljúfmennsku þeirra hjóna frú Guð- rúnar og herra Sigurgeirs. Æ síðan var hús þeirra opið fyrir mér og á ég þeim sannarlega mikið að þakka. — Ég var vígður til Grenjaðarstaðar, sem settur prestur þar. — Var það fyrst og fremst sr. Friðrik Rafnar, sem réð þar mestu um. Ég ætlaði til Vestfjarða, en sr. Friðrik sagði: Þú skalt verða prestur á Norðurlandi. — Það varð — og í 38 ár hefi ég þjónað Grenjaðarstaðarprestakalli. Þann 12. febrúar 1944 steig ég eitt mitt mesta gæfuspor. Þann dag gekk ég að eiga Aðalbjörgu Halldórsdóttur frá Öngulsstöðum í Eyjafirði. Við vorum gefin saman af sr. Sig- urbirni Einarssyni síðar biskupi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis
https://timarit.is/publication/39

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.