Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 21
DR. KRISTJÁN ELDJÁRN:
Kirkjur í Svarfaðardal
Rceða flutt við hátíðarmessu á Tjörn í Svarfaðardal 18/6 1982
Sú var tíðin — og þarf þó að fara nokkuð langt aftur í
tímann — að guðshús voru miklu fleiri hér í sveitinni en nú
eru. Á miðöldum voru hér bænhús eða kapellur, einskonar
heimiliskirkjur, á mörgum
bæjum. Aðeins hér í Tjarnar-
sókn voru slík bænhús á að
minnsta kosti fjórum bæjum,
líklega fleiri. Eitt hefur verið á
Jarðbrú, hér rétt við hliðina á
sóknarkirkjunni. Öllum bæn-
húsum fylgdu grafreitir, og
þess vegna er það að á þeim
bæjum sem þau hafa verið
koma menn stundum niður á
jarðneskar leifar þeirra manna
sem fyrir mörgum öldum hafa
byggt þessa sveit.
Svona var þetta um allt
land, en upp úr siðaskiptum
var hvað eftir annað af yfirvöldum gerð einskonar atlaga
að þessum litlu guðshúsum og reynt að fækka þeim. Smátt og
smátt hurfu þau og gleymdust, uns þar kom að ekkert þeirra
stóð eftir. Kirkjum var einnig fækkað talsvert, en hér i dalnum
stóðu allar hinar fornu kirkjur fjórar og standa enn, og lít ég
þá á Dalvíkurkirkju um Upsakirkju á nýjum stað.
Á fyrri hluta 19. aldar voru allar kirkjurnar fjórar torf-
kirkjur, smáar vexti, enda söfnuðir tiltölulega fámennir. Fyrir
1850 hefur ekki verið eitt einasta timburhús, sem svo er kallað,
hér í sveitinni. Allir bæir voru torfbæir og allar kirkjur torf-
Dr. Kristján Eldjárn.