Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 24

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 24
28 TlÐINDI Vallakirkja og Tjarnarkirkja veðurofsann af sér að mestu leyti. Það sem þarna gerði gæfumuninn kann að hafa verið það, að þær voru seinna byggðar og hið fyrra kirkjufok á Upsum hefur ef til vill kennt mönnum þá lexíu að nauðsyn- legt væri að festa þessi nýju hús sem rammbyggilegast á grunninum. Sú saga er sögð, að enda þótt Tjarnarkirkja, sem aðeins var átta ára þegar aldamótarokið reið yfir, fyki ekki út í veður og vind, þá skekktist hún eigi að síður allmikið og hallaðist mjög til norðurs. En nokkru síðar gerði hvassviðri af norðri, sem reisti hana aftur við og færði upp á grunninn. Þetta lætur í eyrum eins og þjóðsaga eða jarteikn úr helgisögu, en geymir þó eflaust einhvern sannleik. Og vissulega má líta á það sem tákn, tákn þess að þessi kirkja eigi að vera hér, á þeim forn- helga grunni þar sem kirkja hefur vafalítið staðið frá upphafi kristins siðar í þessu landi, tákn þess að æðri máttarvöld vilji að hún fái að halda velli. Og ef til vill má benda á annað sem vitnar um að þessi kirkja hafi aldrei bráðfeig verið. Yfir henni kunna að hafa vofað hættur sem afdrifaríkari hefðu getað orðið en foráttu- veður. Með þessu á ég við hættuna sem grandað hefur mörg- um kirkjubyggingum á íslandi vegna tilhneigingarinnar til að leggja kirkjur niður, eins og það er kallað, til að fækka kirkj- um, byggja eina stóra og veglega í staðinn fyrir tvær eða jafnvel þrjár litlar og óveglegar. Ástæðurnar til þessa eru augljósar og skiljanlegar, eins og til dæmis fólksfækkunin í sveitunum, sem sumsstaðar hefur haldið við landauðn, nefna má og ný og fullkomin samgönguskilyrði og margt fleira kemur til, og þó einkum það að mönnum hefur fundist praktískara og nútímalegra að gera eina nýja og stóra kirkju heldur en að halda við tveimur gömlum og litlum. Sums- staðar hefur þessu verið hrundið í framkvæmd og þá jafnvel með þeirri málamiðlun, að ný kirkja hefur verið byggð ein- hversstaðar á milli tveggja gamalla, sem lagðar hafa verið niður, kannski næstum því að segja úti á víðavangi eða ber-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis
https://timarit.is/publication/39

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.