Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Síða 23

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Síða 23
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HÓLASTIFTIS 27 komst skriður á málið, og árið 1861 var vegleg kirkja risin þar af grunni, og stendur sú kirkja enn og standa mun. Þarna höfðu þá gerst athyglisverð tíðindi hér í sveitinni. Á einum áratug, 1850-60, höfðu þrjár af fjórum torfkirkjum hnigið til foldar og timburkirkjur leyst þær af hólmi. Hið sama gerðist hinsvegar ekki um Tjarnarkirkju í þessari lotu. Ástæðan til þess var áreiðanlega sú, að torfkirkjan þar var yngri en hinar, byggð 1852-53, eða eftir að flestir söfnuðir voru hættir að reisa torfkirkjur og nokkrum árum eftir að timburkirkjan var byggð á Urðum. Varla var von að menn rykju strax í að rífa svo nýlega kirkju þótt torfkirkja væri. En þar kom þó von bráðar að menn vildu ekki una við torfkirkj- una og hið sama gerðist hér og á hinum kirkjustöðunum. Um 1890 fór söfnuður og prestur hér, sem þá var séra Kristján Eldjárn Þórarinsson, að hugsa til að byggja nýja kirkju, árið 1891 var torfkirkjan rifin, þótt ekki væri hún orðin fertug, og síðan af mikilli atorku byggð timburkirkja, sem vígð var á hvítasunnudag 5. júní 1892, kirkjan sem við erum nú stödd í, níræð á þessu sumri. Þar með var lokið torfkirknaöld í þessari sveit og sú þróun um garð gengin, sem í stórum dráttum hafði átt sér stað um allt land á sama tímaskeiði. Mér hefur fundist ástæða til að rifja þessa sögu upp við þetta tækifæri, þótt ég ætlaði mér reyndar ekki að flytja hér fyrirlestur um kirkjurnar í Svarfað- ardal. Og þegar ég mæli þessi orð vil ég minnast þess með þakklátum huga, að Valdimar V. Snævarr tók á sínum tíma saman ritgerðir um þrjár kirknanna, þar sem miklu ítarlegar er um byggingarsögu þeirra fjallað. I þeim er meðal annars talsverður fróðleikur sem Valdimar hafði eftir gömlum mönnum, sem nú eru látnir, fróðleikur sem ekki er annars- staðar að finna, og slíkt er mikils virði þótt aðalheimildir séu í opinberum gögnum. Vel sé Valdimar fyrir þessa miklu rækt- arsemi hans. Það er þess virði að veita því athygli, að þegar Urðakirkja og Upsakirkja fuku og eyðilögðust í aldamótarokinu, þá stóðu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis
https://timarit.is/publication/39

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.